Austurland - 28.01.1988, Síða 1
Tölvu-
pappír
ÉÍZa
wNESPRENT
S 71189 & 71135
Útsvör og adstöðugjöld 1987
Innheimta sveitarfélaga
yfirleitt góð
Um áramótin uröu sem
kunnugt er umfangsmiklar
skattkerfisbreytingar í landinu.
Staðgreiðslukerfi skatta var
tekið upp og um leið færist inn-
heimta útsvara frá sveitarfé-
lögunum eins og- verið hefur
hingað til. Síðasta ár var því
síðasta árið sem sveitarfélögin
sjá sjálf um innheimtu útsvara
en siík innheimta hefur jafnan
gengið mis vel. Til að forvitnast
um hvernig innheimtan gekk
fyrir sig á nýliðnu ári hafði
AUSTURLAND samband við
skrifstofur nokkurra stærstu
sveitarfélaganna í kjördæminu.
Sveinn Árnason fjármála-
stjóri í Neskaupstað sagði að
Fáskrúðsfjöröur
Skipstjórnar-
námskeið
Laugardaginn 23. janúar lauk
á Fáskrúðsfirði 30 rúmlesta
skipstjórnarnámskeiði. Það
hófst 15. desember og var alls
109 kennslustundir. Námskeið-
ið var haldið fyrir forgöngu
heimamanna en með góðri að-
stoð Stýrimannaskólans og
kennt var eftir námsskrá útgef-
inni af menntamálaráðuneyt-
inu.
Nemendur voru 15 talsins,
flestir þeirra smábátaeigendur
frá Búðum og úr Fáskrúðsfjarð-
arhreppi og einn Stöðfirðingur
sótti námskeiðið. Kennarar
voru 5, allir heimamenn. For-
stöðumaður námskeiðsins var
Skafti Skúlason.
Á laugardagskvöldið komu
nemendur og kennarar saman
ásamt mökum sínum á veitinga-
húsinu Snekkjunni. Þar voru
prófskírteini afhent og einnig
bókaverðlaun frá Kaupfélagi
Fáskrúðsfirðinga. Verðlaunin
hlutu Friðrik Steinsson, Hafra-
nesi, fyrir besta námsárangur og
Jón Úlfarsson, Eyri. Hann var
aldursforseti á námskeiðinu og
auk þess aðalhvatamaður að
þessu framtaki. MS
innheimta hefði verið góð í Nes-
kaupstað. 92,6% útsvara og að-
stöðugjalda sfðasta árs inn-
heimtust og er það svipað og
árið 1986 en þá innheimtust
92,3%. Þarna er um að ræða
heildarálagningu og skuldir frá
fyrra ári. Innheimta fasteigna-
gjalda gekk enn betur og inn-
heimtust 96% þeirra.
Um staðgreiðslukerfið sagði
Sveinn að menn vissu ekki al-
mennilega ennþá hvernig það
kæmi út fyrir sveitarfélögin. Þar
væri óttast að þær tölur sem
lagðar væru til grundvallar hlut
sveitarfélaga væru of lágar og
6,7% útsvar myndi því ekki
duga. Hann sagði marga óvissu-
þætti í þessu máli og margir
óttuðust t. d. að fólk myndi
minnka við sig yfirvinnu nú eftir
að staðgreiðslukerfið væri kom-
ið og þannig kæmu lægri tekjur
einstaklinga til með að minnka
hlut sveitarfélaganna. „En þetta
er allt óljóst enn og menn sigla
talsvert inn í óvissuna“, sagði
Sveinn Árnason.
Sigurður Símonarson, bæjar-
stjóri á Egilsstöðum sagði að
innheimtan hjá þeim á síðasta
ári hefði verið 90,7% á útsvör-
um og aðstöðugjöldum á móti
86,0% árið 1986. Fasteigna-
gjöld innheimtust hins vegar
heldur verr nú eða 93,4% á móti
95,0% árið 1986. Samanlögð
innheimta á Egilsstöðum 1987
er því 91,2%, sem er nokkuð
betra en 1986 en þá varð hún
87,9%.
Sigurður sagði óvissuna mikla
um hvernig staðgreiðsluskattar
skiluðu sér til sveitarfélaga. Þar
kæmi t. d. til áætlun ráðuneytis
um skiptingu í janúar og febrú-
ar, 1,3% í janúar og 4% í febr-
úar. Þá sagði hann útkomu úr
Jöfnunarsjóði skipta miklu máli
en ennþá væri allt óvisst um
hvað þaðan fengist. Sigurður
sagðist ekki óttast að minni yfir-
vinna fólks kæmi niður á tekjum
Egilsstaðabæjar þar sem ekki
væru eins miklar sveiflur í at-
vinnulífi á Egilsstöðum og gerð-
ist niður á fjörðum og annars
staðar þar sem byggt væri á
vinnslu sjávarafla.
