Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Blaðsíða 29
DV Fókus MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER2004 29 Leikarinn Christian Bale sem dvaldi hér á landi við tökur á kvikmyndinni Batman Begins segir ísland ægifagurt þótt dvöl hans hér hafi verið einmanaleg og köld. Batman „Mér finnst ofar skrítið hvað þessi ofurhetja er vinsæl. Gaur inn heldur að hann sé svalur klædd- ur eins og leðurblaka. Efég myndi hitta hann myndi ég hlæja afhon- um, kalla hann furðufugl og skipa honum að láta sig hverfa." Christian Bale „Efég var ekki að vinna hafði ég ekkert að gera nema fara út og hiaupa. Útsýnið var frábært endajökl- arnir út um allt. Náttúran er frábær. Þarna eru há fjöll og sjór allt tkringog umhverfið mjög harðneskjulegt." ísfand er öðruvísi en úlRfkpst Leikarinn Christian Bale sem dvaldi hér á landi við tökur á kvik- myndinni Batman Begins segist hafa orðið ástfanginn af landinu. Bale, sem dvaldi í Skaftafelli, seg- ir dvölina hér þó hafa verið afar kcilda og einmanalega. „Það er hrikalega kalt á íslandi. Hótelið sem við dvöldum á var lítill viðar- kofi sem var staðsettur fjarri allri menningu," sagði Bale íviðtali. „Ef ég var ekki að vinna hafði ég ekkert að gera nema fara út og hlaupa. Út- sýnið var ffábært enda jöklarnir út um allt. Náttúran er frábær. Þarna eru há fjöll og sjór allt í kring og umhverfið mjög harðneskjulegt." Leikarinn sagði ísland tilvalinn stað fyrir tökurnar í myndinni. Jöklarnir eru bláir af hreinleika. Stundum urðum við að hlaupa uppi á þeim sem var alls ekkert sniðugt því við heyrðum drunurnar undir okkur. Næsta dag var jökullinn gjörbreyttur sem þýddi að við höfðum verið heppin. Þetta var reynsla sem var ólík öllu öðru sem ég hef upplifað." Bale talar þó ekki vel um matarvenjur íslendinga og segir þá borða allt. Sérstak- lega finnst honum hvalkjötið ógirnilegt en sjálfur borðar hann ekki rautt kjöt. Myndin Batman Begins kemur í kvik- myndahús næsta sumar. Bale, sem leikur Batman sjálfan, segist sjálfur aldrei hafa skilið vinsældir ofurhetjunnar. „Mér finnst þetta afar skrítið. Gaurinn heldur að hann sé svalur klæddur eins og leður- blaka. Ef ég myndi hitta hann myndi ég hlæja að honum, kalla hann furðufugl og skipa honum að láta sig hverfa." Söngvarinn Adam Levine úr Maroon 5 er hættur meö fyrirsætunni Kelly McGee. A lausu Söngvarinn sæti Adam Levine úr Maroon 5 er hættur með kærustunni sinni. Adam hafði verið með fýrirsætunni Kelly McGee í meira en eitt ár. Vinur söngvarans sagði sambandið hafa fjarað út vegna ann- ríkis Adams. „Haim er mjög sár enda höfðu þau verið saman lengi. Hann hefur bara svo mikið að gera að hann hefur ekki tíma til að vera í ástarsorg." í nýlegu viðtali sagði söngvarinn að hann væri að spá í að hætta með Kelly. „Við höfum fengið okkar skammt af vandamál- um en við erum enn saman. Ég veit ekki hvemig framtíöin verður, kannski hættum við bara saman bráðlega." Adam sagöi ívið- talinu að kærastan hefði verið bijáluð þegar hún hafi séð nýjasta myndband sveitarinn- ar en þar kyssir Adam leikkonuna Kelly Preston. „Kelly veit að Preston er kona drauma minna og því varð hún ekki ánægð þegar hún vissi að ég hefði kysst hana í myndbandinu." Stjörnuspá Friðrik Sophusson Forstjóri Landsvirkj- unar er 61 í dag. „Maðurinn ætti að auka svigrúm sitt mun meira til að hafa góð áhrif á fólkið sem hann ann og er minntur á að engin athöfn er _ einskis verð þar sem jafnvel j minnsti verknaður getur haft ómæld áhrif á framhaldið. Flér koma við sögu atburðir sem hreyfa sannarlega við tilfinningum , mannsins," segir í i stjörnuspá hans. Friðrik Sophusson VV Mnsbermn (2o.jan.