Fréttablaðið - 08.12.2011, Síða 42

Fréttablaðið - 08.12.2011, Síða 42
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR42 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Haraldur Ragnarsson Stóragerði 26, sem lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð á Vífilsstöðum miðvikudaginn 30. nóvember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Hulda Haraldsdóttir Pétur Hans Baldursson Ragnar Haraldsson Birna Garðarsdóttir Ingibjörg Haraldsdóttir Hallgrímur Sigurðsson afa- og langafabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þorgerður Magnúsdóttir Mýrarvegi 113, lést á Dvalarheimilinu Hlíð 29. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 9. desember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð, Akureyri. Ingólfur Sigurðsson Elínborg Ingólfsdóttir Magnús Þórðarson Magnús Ingólfsson Sólveig Erlendsdóttir Ragnhildur Ingólfsdóttir Samúel Jóhannsson Þórdís Ingólfsdóttir Sölvi Ingólfsson Guðrún Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Svanhildar Snæbjarnardóttur áður til heimilis að Hellu, Hellissandi. Gunnar Már Kristófersson Auður Jónsdóttir Steinunn J. Kristófersdóttir Lúðvík Lúðvíksson Sigurjón Kristófersson Sigurlaug Hauksdóttir Snæbjörn Kristófersson Kristín S. Karlsdóttir Svanur K. Kristófersson Anna Bára Gunnarsdóttir Þröstur Kristófersson Sigurbjörg E. Þráinsdóttir Kristinn Valur Kristófersson Guðríður A. Ingólfsdóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. timamot@frettabladid.is Sjö manns voru handteknir í Alþingishúsinu þennan dag árið 2008, eftir að um þrjátíu mótmælendum var meinaður aðgangur að þingpöllum á þingfundi. Tveir menn komust fram hjá þingvörðum og á pallana og stöðvaðist starfsemi þingsins þegar þeir hófu hróp og köll á borð við „drullið ykkur út“ og „þetta hús gegnir ekki hlutverki sínu lengur“. Til ryskinga kom í stiga og anddyri þinghússins þegar vísa átti hópnum á dyr. Einn þingvörður meiddist þegar hann lenti utan í ofni í húsinu. Tveir af hinum handteknu voru sakaðir um að beita ofbeldi en öllum sem handteknir voru var gefið að sök að hafa ekki hlýtt tilmælum lög- reglu. Mótmælendur töldu aðgerðir lögreglunnar harkalegar. ÞETTA GERÐIST: 8. DESEMBER 2008 Óeirðir brutust út í Alþingishúsinu SINÉAD O’CONNOR söngkona er 45 ára í dag. „Að tjá tilfinningar sínar er að grafa eigin gröf.“ Merkisatburðir 1966 Gríska ferjan Heraklion sekkur í stormi á Eyjahafi og um 200 farast. 1971 Undirritað er samkomulag um stjórnmálasamband milli Íslands og Kína. 1974 Grískir kjósendur hafna því að taka aftur upp konungs- veldi. 1987 Samtökin Ný dögun um sorg og sorgarviðbrögð eru stofnuð. 1991 Rúmenar samþykkja nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæða- greiðslu. 2006 Leikjatölvan Wii kemur út í Evrópu. Sigrún Eldjárn, rithöfundur og myndlistarmaður, hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2011 fyrir helgi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Sigrúnu verð- launin við hátíðlega athöfn, áletraðan verðlaunagrip úr áli og eina milljón króna. „Jú, það er ákaflega mikils virði að vita að fólk tekur eftir og kann að meta það sem maður er að gera, þegar maður er að bögglast í sínu horni við það að gera bók- menntir fyrir börn,“ segir Sigrún. „Það er dýrmætt að fá staðfestingu á því að maður sé að gera eitthvað af viti.