Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER2004 Fréttir 0V Kostir & Gallar „Mér þykja helstu kostir hennar vera hversu fljót hún er að hugsa, að nálg- ast kjarna málsins og skilja hismið frá honum. Stór kostur er að hún er skemmtileg I góðra vina hópi. Svo er hún auðvitað frábær stjórnmálamaður og eldklár. En efég ætti að nefna einn galla, þá held ég aö því sé eins farið með hana og marga aðra sem eru sterkir í pólitlk að hún mætti ráðgast við fleiri áður en hún tek- ur stórar ákvarðanir." Stelnunn Valdis Óskarsdóttir, borgarfull- trúi og samherji Ingibjargar „Strax I menntaskóla komu þeir hæfileikar Ingibjargar Sólrúnar í Ijós sem hafa einkennt hana síðan. Hún hefur rika klmnigáfu, er fylgin sér og ærleg. Hún tjáir hug sinn á máli sem allirskilja og án þess hvim- leiða hroka sem nú einkennir valdhafa. Hún er fljót að greina stöðuna og er fæddur leiðtogi. Hún er þvi íslenskum konum nauðsynleg fyrirmynd í karla- samfélaginu. Stundum er hún of kappsöm og sést ekki fyrir, er kannski offljót á sér eða gleymir sjálfri sér I annriki dagsins." GuÖrún Sigfúsdóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fæddist I Reykja- vik á gamlársdag 1954. Hún útskrifaöist frá Menntaskólanum við Tjörnina I974,kláraði BA-prófl sagnfræði og bókmenntum 1979 og stundaöi cand. mag. nám í sagnfræði frá 1981 til 1983. Ingibjörg var formaÖur Stúd- entaráÖs 1977 til 1978. Hún var borgarfull- trúi 1982 til 1988 og þingkona frá 1991 til 1994, þegar hún varð borgarstjóri. Nú er hún varaformaöur Samfylkingarinnar og borgar- fulltrúi. Hún er gift Hjörleifi Sveinbjörnssyni. m Smátrjágarð- urvinsæll Tvöþúsund manns sóttu Bonsai-garð Hafnarfjarðar í Hellisgerði í sumar og eru aðstandendur garðsins himinlifandi yfir aðsókn- inni. Garðinum hefur verið lokað yfir vetrartímann, en hann opnar aftur næsta vor. Þetta er eini Bonsai- garður íslands, en slíkir garðar eiga rætur sína að rekja til Japans. í görðun- um gefur að líta dvergvaxin tré sem eru ræktuð eftir lögmálum bonsai-listarinn- ar. Gísladóttip Aðeins þrjú lönd vilja George Bush sem næsta forseta Bandaríkjanna Kerry burstar Bush á íslandi Ingibjörg Sólrún er stjórnmála- maður sem starfar samkvæmt lýðræðishugsjón. Hún erlaus við valdhroka, býr yfir góðri kímnigáfu og hlustar á kjós- endur. Ingibjörg þrífst illa í óvissu og skortir styrk i mótbyr. Hún er lokuð manneskja, þrátt fyrír að á yfirborðinu sé hún félagslynd. „Ifyrsta lagi er hún bráð- velgefin. löðru lagi er hún afar flink að fá fólk til aö vinna saman. Og hún er afar mikill og hæfur hlustandi sem er tilbúinn að hlusta á skoðanir fólks, gefa þeim gaum. I mlnum huga er hún afburðastjórnandi. Svo er hún manneskja sem byggir á hugmyndafræði, hún veður ekki bara áfram. Það erhins vegar ekki auðvelt að komast að henni, hún er ekki manneskja sem gefur færi á sér. Maður er svolítinn tlma að átta sig á því hver hún er. Hún er mér mikil fyrirmynd." Jóna Hrönn Bolladóttir miöborgarprest- ur. Flestir íslendingar styðja John Kerry samkvæmt skoð- anakönnun sem fer fram á vef- síðunni betavote.com. Tæplega 350.000 jarðarbúa hafa tekið afstöðu í könnunn- inni þar sem Kerry burstar Bush með 300.000 atlcvæð- um á móti 40.000 forset- ans. Held- ur virðist könnunin sem ætlað er að end- urspegla viðhorf þjóða heims til kosninga á þjóðar- leiðtoga Bandaríkjamanna vera í ósæmræmi við sambærilegar kann- anir í Bandaríkjunum þar sem lítil munur er á fylgi þeirra Bush og Kerry. Samkvæmt könnun Betavote hafa 4.406 íslendingar tekið þátt í könnuninni og eru þar með meðal atkvæðamestu þjóða sem taka þátt. 90 prósent íslendingar styðja Kerry eða 4.004 á meðan 402 styðja Bush. Heldur hallar á Bush í könnuninni sem einungis sigrar í örfáum smá- ríkjum. Á karabísku eyjunni Bar- bados fær Bush 120 atkvæði á móti 98 hjá Kerry. f Malavíu fær Bush 15 en Kerry er á hælum hans með heil 12 atkvæði. f Afríkuríkinu Níger sigrar Bush með miklum yfirburð- um 405 atkæði á móti 46. 