Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 5
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009
Enski kylfing-urinn Ian
Poulter vann
sinn fyrsta sigur í
tvö ár þegar hann
sigraði á Opna
Barclays golf-
mótinu sem fram
fór í Singapúr.
Hann lék hring-
ina fjóra á 10 höggum undir pari og
var með forystu alveg frá fyrsta
degi. Hann var kominn í mjög þægi-
lega stöðu eftir tvo hringi en mátti
síðan hafa sig allan við að halda for-
ystunni. Kínverjinn Lian Wen-
Chong varð í öðru sæti, höggi á eftir
Poulter og þar á eftir komu þeir
Scott Hend frá Ástralíu og Adam
Scott átta höggum undir pari.
Annar enskur kylfingur, Ross Fis-her, hrósaði sigri á golfvell-
inum um helgina, en hann sigraði á
Volvo heimsmótinu í holukeppni.
Hann lagði Anthony Kim frá Banda-
ríkjunum í úrslitaleiknum 4/3. Fis-
her tryggði sér sæti í úrslitunum
með því að leggja Angel Cabrera á
laugardaginn í umspili. Í gær lék
hann eins og engill og hafði und-
irtökin allan tímann. Robert Allenby
varð í þriðja sæti, vann Cabrera á
nítjándu holunni.
Suh Bo-Mi frá Suður-Kóreu sigr-aði nokkuð óvænt á Suzhou
Taihu kvennamótinu í Kína um
helgina, en mótið er hluti af Evr-
ópumótaröðinni. Hún lék á 6 högg-
um undir pari, einu höggi betur en
franska stúlkan Gwladys Nocere, en
tvö högg voru dæmd af henni í upp-
hafi móts þar sem hún kom tveimur
mínútum of seint á fyrsta teig á opn-
unardegi mótsins. Bo-Mi tryggði sér
með sigrinum sæti á Evrópumóta-
röðinni næstu þrjú árin.
Dagur Sig-urðsson og
lærisveinar hans
í austurríska
karlalandsliðinu í
handknattleik
sigruðu á fjög-
urra þjóða móti
sem haldið var í
Austurríki um
helgina. Fyrst lagði liðið Slóveníu
33:31, síðan Sviss 26:24 en tapaði síð-
an í gær 33:35 fyrir Úkraínu. Þau
úrslit breyta því ekki að Austurríki
sigraði á þessu æfingamóti sínu fyrir
EM sem fer fram þar í landi eftir
áramótin.
Pálmi Guðlaugsson gerði sér lítiðfyrir og setti þrjú Íslandsmet í
S6 flokki fatlaðra á haustmóti Fjöln-
is í sundi um helgina. Pálmi synti 50
metra baksund á 49,35 sekúndum og
bætti sitt gamla met um 65/100 úr
sekúndu. Hann synti svo 50 metra
skriðsund á 37,67 sekúndum og
bætti sitt fyrra met um 72/100 úr
sekúndu og loks setti hann nýtt Ís-
landsmet í 50 metra flugsundi þegar
hann kom í mark á 44,33 sekúndum
en hann átti best 45,46 sekúndur.
Hlé var gert áleik San
Antonio Spurs og
Sacramento
Kings í NBA-
deildinni í körfu-
knattleik aðfara-
nótt sunnudags
þar sem leð-
urblaka flögraði
um í keppnishöllinni og truflaði leik-
menn. Argentínumaðurinn Manu
Ginobili sýndi að hann hræðist ekki
leðurblökur og sló hann leðurblök-
una niður með vinstri og leikurinn
gat því haldið áfram. Leikmenn
beggja liða klöppuðu Argent-
ínumanninum lof í lófa og áhorf-
endur einnig. San Antonio sigraði í
leiknum með 113 stigum gegn 94 og
gerði Ginobili 13 stig.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Björn Björnsson
sport@mbl.is
KARL Jónsson, þjálfari Tindastóls, var ánægður
eftir að lið hans hafði lagt Breiðablik, 66:52, og þar
með fengið sín fyrstu stig í Iceland Express-deild
karla. „Ég er alltaf ánægður með sigur, við gerðum
það sem við ætluðum okkur; spiluðum góða vörn.
