Fréttablaðið - 08.12.2011, Side 33

Fréttablaðið - 08.12.2011, Side 33
FIMMTUDAGUR 8. desember 2011 33 Besti flokkurinn og Samfylk-ingin hafa einbeitt sér sér- staklega að því að hræra í leik- skólakerfi borgarinnar frá því þau tóku við stjórn í fyrra. Eng- inn málaflokkur á að vera undan- skilinn hagræðingu, en reynslan hefur sýnt að hagræðing fylgir fáum aðgerðum meirihlutans. Þeim, sem þekkja til leikskóla- starfs í borginni, ofbýður hvað stefnuleysið er algjört. Stefnuleysið lýsir sér í ákvörð- unum án markmiða og því að mikilvægum spurningum er ekki svarað. Spurningum eins og hvort foreldrar ættu að greiða sam- bærileg gjöld fyrir leikskólapláss og dagforeldrapláss. Í dag er allt að 300% munur á þessum tveimur þjónustuleiðum. Ekki fást heldur svör við því hvaða stefnu eigi að fylgja í matarmálum leikskóla- barna en þess má geta að leik- skólabörnum er gefið að borða fyrir 232 kr. á dag. Sá rétti upp hönd sem veit hvernig á að lækka þann kostnað. Hagræðing sem engu skilar Sjálfstætt leikskólasvið hefur verið bitbein á milli flokka í borg- arstjórn en meirihlutinn varpaði orðinu leikskóli fyrir róða í sumar þegar leikskólasvið hvarf inn í nýtt skóla- og frístundasvið. Í kjölfarið létu af störfum öflugir fagmenn í yfirstjórn leikskóla borgarinnar. Nú hallar verulega á leikskólana og breytingarnar hafa reynst mikil blóðtaka fyrir þá. Með öllu er óljóst hvaða fjármunir sparast með þessari leikfimi. Á sama tíma voru 24 leikskólar sameinaðir í ellefu, þrátt fyrir hörð mótmæli. Stjórn félags leik- skólakennara fordæmdi vinnu- brögðin og mótmælti harðlega. Vinnubrögðin voru hroðvirknis- leg og sameiningar settar af stað án nokkurs fyrirvara. Sem betur fer eru stjórnendur sameinuðu skólanna með mikla reynslu og kalla ekki allt ömmu sína. Upp- ákomurnar í kjölfarið hafa verið flóknar og margir skólanna glíma við að sameina gjörólíkar áherslur og skipulag. Það hlýtur að vera þreytandi að vera leik- skólakennari og heyra stjórn- málamenn hrósa starfi sínu í hástert en fá síðan vanhugsaðar breytingar yfir sig með offorsi. Og hver er afraksturinn af þess- um umbyltingum? Eftir að fag- sviðið neyddist til að skila afkomu- viðvörun var ljóst að niður staðan var sú sem varað hafði verið við. Hagræðingin reyndist engin fyrir grunnskóla og einungis 0,7% af rekstri leikskóla. Að auki verður að hafa í huga að ekki hafa verið gefnar upplýsingar um kostnaðinn sem fallið hefur til vegna breyt- inganna. Getnaðarvarnir til bjargar? Með réttu var mikill þungi settur í að koma öllum börnum fæddum 2009 inn á leikskóla á þessu ári en sá árgangur er stór. Þessu fylgdi mikið álag og þýddi að stækka þurfti marga leikskóla á sama tíma og verið var að sameina, hagræða og leggja niður leikskólasvið. Þjónustutryggingin sem hjálpaði mörgum var lögð niður og ekkert gert til að lækka greiðslur foreldra fyrir dagforeldraþjónustu þrátt fyrir að kostnaður við hvert rými hjá dagforeldri sé mun minni en við leikskólapláss. Síðar kom í ljós að margir skólar höfðu bæði pláss og starfsfólk til að bjóða að auki yngri börnum, fæddum 2010, pláss á þessu ári. Meirihlutinn hafnaði að taka þau börn inn og enn hafa ekki fengist skýringar á þeim skrípaleik sem átti sér stað í fjöl- miðlum í kjölfar frétta um þessi lausu pláss. Fulltrúar Besta flokks- ins komu fram og sögðu ranglega að alltaf væru geymdir tugir plássa til þess að mæta óvæntum uppákomum! Borgarstjóri sagði að börn fædd 2010 yrðu ekki inn- rituð fyrr en á næsta ári og nefndi í furðulegri ræðu að það væri mjög dýrt að eiga börn og benti „fólki á þann möguleika að nota smokk- inn, getnaðarvarnir og ófrjósemis- aðgerðir“. Ég get fullvissað Jón Gnarr um að þessi málaflokkur er ekkert grín og að það er ekki til- viljun að málshátturinn „lengi býr að fyrstu gerð“ varð til. Meirihlutinn hækkar laun með því að lækka laun Rúsínan í pylsuendanum er svo launalækkun leikskólakennara. Fyrir stuttu kom formaður borgar ráðs fram og varði ákvörð- un borgarinnar um að leggja af svokallað neysluhlé leikskóla- kennara en starfsmenn njóta ekki hefðbundins matarhlés frá vinnu. Dagur B. Eggertsson fór með rangt mál þegar hann sagði að kjarasamningar fælu í sér að greiðslur fyrir neysluhlé færðust inn í grunnlaun í áföngum. Ekk- ert slíkt er í nýjum kjarasamningi og með ólíkindum að einn æðsti stjórnandi borgarinnar segi að fjármagna þurfi betri kjör leik- skólakennara með því að rýra kjör þeirra. Skýrt stefnuleysi Vandræðagangur meirihlutans í