Organistablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 22
Organistablaðið
Útg. Félag íslenskra organleikara
Formaður: Kristján Sigtryggsson, gjaldkeri: Orthulf Prunner,
ritari: Glúmur Gylfason
Afgreiöslumaðurblaðsins: Þorvaldur Björnsson,
Efstasundi 37, R.
Prentað í Borgarprent
Útgáfu önnuðust: Kristján Sigtryggsson ábm.
Páll Halldórsson og Páll Kr. Pálsson
Þegar Rubinstein var í París var hann svo mikill samkvæmishestur að honum
gafst naumur timi til æfinga. Þess vegna gaf hann þjóni sínum ströng fyrirmæli um
að láta engan ónáða sig. Þegar svo gestur barði að dyrum skömmu síðar sagði
þjónninn að meistarinn væri ekki heima.
„Ég heyri að hann er að spila", sagði gesturinn.
„Nei," sagði þjónninn, „það er stofustúlkan að þurrka af.“
Lizzt lék nýjustu tónsmíð sína fyrir Rossini.
„Þetta er marz, saminn við andlát Meyerbeers", sagði hann.
„Ágætt, Franz", sagði Rossini, „en hefði ekki verið ákjósanlegra að þú hefðir dáið
en Meyerbeer samið marzinn?"
Síbelíus huggaði eitt sinn ungt tónskáld, sem hafði fengið slæma dóma, með
þessum orðum: „Ungi maður, mundu það að hvergi í víðri veröld finnst sú borg
þar sem reist hefir verið höggmynd af músíkgagnrýnanda".
Músík skilgreind:
„Hún er eini munaður okkar mannanna án lasta" (Samuet Johnson)
„Hún er hrosshár og kattargarnir". (Shakespeare).
„Hún er Parnamussus fátækiinganna" (Emerson).
„Ráð mitt til þeirra, sem hyggjast sækja fyrirlestur um músík, er:
Gerið það ekki, farið heldur á tónieika".
Sýnkópa er það, þegar lögð er þung áherzla á nótu, sem ekki er.
22 ORGANISTABLAÐIÐ