Við erum að taka inn nýjan mann, og það þarf meira
en einn eða tvo leiki til að hann komist vel inn í okk-
ar leik og axli það hlutverk sem ég ætla honum hér.
Vörnin var góð en sóknarleikurinn hikstaði svolít-
ið,“ sagði Karl, sem augsýnilega var létt yfir fyrstu
stigum Tindastólsliðsins á leiktíðinni.
Það var auðséð þegar í byrjun að um botnbaráttu
var að ræða og sjálfstraust beggja liða var í lægri
mörkunum. Heimamenn náðu þó fljótlega undirtök-
unum, og héldu þeim til loka, en
gestirnir voru aldrei langt und-
an.
Í liði Tindastóls var Michael
Giovacchini besti maðurinn en
Svavar Birgisson og Amani Bin
Daanish börðust vel, sérstaklega
í vörninni, en Bin Daanish er
sannarlega ekki besta vítaskytta
deildarinnar. Axel Kárason,
Helgi Rafn, Helgi Freyr og Frið-
rik Hreinsson voru langt frá sínu
besta.
Í liði Breiðabliks var John Davis besti maður, en
virtist að niðurlotum kominn í leikslok. Þá áttu
Hjalti Friðriksson og Ágúst Angantýsson nokkuð
góða spretti.
Loksins náðu Tindastólsmenn í stig
Karl
Jónsson
krýndur heimsmeistari og lið
hans, Brown, sigraði í keppni
bílasmiða. Sebastian Vettel
varð í öðru sæti í stigakeppn-
inni, 11 stigum á eftir Button
og Red Bull, liðið sem Vettel
keppir fyrir, endaði í öðru sæti
bílasmiða.
„Ef við drögum vertíðina
saman, þá var gengið upp og
niður. Við höfum verið mjög
öflugir á seinni helmingnum,
fjórði tvöfaldi sigur Red Bull í dag. Þetta var
fullkominn endir á keppnistímabilinu, á toppn-
um,“ sagði Vettel og sagðist vonast til að næsta
keppnistímabil yrði jafn skemmtilegt og það sem
nú er nýlokið. skuli@mbl.is
ed Bull-liðinu
Sebastian
Vettel
Stefán Stefánsson
mbl.is
EIÐHYLTINGAR brotlentu ræki-
þegar þeir mættu Stjörnunni í
naraháskólanum í gærkvöldi –
u með tíu stiga forskot í byrjun
ða leikhluta en steinsofnuðu á verð-
m þegar Stjörnumenn á átta mín-
m skoruðu 21 stig á móti tveimur
nnu síðan 92:83.
ón Arnar Ingvarsson þjálfari ÍR
svekktur eftir leikinn. „Þetta var
ferlega svekkjandi. Við áttum góða
kafla þegar leikurinn var eins og við
vildum hafa hann en misstum samt
einbeitinguna á köflum. Okkur tókst
að halda Justin Shouse í skefjum lengi
vel en svo losnaði hann aðeins úr beisl-
inu og afgreiddi leikinn með nokkrum
svakalegum körfum í seinni hálfleik,“
sagði Jón Arnar. Nemanja Sovic lét til
sín taka í byrjun því Hreggviður
Magnússon var í strangri gæslu og
skoraði sín fyrstu stig í seinni hálfleik
en tók þó 16 fráköst og varði tvö skot.
Hljóðið var allt annað í þjálfara
Stjörnunnar, Teiti Örlygssyni, eftir
leikinn. „Ég er hrikalega ánægður, því
það er ekkert hætt þó við séum með
þunnan hóp og í villuvandræðum. Við
hittum reyndar illa í heildina en varn-
arleikurinn skipti sköpum í lokin þegar
mínir menn voru óhræddir við að láta
ÍR-inga skjóta og taka ákvarðanir sem
þeir höfðu ekki gert allan leikinn, svo
að þeir fóru aðeins úr jafnvægi á með-
an við gátum lagt boltann í körfuna
hinum megin, en leikurinn vannst þó á
góðum varnarleik. Okkur hefur gengið
vonum framar og ég er sérstaklega
ánægður með hvað strákarnir eru á
jörðinni og þyrstir sífellt í meira. Við
unnum titil í fyrra og þá fundu menn
gleðina í þessu ásamt sjálfstrausti sem
til þarf, en svo er þetta bara dugnaður
og við trúum á leikkerfin okkar,“ sagði
Teitur. Justin var vandlega gætt í upp-
hafi og hann skoraði aðeins 9 stig fyrir
hlé en fór þá á flug og stigin urðu 37
áður en yfir lauk auk þess að hann tók
flest fráköst Stjörnunnar, 10 alls.
