Ný saga - 01.01.1989, Page 4

Ný saga - 01.01.1989, Page 4
NÝ SAGA. Tímarit Sögufélags 3 árg. 1989. Útgefandi Sögufélag Garðastræti 13 b 101 Reykjavík s. 1 46 20 Pósthólf 1078 R 121 Prentað á íslandi 1989- ISSN 1010-8351. Ritstjórn: Már Jónsson og Ragnheiður Mósesdóttir. Umbrot og forsíða: GIH-Auglýsingateiknistofa. Filmuvinna: Offsetþjónustan. Setning: Samsetning. Prentun og bókband: Oddi. Letur: Megninmál: Garamond 9° á 10° fæti. Fyrirsagnir: Garamond 27°. Millifyrirsagnir: Garamond 12°. Heiti höfunda: Helvetica 14°. Myndatextar: Helvetica 8° á 9° fæti. Áhugavakar: Helvetica 8° á 9° fæti. Pappír: Ikonofix, matt, 115 gr. Ný saga kemur út einu sinni á ári. Greinar sem birtast í ritinu má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljós- myndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis viðkomandi höfundar. Sögufélag var stofnað árið 1902. Hlutverk þess er að gefa út hvers konar rit um sagnfræði, einkum sögu íslands, heimildarrit, fræðirit, yfirlits- og kennslubækur og tíma- ritin Sögu og Nýja sögu. Félagsmenn eru þeir sem greiða áskriftarverð tímaritanna, og þeir fá bækur Sögu- félags með 10-20% afslætti af útsöluverði. Þeir sem óska eftir að gerast félagsmenn eða hafa efni fram að færa í tímaritin geta snúið sér til skrifstofú og afgreiðslu Sögu- féiags að Garðastræti 13b. TIL LESENDA: Nýsaga lítur nú dagsins Ijós í þriðja sinn. Markmiðið með útgáf- unni er enn sem áður að kynna nýjar rannsóknir í sagnfræði og búa sagnfræðilegt efni í nýjan búning til að gera það eftirtektar- verðara á hraðfleygri fjölmiðlaöld, þar sem margir berjast um sálir lesenda. Myndefni er hér samofið hinu ritaða máli og er það yfirlýst stefna ritsins að gera myndum hátt undir höfði, enda hefur mikið verið um það rætt að nýta hinn sjónræna þátt betur en gert hefur verið. Nauðsynlegt er að hætta að halda í þá þröng- sýni að góður sagnfræðilegur texti um áhugavert rannsóknar- efni þurfi að standa einn og óstuddur, myndir bæti þar engu við. Auk þess má benda á að myndir eru líka sögulegar heimild- ir og eiga því sjálfstæðan tilverurétt. Loks er ekki hægt að ganga framhjá þeirri staðreynd að skilningarvitunum er ætlað að vinna saman og því ekki nema eðlilegt að tengja saman lesefni og myndefni og gefa Iesanda þannig kost á að mynda úr þeim eina heild. En því er þetta hér til umræðu? Þarf að réttlæta myndanotkun í tímariti um söguleg efni? Ekki er það okkar skoðun en eftir að hafa þurft að leita uppi tugi mynda virðist okkur sem þetta sé jafhvel einn stærsti ásteytingarsteinn í útgáfu sem Nýrrisögu. Sé um að ræða sögulegt efni frá því fyrir ljósmyndaöld er oft ekki um auðugan garð að gresja. Þó er nú hafln skráning lýsinga í handritum á Árnastofnun og er það vel. Mvað ljósmyndasöfn hérlendis varðar, þá eru þau allmörg, bæði í eigu einstakl- inga og opinberra aðila, en hvert sem litið er blasir við sama vandamálið: skráningu er ábótavant, upplýsingar urn mynda- eign eru af skornum skammti og skipulag sums staðar í ólestri. Það verður þó að taka skýrt fram að alls staðar þar sem við höfum leitað mynda höfum við mætt velvilja og hjálpfysi. Allir sem að þessum söfnum standa eru boðnir og búnir að hjálpa, en það eru takmörk fyrir því hverju kannski einn maður getur áorkað þegar leita þarf að fjölda mynda í einu. Nauðsynlegt er að gera starfsemi þessara safna hærra undir höfði en nú er gert. Verði það ekki gert má fara að tala um myndskreytingar í stað myndefnis í sagnfræðileg tímarit. Þá er hætt við að sömu myndir birtist æ ofan í æ og enginn verði neinu bættari við að skoða þær, þó í mismunandi samhengi kunni að vera. Þetta viðhorf kemur einnig fram í þættinum Sjón og saga Hann fjallar að þessu sinni um hvernig megi nota gamlar ljós- myndir til að endurgera sögulegan veruleika íslenska bænda- samfélagsins. Af öðru efni má nefna greinar um siðgæði og kvennamál á ýmsum öldum, fjallað er um hvort frjálshyggjan hafi haldið innreið sína í íslenska bændasamfélagið á 19. öld og hvernig stríðsgróðinn breytti atvinnulífi höfuðborgarinnar. Gunnar Karlsson lýsir hugmyndum sínum um sögubókaritun og hlutverk sögunnar. í Sjónarhól koma fram hugmyndir um skort á sögulegri vitund íslendinga og loks má nefna viðtai við hinn kunna franska sagnfræðing Jacques Le Goff um stöðu sagnfræðinnar í nútímasamfélagi. Engin bréf hafa borist í Póstinn, en vonandi verður hann á sínum stað í næsta árgangi. Ritstjórn 2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.