„Eg get bara ekki annað sagt
en að innheimta hér er léleg",
Þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Karvel Pálmason hafa að undanförnu fundað með verkafólki
víða um land. Á mánudaginn héldu þeir fund með forystumönnum verkalýðsfélaga á Austurlandi í
Valaskjálf á Egilsstöðum. í rœðustóli er Hrafnkell A. Jónsson en nœst honum situr Björn Grétar
Sveinsson við hlið Karvels. Guðmundur J. horfir á rœðumann ábúðarmikill á svip með vörumerkið
sitt, neftóbaksdósina, í höndunum. Um 70 manns voru á fundinum. Mynd hb
sagði Þorvaldur Jóhannsson,
bæjarstjóri á Seyðisfirði. Hann
þvertók fyrir að nefna neinar
tölur þar um en ítrekaði að erf-
iðlega hefði gengið að inn-
heimta útsvör og aðstöðugjöld.
Innheimta fasteignagjalda hefði
gengið heldur betur en væri þó
engan veginn góð.
Þorvaldur sagðist ekki óá-
nægður með að staðgreiðslu-
kerfi skatta væri komið á. Um
ágæti þess væru flestir sammála.
Hann sagði hins vegar útilokið
að félagsmálaráðherra tæki
ákvörðun um að hlutur sveitar-
félaga ætti að vera 6,7% og
sagðist fullyrða að það næði
ekki þeim tekjum sem Seyðfirð-
ingar hefðu haft og síðan ætti
eftir að koma í ljós hvernigþetta
skilaði sér. „Ég tel raunar að
sveitarfélögin hefðu þurft að fá
7 - 7,2%", sagði Þorvaldur Jó-
hannsson.
Á Eskifirði var góð innheimta
á síðasta ári. 91,8% útsvara og
aðstöðugjalda innheimtust og
98,36% fasteignagjalda. Bjarni
Stefánsson, bæjarstjóri sagði
þetta svipaða innheimtu og
undanfarin ár en þó í hærri kant-
inum.
Um staðgreiðslukerfið sagði
Bjarni að menn æddu svolítið
blint út í það. Hann sagði deild-
ar meiningar um hvort 6,7%
hluti sveitarfélaga nægði til að
ná þeim 10,4% sem útsvörin
voru áður. Hins vegar væri svo
margt óljóst í þessum efnum að
best væri að geyma allar yfirlýs-
ingar um staðgreiðslukerfið.
Á Höfn í Hornafirði var góð
innheimta á síðasta ári. 92% út-
svara og aðstöðugjalda inn-
heimtust þar og segja má að
fasteignagjöldin hafi öll inn-
heimst því 99,04% náðust inn á
árinu.
Hallgrímur Guðmundsson
sveitarstjóri á Höfn sagði margt
hægt að ræða um staðgreiðslu-
kerfi skatta og hlut sveitarfélaga
þar. í þeim efnum væri spurn-
ingin einungis hvaða angi þess
máls yrði tekinn fyrir. Hann
sagði framkvæmd breytinganna
skapa talsverðan glundroða og
mikið hefði skort á upplýsingar
til sveitarfélaga. Gögn varðandi
staðgreiðsluna hefðu verið
smátt og smátt tínd í sveitar-
stjórnir og því hefði þetta
skapað mörg vandamál. Þá
sagði hann þessar umfangs-
miklu breytingar gerast á sama
fima og aðrar miklar breytingar
væru að gerast og nefndi þar
breytingu á nafnnúmerum yfir í
kennitölur. Þetta allt kostaði
mikla vinnu hjá sveitarfélögum
vegna breytinga í tölvum og
skapaði auk þess vandræði við
gerð fjárhagsáætlana, þar sem
svo margir lausir endar væru
varðandi tekjurnar. hb
Körfubolti
U ÍA áfram
á sigurbraut
Körfuknattleikslið UÍA hélt
áfram sigurgöngu sinni í 1. deild
íslandsmótsins um síðustu helgi
er liðið sigraði lið Reynis frá
Sandgerði í íþróttahúsinu á Eg-
ilsstöðum með 75 stigum gegn
48.
UÍA liðið hefur unnið sigur í
öllum leikjum sínum til þessa og
í næsta heimaleik mætir liðið
öðru liði sem ekki hefur tapað
stigi, Tindastóli frá Sauðár-
króki, en þeim leik var frestað
fyrir nokkru, þar sem þeir
Tindastólar komust ekki austur.
Leikurinn verður háður á Egils-
stöðum laugardaginn 6. febrúar
nk. hb
NESVlDEÓ © 71780
starmlx
RYKSUGUR