53.000 Bandaríkjamenn hafa kosið á Beta- vote 40.000 þeirra velja Kerry á meðan tæplega 14.000 kjósa Bush. í Afganistan og íran njóta forseta- ffambjóðendurnir jafnra vinsælda. fbúar f Nfger Eitt afþremur löndum þar sem fólk vill Bush sem forseta Bandarikjanna er Afríkuríkið Niger, sem er norður afNígeríu. Ungur maður á Egilsstöðum sem sakaði lögregluna í bænum um að hafa handtekið sig, sett í járn og beitt sig harðræði hefur nú fengið sekt vegna ölvunar á almanna- færi. Var í hópi hundrað ölvaðra ballgesta þegar hann var handtekinn án ástæðu að eigin sögn. Lögregla tók ekki blóðprufu úr honum. Lögreglan Birgir segir lögreglu hafa handtekið sig og meitt. Settu hann íjárn og gáfu honum að sögn enga ástæðu fyrir handtök- unni. Lögregla tók ekki blóðprufu úr Birgi en sekta hann þófyrir ölv- un á almannafæri.Mennirnirá myndinni tengjast ekki efni grein- arinnar. Sikar lögguna uni hBtndarahgerðir gagn aér Ég get ekki varist þeirri hugsun að þarna séu menn að hefna sín fyrirþað að ég skyldi segja frá því að þeir hafi beitt mig hörku við handtöku sem ég fékk aldrei skýringu á." r Lögreglan á Egilsstöðum handtók Birgi að kvöldi föstudagsins 3. september síðastliðins. Hann var þá staddur ásamt fjölda skóla- félaga sinna fyrir utan dansleik í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum. Birgir lýsti því í DV nokkrum dögum seinna hvernig lögregla hefði beitt sig harðræði við handtöku þegar hann gat ekki sýnt þeim persónuskilríki. Vitni lýsti því einnig. „Ég get ekki varist þeirri hugsun að þarna séu menn að hefna sín fyrir það að ég skyldi segja frá því að þeir hafi beitt mig of mikilli hörku við handtöku sem ég fékk aldrei skýringu á," segir Birgir sem nýverið fékk 10 þúsund króna sektarboð ffá lögreglu fyrir ölvun á almannafæri. Sektuðu þeir allt ballið? „Ég er búinn að borga þetta, enda lítið annað hægt, en mér finnst þetta alveg fáránlegt," segir Birgir sem full- yrðir að lögregla hafi aldrei tekið úr sér blóðprufu og því geti þeir varla sýnt ffam á það með óyggjandi rök- um að hann hafi verið ölvaður. „Ég meina hvers lags rugl er það að hand- taka mig og hand- járna fyrir utan ball þar sem hundrað manns eru að drekka einungis til að sekta mig fýrir ölvun á almanna- færi?" spyr Birgir sem spyr sig einnig hvort sýslumaður ' hafi sent öðrum ball- gestum sektarboð. Birgir fullyrðir að lögregla hafi ekki gef- ið sér skýringar á handtökunni þrátt fyrir ítrekaðar óskir hans þar um. Honum Nlarinn og sár eltir viðskipti við lögreglu Mli u æSSEr Frétt af hörku lögregl- unnar DVtók viðtal við ungan Egilsstaðabúa sem var marinn eftir að lög- regla beitti hann harðræði. var svo sleppt eftir að hafa verið lok- aður inni í fangaklefa í um klukku- stund. Enn fást engar skýringar á handtökunni Fór ekki í blóðprufu Hjá lögreglunni á Egilsstöðum fengust þær upplýsingar að blóðprufa sé ekki tek- in nema að grunur leiki á að ölvun við akstur. Að öðru leyti vildi lögreglan ekki tjá sig um málið og vísaði því á fuil- trúa Sýslumanns sem ekld var við. Ekki fengust upp- lýsingar um hvort aðrir ballgestir hafi fengin send sektar- boð, en Lögreglan dró slíkt þó í efa. helgi@dv.is >55333 Sakar lögregluna um hefnd Birgir Jónsson segist ekkigeta varist þeirri hugsun að sektar- boð Sýslumanns fyrir ölvun á almannafæri sé hefnd vegna þess að hann sagði sögu sína af viðskiptum við lögreglu ÍDV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.