Ný saga - 01.01.1987, Side 97

Ný saga - 01.01.1987, Side 97
AÐ VITA SANN A SOGUNUM og hneyksli um 1200 og sömu- leiðis sé jafnan leitað sam- þykkis kvenna fyrir ráðahag í sögunum. Hvorugt segir Jochens að fái staðist, frillu- líf i hljóti að hafa verið alltítt á 10. og 11. öld en lítil líkindi verið til að konur hafi al- mennt verið spurðar hverjum þær vildu giftast á þessum öldum enda enn verið erfitt á 13. öld og lengur að afla þeirri aðferð fylgis og barðist þó kirkjan fyrir henni.38 Varð- andi þetta er helst athugandi að rétt sé að gera greinarmun á siðferðilegum áróðri annars vegar og félagslegum kerfum hins vegar, höfundar íslend- ingasagna hafi orðið að segja frá lagaþrætum og deilum í samræmi við það kerfi sem tíðkaðist á 12. öld og fyrr, ef þeir vildu láta trúa sér, en hafi hins vegar frekar getað skáldað urn það hvernig hátt- að hafi verið um siðferðileg efni á 10. öld, treyst því að menn hefðu ekki skýra vitn- eskju um þau. Svipað má segja um svonefndar „sterkar konur", þær sem voru fram- takssamar og herskáar og eru margar í Islendingasögunum en fáar í samtímasögum.39 Þær eru þó engan veginn óraunverulegar og sóma sér vel í hetjuheimi sagnanna. Samantekt Telja má víst að Jesse Byock hafi dregið fram mikilvægan félagslegan þátt betur og skýrar en áður hefur verið gert al því að hann notar Is- lendingasögur sem heimildir með nýjum hætti. Athuganir Millers, Bagges og Durren- bergers á hinum félagslegu þáttum virðast styðja niður- stöður Byocks. Athuganir Odners, Lund- ens og Millers benda til að ís- lendingasögur geti verið mikilvægar heimildir um hagkerfi á Islandi fyrir 1200. Hvað svo? Hvað geta sagnfræðingar lært af mannfræðingum um notkun Islendingasagna? Mannfræðingar munu telja að ekki þurfi frekari vitna við, finnist samsvaranir í íslend- ingasögum við niðurstöður mannfræði um frumstæð þjóðfélög eða þá að öðrum kosti ef fram koma skýr kerfi og mynstur þótt þau eigi sér ekki auðsæjar hliðstæður í öðrum samfélögum. Þetta er mikilvægt íhugunarefni sagn- fræðingum og er athugandi hvort slíkar hliðstæður og samsvaranir sem hér er lýst geti uppfyllt kröfur í sagn- fræði um tvær óháðar heim- ildir. Er reyndar trúlegt að margir sagnfræðingar verði hugsi þegar þeir sjá hvernig mannfræðingar og surnir sporgöngumenn þeirra bera hiklaust saman frásagnarat- riði í íslendingasögum við hlið- stæður sem þeir finna td. á Korsíku eða í Albaníu á 19. og 20. öld. Á hinn bóginn eru mannfræðingar vanir að kanna samfélög á vettvangi; þeim er því nokkuð framandi að nota ritaðar heimildir eins og íslendingasögur og eru háðir því að geta sett þær í félagslegt og sögulegt sam- hengi. Mannfræðingar og miðaldasagnfræðingar ættu því að geta átt gagnlegt sam- starf. Tilvísanir: l.Jónas Kristjánsson: ,,The Roots of the Sagas". Sagna- skemmtun. Studies in Honour of Hermann Pálsson (1986), 187. 2. Lindow, John: „The Sagas as Ethnographic Documents". Alþjóðlegt fornsagnaþing. Fyrirlestrar I (1973), 9-10. Óskar Halldórsson: ,, ,,ls- lenski skólinn" og Hrafn- kelssaga". Tímarit Máls og menningar 39 (1978). 3. Meulengracht Sörensen, Preben: Norrönt nid. Forestill- ingerom den umyndige mand i de islandske sagaer (1980), 12-13. 4. Óskar Halldórsson, tilv. rit, 324. 5. Foote, Peter and David M. Wil- son: The Viking Achievement. The Society and Culture of Early Medieval Scandinavia (1970), xxiv-xxv. 6. Franfois-Xavier Dillmann sem nýlega varði doktorsrit- gerð urn galdur (magi) í ís- lendingasögunum staðfestir þetta munnlega en segir þó að samanburður við finnskar venjur sýni líka allmikinn mun. 7. Björn Þorsteinsson: íslensk miðaldasaga (1978), 72. Durrenberger, E. Paul: „Chiefly Consumption in Commonwealth Iceland" (1986), 11 (handritj. 8. Turner, VictorW: ,,An Anthro- pological Approach to the Ice- landicSaga". The Translation of Culture. Essays to E. E. Evans-Pritchard (1971), 358. Textinn er þannig á ensku: ,,My own view is that there were so many major continu- ities between the earlier and later years of the Common- wealth, at the basic levels of kinship and territorial organization, mode of subsistence, forms of adjudi- cation and arbitration, and norms governing relations between individuals and groups, that sagas treating of both the earlier and later periods can be regarded equally as models of and for 95
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.