Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAQUR I 8. OKTÓBER 2004 Fréttir DV Veðurathugun gerð sjálfvirk Veðurstofa íslands mun á næstunni setja upp sjálf- virka veðurstöð á Reykhól- um en mönnuð verðurat- hugunarstöð var lögð niður á staðnum 1. ágúst síðast- liðinn við litla kátínu íbúa á Reykhólum. Einar Thorlaci- us sveitarstjóri Reykhóla- hrepps hefur átt í bréfa- skriftum við Magnús Jóns- son veðurstofústjóra vegna málsins. í bréfunum spáir Magnús því að mannaðar veðurstöðvar muni á næstu 5 til 10 árum leggjast niður. Þá kemur þar fram að í at- hugun sé að setja upp sjálf- virka veðurstöð í Flatey. Gervihnöttur hrapará hús Kínverskur rannsókn- argervihnöttur sem lokið hafði hlutverki sínu í geimnum lenti á íbúðar- húsi í Sichuan héraði í Kína í gær. Gervihnött- urinn var um tveggja metra langur og braut hann sér leið gegnum þakið og lenti á gólfi íbúðarhússins. Engin slys urðu á íbúunum en haft var eftir húsbónd- anum að atburðurinn þýddi að líklega myndi lukkan fylgja fjölskyld- unni í ár. Talibanaþátt- ur stöðvaður Sjónvarpsstöð í Jórdaníu hefur hætt við sýningar á sápuóperu um talibana eft- ir fjölda morðhótana á hendur leikara og framleið- anda þáttanna. Hótanir fóru að berast í gegn- um internetið þar sem varað var við að sýna talibanana í neikvæðu ljósi. Eftir fyrstu forsýningu þorðu forráðamenn þáttarins ekki annað en að taka hann af dagskrá en þáttaröðina átti að sýna á Ramadan hátíðinni sem byrjaði síðasta föstudag. „Qangur mála er verið að mála gangana á hót- elinu og gera klárt fyrir næstu gesti. Hingað slæðast stöku Is- lend- onanmni• Landsíminn en hót- elið erídýrari kantinum fyrir þá. Stöðugt er verið að auka gistirými vegna staðsetningar- innar í Mið-Evrópu. Hér er ósk- astaður þeirra sem vilja vera miðsvæðis og hræódýrt að fljúga hvert sem er. Núna er 16 stiga hiti og sól IPrag. Þetta er toppurinn," segir Guðmundur Franklln Jónsson, kaupsýslu- maöur og hótelhaldari ÍTékk- landi. Hlýjar tweed- og u eru málið í vetur Fjölbreytt úrval Kápurnarl Deb- enhams eru til Iýmsum gerðum. 60s'og hippatímabilið er algengt og litirnir eru kvenlegir en jarðalitir eru einnig algengir. Duffel coat Þessar kápur eru löngu orðnar klassískar. Þessi kostar 39.990 krónur. Flott ívetur Þessi fallega Ijósa tweedkápa kostar 16.900 krónur. Treflar Treflar eru I tlsku I dag. Herrarnir velja sér oftast hlýja þykka mynstraða trefla. Þessir fall egu treflar kosta 7.990 krónur og fást I Herragarðinum. Fallegt og kvenlegt Kápurnar eru með kvenlegu sniði. I dag snýst kventískan um að sýna llkama og linur án þess að sýna hold. Þessi kápa kostar 13.900 krónur. Alltístíl Alvöru kapa Þessi kápa fæst I Herragarð- inum.Hún erúr 100% kasmlr og kostar 69.990 krónur. I Nú þegar það er farið að kólna I veðri er hægt að fá allskyns fall- eg hlý föt. ÍDebenhams er mikið úrval afhúfum, vettlingum, treflum og eyrna- skjólum. Vettlingarnir kosta 1.990, tref- illinn 1.990 og eyrnahllfarnar 1.490 krónur. Loðið og einstaklega fallegt. Bandaríska sjónvarpsstjarnan Bill O'Reilly klæmdist á upptöku Siðapostuli sakaður um kynferðislega áreitni Andrea Mackris, pródúsent og samstarfskona Bills O’Reilly hefur sakað þessa stjórstjörnu Fox sjón- varpsstöðvarinnar um að hafa ítrek- að reynt að fá sig til iðka símakynlíf með sér. Reilly neitar ásökunum og segir að þær runnar undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna. Bill O’Reilly er einn þekktasti þáttastjórnandi í Bandaríkjunum og er gífurlega vinsæll. Hann Úggur ekki á skoðunum sínum sem eru mjög til hægri enda hann er mikill fylgismað- ur Repúblikana. í síðustu viku komu bæði Mackris, sem er 32 ára, og O’Reilly fram á sjónvarpsstöðinni og sögðu sína hlið á málinu. O’Reiily sem er 55 ára og kvæntur hefur ekki neitað ásökununum opinberlega en bendir á að takmarkið sé augljóslega að reyna að eyðileggja starfsframa sinn og sverta íhaldssama stefnu Fox sjónvarpsstöðvarinnar. Málið þykir allt hið undarlegasta vegna þess að O’Reilly er þekktur fýrir að prédika siðfræði og siðgæði í þáttum sínum og halda á lofti gildum fjölskyldunn- ar. Nýlega kom út eftir hann bók með ráðleggingum og leiðbeiningum fyrir unglinga. Mackris hefur undir hönd- um upptökur af nokkrum samtal- anna og meðal þess sem O’Reilly ræðir er hversu nauðsynlegt það sé fyrir konur að eiga titrara og einnig státar hann sig af því að hafa kennt fjölmörgum konum sjálfsfróun. Yfir- menn Fox sjónvarpsstöðvarinnar höfðu áhyggjur af áhorfsmælingum eftir að málið kom upp en ljóst er að þær voru óþarfar því áhorf á þátt O’Reillys jókst í síðustu viku. Bill O'Reilly Skærasta stjarna Fox sjón- varpsstöðvarinnar ersökuö afsamstarfs- konu um að hringja itrekaö og biðja um simakyntif.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.