Ljósmæðrablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 27
Störf fræðslunefndar
veturinn 2008-2009
Starf fræðslunefndar, haustið 2008,
byrjaði ekki á hefðbundnum hring-
borðsumræðum heldur fórum við eftir
hina miklu kjarabarráttu til Maggýar á
Mecca Spa í október. Hún fór með okkur
í meðgöngujóga og meðgöngusund og
gæddum við okkur á hollum veitingum í
lokin. Var mæting með ágætum og voru
þar á meðal ófnskar ljósmæður sem létu
mjög vel af námskeiðunum sem í boði
eru.
í nóvember fengum við Árdísi Kjart-
ansdóttur, ljósmóður í Hreiðrinu til að
segja okkur nánar frá veru sinni sem
ljósmóðumema hjá Inu May Gaskin
og var það mjög fróðlegt og sköpuðust
góðar umræður um fæðingarfræðina sem
okkur Ijósmæðrum leiddist ekki. Á “The
Farm“„er margt með töluvert öðm sniði
en við eigum að venjast og margt sem við
getum lært af ljósmæðrunum þar.
í byrjun desember vomm við með
aðventufund þar sem við fengum til okkar
góðan gest og fengum okkur jólagjögg.
Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur í
Kópavogi og mótórhjólakappi kom og
spjallaði við okkur á léttu nótunum í
miðri kreppu og aðventu. Það er aldrei of
mikið gert af því.
I mars kom svo Sveinbjörg Brynjólfs-
dóttir ljósmóðir á sængurkvennagangi
og kynnti fyrir okkur mastersritgerð sína
sem heitir “ „Það dró mig niður, alveg
endalaust, þessi endalausi sársauki”.
Reynsla og líðan kvenna sem fá verki í
geirvörtur við brjóstagjöf,,. Mjög athygl-
isvert verkefni og gott innlegg í umræður
og fræðslu til ljósmæðra um brjóstagjöf-
ina.
Núna í haust hófust viðræður við
Endurmenntun H.í. um möguleika á
samstarfi um fræðslu og gerð var könnun
um hvað ljósmæður vilja fræðast um.
Er vinna við þær niðurstöður í vinnslu,
sem gefur möguleika á fræðslu bæði til
gamans og til að ávinna sér einingar upp
í mastersnám.
I nóvember kom Aðalbjörg Þorsteins-
dóttir, sem rekur fyrirtækið Villimey og
kynnti fyrir Ijósmæðrum kremin sem hún
býr til úr íslenskum jurtum. Hún týnir
sjálf íslenskar jurtir á Vestfjörðum og
framleiðir kremin sín á sínurn heimavelli,
á Tálknafirði. Fróðleg kynning þar á ferð
og endaði hún á því að gefa ljósmæðrum
sem mættu á fundinn krem að eigin vali
og varasalva og færum við henna þakkir
fyrir.
Svo endar þetta ár á aðventufundi og
jólaglöggi þann lO.desember.
f.h. frœðslunefndar
Steina Þórey Ragnarsdóttir
formaður
BONUS
Heílbrigðistausnir
ir
Heilbrigöisstofnun
Suðurlands
Eirberg
GlaxoSmithKline
Áorka meiru, liða betur, lifa lengur
sanofi aventis
Because health matters
V vistor
Ljósmæðrablaðið - Desember 2009 27