“ Barnabækur Sigrúnar telja á fimmta tug og Sigrún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Fyrir þremur árum var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar barnamenning- ar og þá hefur hún meðal annars hlotið Barnabókaverð- laun Reykjavíkurborgar og skólamálaráðs, Barnabóka- verðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur, barnabókaverðlaunin Sögustein, Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin og tilnefningu til H.C. Andersen-verðlauna fyrir ritstörf og myndskreytingar. Auk þess tilnefningu til ALMA-verð- launanna sænsku árin 2010 og 2011. Þau verðlaun eru kennd við Astrid Lindgren og eru einhver þau veglegustu í heimi. Rithöfundarferill Sigrúnar nær yfir 30 ár og því nær- tækt að spyrja hana hvort eitthvað sé breytt í barnabóka- heiminum frá því að hún gaf út sína fyrstu bók. „Það er kannski svolítið meira að gerast í barnabókaútgáfunni og fleiri rithöfundar komnir þar til leiks,“ segir Sigrún og segir það gleðilegt. „Enda afskaplega mikilvægt að börnin lesi, bækur eru með því mikilvægasta sem hægt er að fóðra þau með. Í rauninni er samt ekki svo mikið breytt en lesendahópurinn endurnýjast reglulega og það er alltaf gaman að fá viðbrögð frá honum.“ Sigrún segir börn mjög hreinskilna lesendur. „Þau hika ekki við að láta mann vita séu þau ánægð, nú eða kvarta ef það er eitthvað sem þau eru ekki sátt við en ég hef nú ekki oft lent í því. En gjarnan fær maður bréf og myndir í pósti. Ég hef stundum komið í skóla þar sem þau eru að lesa bækurnar mínar og þá þekki ég persónurnar mínar í barnateikningunum sem þau hafa gert á sinn hátt.“ En stendur eitthvert verk Sigrúnu hjarta næst? „Kugg- ur, Málfríður og mamma Málfríðar standa mér alltaf svo- lítið nálægt enda hafa þau vinirnir fylgt mér lengi. En það sem ég er að fást við akkúrat núna stendur mér hvað næst því ég er stödd í miðjum þríleik, þar sem Náttúrugripa- safnið, önnur bókin, kom út núna fyrir jólin. Ég er komin vel á veg með þá þriðju sem vonandi kemur út að ári. Ég hef gert nokkrar trílógíur og finnst það skemmtilegt form.“ Sigrúnu er það ofarlega í huga að börn lesi bækur og að foreldrar haldi lestrinum að þeim. „Það skiptir svo miklu máli upp á framtíðina að börn venjist því að lesa sér til ánægju því ef þau temja sér það ekki á þessum mikil- vægu árum er ekki víst að þau geri það þegar þau verða fullorðin. Og hverjir eiga þá að lesa hinar svokölluðu alvörubókmenntir?“ juliam@frettabladid.is SIGRÚN ELDJÁRN: HANDHAFI ÍSLENSKU BJARTSÝNISVERÐLAUNANNA 2011 Mikilvægt að börn venjist því að lesa sér til ánægju BÖRN HREINSKILNIR LESENDUR „Þau hika ekki við að láta mann vita séu þau ánægð, nú eða kvarta ef það er eitthvað sem þau eru ekki sátt við en ég hef nú ekki oft lent í því. En gjarnan fær maður bréf og myndir í pósti,“ segir Sigrún Eldjárn, rithöfundur og myndlistarmaður, sem hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 45 Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Dóra Tómasdóttir lést á líknardeild Landspítalans á Landakoti 3. desember síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 13. desember kl. 15.00. Sölvi Eysteinsson Davíð Sölvason Linda Björk Ólafsdóttir Tómas Sölvason Rakel Davíðsdóttir Hrafn Harðarson Sölvi Davíðsson Sara Davíðsdóttir María Dóra Hrafnsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Snæfríður Helgadóttir Boðagerði 5, Kópaskeri, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík þriðjudaginn 29. nóvember. Útförin fer fram frá Skinnastaðarkirkju laugardaginn 10. desember kl. 14.00. Björn Jónsson Jón Björnsson Nína Þórsdóttir Kristín Alda Björnsdóttir Helgi Viðar Björnsson Erla Sólveig Kristinsdóttir Arna Björnsdóttir Sven Plasgård barnabörn og barnabarnabarn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.