Morgunblaðið/Golli
ður Justin Shouse á fleygiferð í áttina að körfu ÍR-ingar í leiknum í gærkvöld.
Shouse losnaði úr beislinu og afgreiddi ÍR
Eftir Skúla Sigurðsson
sport@mbl.is
LEIKURINN lofaði vissulega góðu í upphafi þar sem bæði
lið skoruðu grimmt og hraðinn í leiknum var gríðarlega mik-
ill. Njarðvíkingar beittu pressuvörn framan af og duttu svo í
svæðisvörn. En skyttur KR þökkuðu fyrir sig og voru sjóð-
heitar og hjá Njarðvíkingum var Guðmundur Jónsson í mikl-
um ham í upphafi leiks og sá nánast upp á eigin spýtur um að
skora og halda í við KR-inga.
Leikurinn var hnífjafn allt þangað til í síðasta leikhlutanum
og þá var það Jóhann Árni Ólafsson leikmaður Njarðvíkinga
sem reyndist liði sínu svo sannarlega vel á lokasprettinum.
Jóhann skoraði 14 stig í síðasta leikhlutanum og má segja að
kappinn, sem hafði framan af haft hægt um sig, hafi unnið
leikinn fyrir heimamenn.
„Góð vörn okkar í seinni hálfleik skóp þennan sigur hjá
okkur. Þeir lenda í tómum vandræðum þegar við loksins
náum að spila okkar varnarleik. Þeir ná að skora mikið á okk-
ur í fyrri hálfleik en við löguðum aðeins til í okkar leik og þá
var annað uppá teningnum. Hvað mig varðar þá er mér slétt
sama hvaðan gott kemur. Gummi var að brillera í fyrri hálf-
leik og svo náði ég að komast í gang í þeim seinni. Það er fullt
af mönnum í þessu liði sem geta skorað en þegar öllu er á
botninn hvolft þá er það sigurinn sem skiptir máli,“ sagði Jó-
hann Ólafsson kampakátur í leikslok.
Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, verður seint talinn vinsæl-
asti leikmaðurinn í Ljónagryfjunni þegar hann kemur í heim-
sókn. „Við ætluðum okkur að stoppa þeirra helstu skorara frá
því er við mættum þeim síðast. Það tókst svona upp að vissu
marki. Vörnin hjá okkur var alveg í lagi þannig séð. En sókn-
arlega séð vorum við ekki að rúlla nægilega vel okkar
áherslum. Við fórum of mikið út úr kerfunum okkar og að
reyna einn á einn og það kann aldrei góðri lukku að stýra. Það
var mikið af villum dæmt hér í kvöld og því nær leikurinn
aldrei neinu flæði, í það minnsta af okkar hálfu. Það góða sem
við tökum úr þessu er að við höldum Njarðvík í 76 stigum hér
á þeirra heimavelli sem er bara allt í lagi,“ sagði fyrirliði KR
sem lofar hörkuleik á föstudag þegar KR-ingar mæta aftur í
Njarðvík í 32 liða úrslitum bikarkeppninnar.
„Slétt sama
hvaðan gott
kemur“
Njarðvík vann KR í toppslag
„Það er ákveðin varnartaktík sem ég ætla að nota í þessum
leik. Hún mun ganga upp og við munum vinna leikinn,“ sagði
Sigurður Ingimundarson þjálfari Njarðvíkinga fyrir leik sinna
manna gegn KR í Iceland Express deildinni í gærkvöldi. Njarð-
víkingar sigruðu 76:68 líkt og Sigurður lofaði. Eftir leik við-
urkenndi hann að taktíkin hefði ekki virkað alveg eins og
hann ætlaði sér en sigurinn var góður. Hið alíslenska lið
Njarðvíkinga trónir nú á toppi deildarinnar taplaust eftir
fimm umferðir.