-w.febr.) W ------------------------------------- Hafðu augun opin næstu daga og nýttu eigin hæfileika til að sjá hvar tækifærin liggja. Allsnægtir, gleði og friður einkennir fólk fætt undir stjörnu vatnsber- ans hérna því það virðist vera fært um að fylgja hjartanu án samviskubits. K Fiskarnir (i9.febr.~20.mars) Hér virðist stjarna fiska hegða sér undarlega eða réttara sagt kjánalega. En þú átt það til að brjóta sjálfa/n þig nið- ur en þá veistu vissulega að þú hefur svik- ið sjálfið. cy) Hrúturinn (21. mars-19. t Hér kemur fram að þú átt mikla vinnu fyrir höndum hvað varðar óskir þín- ar en athugaðu að hún á alls ekki að vera torveld heldur ánægjuleg. Sýn þín víkkar eflaust vikuna framundan þegar þú leitast við að þekkja sjálfa/n þig. b Nautið (20. apríl-20.mal) n Með jákvæðu viðhorfi þínu, heil- indum og sigurvilja ert þú fær um að nýta þér nánast allar aðstæður. Haltu fast í sjálfsöryggi þitt og örugga framkomu. Vik- an líður hratt hjá í jákvæðum skilningi. Tvíburamirp;. mal-21.júnl) Ef þér er alvara með að flytja í nýtt húsnæði ættir þú ekki að hika við að kanna hvað stendur þér til boða. Ekki taka neinar skyndiákvarðanir ef þú tilheyrir stjörnu tvíbura. (dag virðist jákvæð orka umvefja þig. Kiabb'm (22.júnl-22.júll) Q** Mundu að skipuleggja þig og tíma þinn vel næstu daga. Skyldmenni þurfa á þér að halda þessa dagana. Ef þú hefur gleymt að rækta huga þinn og áhugamál, ættir þú að gefa þér tíma fyrir þínarinnstu þarfir. Ljónið (23.júlí-22. ágúst) Þú hefur þörf fyrir að vera ein/n með sjálfinu og ekki síður að ná völdum, þó í jákvæðum skilningi. Þú átt það til að fórna miklu sjálf/ur til að ná settum ár- angri. Þér er ráðlagt að nota gáfur þinar og orku til að ná markmiðum þínum sem þú hefur lengi vel þráð. Meyjan (23. ágúst-22. sept.) Ef þú ert ósátt/ur við starfsum- hverfi þitt þessa dagana ættir þú að bíða róleg/ur og sjá til hvað verður.Tíminn vinnur með þér, vittu til. \oq\n (23. sept.-23.okt.) Framkoma þín er í alla staði góð en þér hættir til að gleyma kostum þínum sem birtast hér sem vitsmunir þínir, sann- færingakraftur og öflug framsögn. Þú átt sérstaklega auðvelt með að sjá hvernig náunganum líður sem er jákvæður eigin- leiki í fari þlnu. ni Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.) Kafaðu undir þitt eigið yfirborð og haltu fast í það góða sem býr innra með þér. Ef stífla hefur myndast milli þín og manneskju sem tengist þér ættir þú ekki að hika við að ná fram sáttum sem fyrst. / Bogmaðurinn (22.n0v.-21.0es.) Þú virðist aðlagast skjótt hvaða aðstæðum sem er. Þú ættir ekki að hika við að hugsa stórt, jafnt í vöku sem draumi, þegar draumar þlnir eru annars vegar. Þú gætir hafa fært persónulegar fórnir síðust misseri. Mundu, þolinmæði er mikilvægasti hæfileiki þinn en þolin- mæði felst einnig í því að aðhafast lítið sem ekkert. Steingeitin (22.des.-19.jan.) Þú býrð yfir innsæi sem fáir eru færir um að tileinka sér. Stjarna steingeitar á það til að byggja ákvarðanir of oft á eig- in eðlisávísun en gleymir oft á tíðum að byrja á byrjuninni áður en fyrsta skref er tekið. SPÁMAÐUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.