Ný saga - 01.01.1989, Page 9

Ný saga - 01.01.1989, Page 9
FRELSI ER EKKI SAMA OG FRJALSHYGGJA frelsinu það einnig til foráttu að það yrði til þess að enginn fengist lengur í vistir, þar sem allir kysu hægð sjómennskunn- ar fram yfir daglegt stritið í sveitinni. Slíkt kynni ekki góðri lukku að stýra, vegna þess að við það missti landbúnaðurinn allt vinnuafl sitt, en hann væri og hlyti að verða um ófyrirsjá- anlega framtíð undirstaða ís- lensks atvinnulífs. Af þessum sökum þvertóku þingmenn fyrir það árið 1861 að feta í fótspor Dana og af- nema öll höft á atvinnufrelsinu. Reyndar komu fram tvær ólíkar skoðanir um það hvernig taka bæri á málinu. Meirihluti þing- nefndar vildi afnema flest undanþáguákvæði frá vistar- skyldunni, þar sem það „getur ekki dulist fyrir neinum, sem nokkuð þekkir, í hvert óefni komið er með alla hús- og bú- stjórn þessa lands; sjálfræðið eykst ár frá ári; allir vilja ráða sér sjálfir, en ekki vera öðrum háðir; þetta ástand leiðir bein- línis til þess að eyðileggja bændastéttina... sem er máttar- stólpi landsmanna.“8 Minni- hluti nefndarinnar, og síðar meirihluti þingsins, lagði hins vegar til að slakað yrði á og mönnum gefið leyfi til að kaupa sér lausabréf er þeir höfðu náð 30 ára aldri. Húsmennska yrði bönnuð eftir sem áður nema með leyfi yflrvalda. Niðurstöð- ur þingsins urðu þar með eins konar málamiðlun, rétturinn til frelsis í atvinnumálum var ekki viðurkenndur, en viss undan- komuleið var veitt - í og með til að tryggja undirskrift konungs. Á níunda áratug aldarinnar komu fram algerlega ný viðhorf til lausamennsku á íslandi. Einna skýrast birtust þau í grein eftir Hermann Jónasson rit- stjóra í Búnaðaniti árið 1888 þar sem hann hafnaði algerlega þeim hugmyndum að lausa- menn vendust undantekningar- laust á leti.9 Þvert á móti, þá mælti það einmitt með lausa- mennskunni að hún hvatti menn til ráðdeildar og vinnu- Sú skoðun var viðtekin að lausamennska og húsmennska gerðu einstaklingnum aðeins illt. serni þar sem lausamaðurinn bar ábyrgð á sér sjálfur og vann sem sjálfstæður einstaklingur. Ekki spillti það fyrir að lausa- manninn þurfti aðeins að ráða um skamman tíma á ári þegar hans var þörf, en bóndinn sat ekki uppi með hann þá hluta ársins sem lítil þörf var fyrir að- keypt vinnuafl. Ekki leið á löngu þar til reynt var að setja ný lög samkvæmt þessunt hug- myndum. Ekki fékkst þing- meirihluti fyrir algjöru afnámi vistarskyldunnar árið 1891, en 1893 voru lögin verulega rýmkuð.10 Útbreiddur áhugi á leysingu vistarbands átti sér margar for- sendur. Mörgunt fannst ófrjáls- lyndi íslendinga þjóðinni til skammar og í hróplegu ósam- ræmi við „frelsishjal“ þjóðernis- stefnunnar." Einnig var ekki laust við að „tíðarandinn" væri farinn að segja til sín á íslandi. Þorlákur Guðmundsson í Fífú- hvammi, þingmaður Árnesinga, benti á að bættar samgöngur innanlands, fréttir erlendis frá og bréf frá Vesturförum hefðu Þorlákur Guðmundsson I Fífuhvammi gerði sérgrein fyrir því að hugmyndir um persónulegt frelsi voru að breytast og ekki yrði lengi stætt á því að koma í veg fyrir afnám vistarbandsins. ýtt undir kröfur vinnufólks urn vistarfrelsi. Síðast en ekki síst hefði reynslan kennt mönnum að lausamennskulögin voru þverbrotin hvort eð var og eng- in von til þess að þeim yrði nokkurn tíma framfylgt. 12 Ekki varð vart sama frjáls- lyndis í garð húsmanna og þurrabúðarmanna. Þvert á móti var hert á banni við hús- mennsku á síðustu árum aldar- innar. Að vísu vildu sumir beita sörnu rökum fyrir afnámi hús- mennskuhafta og beitt var gegn vistarskyldunni, en eldri kenn- ingar um spillingu húsmennsk- unnar voru mun lífseigari en kenningar um illsku lausa- mennskunnar.13 Einkennilegt rná virðast að á sama tíma og frjálslyndi og trú á einstaklings- framtakið virtust aukast á einu sviði var slíkum hugmyndunt hafnað á öðru. En tortryggni manna gagnvart húsmönnum átti sér aðrar skýringar. Eins og áður sagði voru þeir almennt giftir og áttu börn. Oft þýddi það sveitarþyngsli. Kvartanir yfir sívaxandi þyrði af fram- færslu fátækra voru eitt vin- sælasta blaðaefni á síðustu ára- tugum aldarinnar og gengu sumir svo langt að fullyrða að landið myndi brátt ganga undir ef svo héldi fram sem horfði. Eitt helsta ráðið til að stemma stigu við þessari þróun var að mati rnargra að koma í veg fyrir húsmennsku - með öðrunt orðum að koma í veg fyrir að verkafólk gæti lifað fjölskyldu- lífi. Hins vegar myndaðist aldrei meirihluti fyrir leið frjálshyggj- unnar til lausnar vandamálsins. Eins og áður sagði boðar frjáls- hyggjan frelsi eiristaklingsins, en urn leið ábyrgð hans á eigin gjörðum. Schierbeck landlækn- ir benti á þessa leið í grein í fsa- fold árið 1889.14 Þar hélt hann því fram að aðalorsök rýrrar framleiðslu á íslandi væri leti og iðjuleysi. Letin væri styrkt af alltof greiðum aðgangi að sveit- arsjóðum, urn leið og frelsi manna væri heft um of. Aukið frjálsræði og afnám þurfa- 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.