Ný saga - 01.01.1989, Síða 11

Ný saga - 01.01.1989, Síða 11
FRELSI ER EKKI SAMA OG FRJÁLSHYGGJA sem vörur streymdu á milli landa og markaðssvæða án haíta yrðu þeir ofan á sem gætu framleitt vöruna ódýrasta. Hinir yrðu að snúa sér að öðru. Mat íslendinga á frjálsri verslun var allt annað. „Ég held það hafi verið tilgangur þjóðarinnar og þinganna hér á landi, bæði 1845 og 1849, að bæta prísa, sér í lagi á innlendum vörum, með því að vilja gjöra verslunina frjálsa," sagði Jón Sigurðsson hreppstjóri í Tandraseli í Mýra- sýslu á þjóðfundi 1851.19 Hann var ekki einn á þeirri skoðun. Versluninni var ekki ætlað að breyta grundvelli íslensks efna- hagslífs, heldur að leiðrétta verð á íslenskum vörum með samkeppni erlendra kaup- manna. Ófrjálslynd stefna íslendinga í verslunarmálum kom vel fram í afstöðunni til innanlandsversl- unar, og þá sérstaklega þess sem kallaðist „landprang" (þ.e. lausaverslun í sveitum). Þingið 1845 tók reyndar frjálslega í þetta mál, enda var það sérstakt áhugamál forystumannsins Jóns Sigurðssonar.20 Fjórum árum síðar þvertók þingið fyrir að verslun yrði leyfð utan verslun- arstaða, slíkt myndi einungis auka brennivínsdrykkju og kaffiþamb. Vantraust bænda á versluninni og áhrifum hennar á siðgæði landsmanna almennt birtist víða - gekk það svo langt að stundum má greina bak- þanka um ágæti hinna nýju verslunarhátta eftir að utanrík- isverslunin var gefin frjáls árið 1855. Verslunarstaðirnir þóttu draga til sín letingja og svallara, urðu jafnvel eins konar krabba- tnein á heilbrigðum líkama landbúnaðarsamfélagsins. Versl- un árið um kring leiddi ófor- sjála bændur til að sólunda vör- um sínum í ótíma, skulda- verslun leiddi til aukins iðju- leysis og þar fram eftir göt- um.21 íslendingar áttu ekki í minnstu vandræðum með að krefjast hafta í innanlandsversl- un á sama tíma og þeir fóru fram á verslunarfrelsi. Frjáls íslendingar kröfðust hafta í innanlands- verslun á sama tíma og þeir fóru fram á verslunarfrelsi. verslun í þeirra augum þýddi einfaldlega að öllum þjóðum væri heimilt að versla við ís- lendinga, svo lengi sem verslun þeirra kippti ekki stoðum und- an samfélagsgerðinni. Slíkar hugmyndir fengu fátt að láni frá frjálshyggju 19. aldar. Vissulega kom það ekki að sök fyrir mál- staðinn að verslunarfrelsi var í tísku. Danir losuðu t.d. um nær öll bönd á sinni verslun á þess- um sömu árum, þar á meðal var afnumið bann við landprangi.22 íslendingar fóru hins vegar fram á nákvæmlega það sama og þeir höfðu krafist löngu áður en þeim bárust kenningar frjálshyggjunnar til eyrna. „FRELSI ER EKKI ÓBUNDIÐ SJÁLFRÆÐI...“ Ég tel að spurningin um frelsis- ást íslendinga á 19. öld snúist ekki um það hvort þeir gengu „frelsinu á hönd, heilir og ósklptir og til lífstíðar, eða alls ekki,“ heldur hvaða skilning þeir lögðu í frelsishugtakið.23 Að álíta frjálshyggjuna hafa átt einhvern einkarétt á frelsinu stenst auðvitað ekki, ekki síst þar sem frelsið er hugtak sem er jákvætt í sjálfu sér. Og mér væri ekkert fjær lagi en að væna íslenska bændaforingja síðustu aldar um að hafa barist gegn frelsinu sem slíku. Þeir voru stoltir af sjálfstæði íslenska bóndans sem var engum per- sónulegum fjötrum háður, raun- verulegur húsbóndi á sínu heimili. Hins vegar held ég því fram að þeir liafi hafnað liug- myndum frjálsliyggjunnar um einstaklingsfrelsið. í grein sem birtist árið 1839 og eignuð var Sigurði Björnssyni hreppstjóra á Ytra-Hólmi á Akranesi kemur þetta greinilega fram þegar hann segist ekki vilja „geta til að neinn telji norðurlandabúa frelsisanda, sem tildrög til hjúa vorra sjálfræðis... er hann... allt annað en sjálfræðið, sem helst vill engum lögum eða skyldum háð vera...“ 24 Hvað eftir annað birtust hugmyndir íslendinga um frelsið á þennan hátt. í sömu andrá og það var lofað var varað við sjálfræðinu eða of- Kaupstaðarferð. Margir Islendingar höfðu óbeit á verslunarstöðum landsins og töldu þá laða að sér letingja og auka brennivínsdrykkju. [ 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.