leikskólamálum kristallaðist í því að daginn eftir skýringar á launalækkunum sendi borgin frá sér yfirlýsingu um að innrita ætti á næstu dögum börn fædd 2010, réttum tveimur vikum eftir að borgarstjóri sagðist ekkert geta gert annað en að bjóða upp á smokka fyrir foreldra. Veit ein- hver hvert þessi meirihluti stefnir með leikskólastarf í borginni? Stefnuleysið lýsir sér í ákvörðunum án mark- miða og því að mikilvægum spurningum er ekki svarað. Spurningum eins og hvort foreldrar ættu að greiða sambærileg gjöld fyrir leikskólapláss og dag- foreldrapláss. Í dag er allt að 300% munur á þessum tveimur þjónustuleiðum. Í DAG Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Lélegir brandarar Bjart er yfir Betlehem var yfir-skrift ágætrar greinar eftir Svein Rúnar Hauksson sem birt- ist í Fréttablaðinu 29. nóvember. Hann hefur verið óþreytandi að benda á óréttlætið sem Palestínu menn á her- teknu svæðunum eru beittir og ekki síður þeir sem eru landflótta og ríkisfangslausir. Nú á aðventunni syngja börn og fullorðnir saman í kirkjum og á heimilum: „Bjart er yfir Betle- hem …“ Eru það ekki öfugmæli? Jólafrásögnin er falleg og einföld. Yfir henni ríkir ævintýrablær. Við túlkum frásögnina í tali og tónum. Sálm- ar jólanna eru tilraun skáldanna til að túlka boðskapinn. Sú Betlehem sem við syngjum um var hernumin þegar barnið fæddist fyrir um 2.000 árum. Borg- in er einnig hernumin í dag. Var og er bjart yfir Betlehem? Bjarminn yfir Betlehem er táknrænn. Hann er tákn um von. Vonin snýst um frelsi, frið og farsæld. Mikilvægur áfangi í sjálfstæðis- baráttu okkar var þegar Ísland varð fullvalda ríki 1. desember 1918. Undanfarin ár hefur minna farið fyrir þessum degi sem áður var einn af stóru hátíðisdögunum. Við þurfum að þekkja rætur okkar en það eru innan við 100 ár síðan við vorum þegnar dönsku krún- unnar. Þetta þurfa börnin okkar að vita. Fyrsti desember er dagur sem vert er að gefa gaum og nota til þess að fræða og rifja upp. Löng hefð er fyrir hátíðahöldum í Háskóla Íslands og sá siður var í heiðri hafður einnig þetta árið. Liður í hátíðahöldunum er guðs- þjónusta í umsjá stúdenta í guð- fræði- og trúarbragðafræðideild. Lokasálmurinn í ár eins og svo oft áður var um ögrum skorið land „sem á brjóstum borið og blessað hefur mig“. Eru það hugsanlega öfugmæli eftir Hrun að halda því fram að landið hafi borið okkur á brjóstum og blessað? Þarna reynir á okkur. Við megum ekki missa vonina, bjart- sýnina og trúna. En við eigum að vera raunsæ. Í sálminum um við- burðina á Betlehemsvöllum er gerð tilraun til að lýsa atviki sem átti eftir að hafa grundvallandi áhrif á mikinn hluta heimsbyggð- arinnar kynslóð eftir kynslóð. Feg- urð sögunnar snert- ir okkur sem erum kristin og við viljum fræða börnin okkar um atburði jólanna. Okkur ber líka skylda til að uppfræða þau um ástandið sem ríkir í Betlehem um þessi jól. Við megum ekki láta okkur standa á sama um óhugnaðinn sem þar á sér stað. Við eigum að sýna ábyrgð. Það gildir einn- ig um landið okkar. Það er svo margt sem við eigum í því. Gjöful fiskimið, stór- brotna náttúru, vatn og orku. Við eigum að sjá gæðin í því sem landið okkar gefur. Fræðum börn- in okkar, kennum þeim virðingu í umgengni, verndun og nýtingu auðæfanna. Við skulum vera með- vituð um bakgrunninn. Verum vakandi fyrir líðan og ástandi systkina okkar á fjarlægum slóð- um. Viðurkennum skipbrot sam- félagsins sem hafði alla burði til að vera fyrirmyndarsamfélag jöfnuðar og velmegunar. Leitum jafnvægis milli bláeygðrar bjart- sýni og niður brjótandi svartsýni. Verum þakklát en raunsæ. Syngjum Bjart er yfir Betlehem og Ísland ögrum skorið meðvituð um samhengið. Megi frelsi, friður og farsæld vera einkunnarorð aðventunnar. Ísland ögrum skorið Samfélagsmál Anna Sigríður Pálsdóttir Arnfríður Guðmundsdóttir Baldur Kristjánsson Hjalti Hugason Pétur Pétursson Sólveig Anna Bóasdóttir Sigrún Óskarsdóttir Sigurður Árni Þórðarson guðfræðingar Leitum jafn- vægis milli bláeygðrar bjartsýni og niðurbrjótandi svartsýni. Verum þakklát en raunsæ. * Gildir á meðan birgðir endast. Þú kemst í samband við jólaandann Þín ánægja er okkar markmið vodafone.is Frábær tilboð á snjöllum símum Samsung Galaxy W 64.990 kr. staðgreitt eða 5.416 kr. á mánuði í 12 mánuði Fjölskyldu ALIAS fylgir * LG Optimus Hub 39.990 kr. staðgreitt eða 3.333 kr. á mánuði í 12 mánuði Fjölskyldu ALIAS fylgir *og 2.000 kr. inneign á Tónlist.is i i i i .
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.