Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 7. MAÍ2005 Fréttir 0V Kostir & Gallar Birkir Ivarermeð mikið keppnis- skap. Hann erdugiegurog vel liðinn affélögum sínum. Mjög traustur og klikkar ekki á þeim verkefnum sem hann hann tekuraðsér. Hann er það skapmikill að það getur hlaupið með hann í gönur og verið honum fjötur um fót. Þykist oft vita meira en hann veit í raun og veru. legt keppnisskap og vilja. Hann er ofboðslega dug- F ' I legurogeinnafþeimleik- ■ v' Æ mönnumsemþarfaldrei BL ''Æ. l að reka áfram. Hann er vel liðinn affélögum sínum og afskaplega ábyrgðarfullur. Hann stjórnar til að mynda sektarsjóðnum hjá Haukum með miklum myndar- brag. Helstu gallar hans eru að hann er Eyjapeyi. Skapið getur hlaupið með hann í gönur og það er nokkuð sem hann þarfað temja." Páll Ólafsson, þjálfari Birkis Ivars hjá Haukum. „Hann er gríðarlega kapp- I samur og skemmtilegur náungi. Hann hefur enda- fg'.1 w lausaorkuogþaðerhægt I að treysta honum. Hann ISSL.—Æ klikkarekki á þeim verkefnum sem hann tekur að sér. Hann er með eindæmum stundvis. Helsti galli hans er að hann getur verið mjög pirrandi þegar kappið berhann ofurliði." Andri Stefan, félagl Birkis ivars hjá Haukum. „Birkir ívar er rosalega duglegur og ósérhlífinn og það er frábært að vinna með honum íalla staði. Hann er einbeittur og af- skaplega góður drengur. Helsti galli hans er aö hann er Eyjamað- ur með öllu sem fylgir því auk sem hann þykist oft vita meira en hann veit I raun og veru. Hann er skapmikill en hefur róast með ár- unum." Viggó Sigurásson, þjálfari Birkis Ivars hjá íslenska landsliöinu. Birkir Ivar Guðmundsson er fæddur í Vest- mannaeyjum 14. september 1976. Hann bjó í Eyjum fyrstu tuttugu áreevi sinnarog kláraði Framhaldsskólann ÍVestmannaeyjum. Hann flutti til höfuðborgarsvæðsins og kláraði al- þjóðlega markaðsfræði ITækniskólanum árið 2001. Hann vinnur nú sem verkefnisstjóri hjá Iðntæknistofnun. Birkir Ivar hefur verið giftur Kristlnu Ólafsdóttur siðan 2001 og eiga þau dótturina Adelu Björt sem erþriggja ára. Auk þess á Kristln eina dóttur frá fyrra sambandi, Sögu Hlíf Birgisdóttur, sem er 13 ára. Birkir Ivar hefur spilað með Vlkingi, Stjörnunni og nú síö- ast Haukum. Megnfýlaá Hólmavík íbúar Hólmavíkur eru í fylu. Að því er segir á strand- ir.is eru margir Hólmvíking- ar óánægðir með að skít hafi verið dreift á tjaldsvæðið í bænum þannig að „megna skítaíylu" leggi af. „Ekki er nema vika í hvítasunnu en von er á gestum á tjaldsvæð- ið yfir hvítasunnuhelgina en þá helgi fara ávallt fr am fermingar á Hólmavik. Slökkvibíll frá Slökkviliði Hólmavíkur var mættur á tjaldsvæðið um hádegisbil til að reyna að skola sem mestu af skítnum í burtu," sagði á strandir.is í gær. Skemmdarverk í Vesturbænum. Styttan af Maríu mey sem stendur fyrir aftan gamla Landakotsspítalann hefur verið eyðilögð af óprúttnum aðilum. Björn Jóns- son, velunnari styttunnar, vill að málið verði rannsakað. Tryggvi Ólafsson, hús- vörður á Landakoti, segir mönnum ekkert heilagt lengur. Björn Jónsson og María mey Hendurnar hafa verið brotnar afstyttunni fögru. DV-mynd Simon Maríu mey misliyrmt í Vesturbænum „Mér þykir bara svo vænt um þessa styttu," segir Reykvíkingur- inn Björn Jónsson sem telur að skemmdarverk hafi verið unnið á styttunni af Maríu mey sem stendur fyrir aftan Landakot. Á hverjum degi hefur Björn gengið fram hjá styttunni og fundið í henni innblástur til góðra verka. Nú grætur hann skemmdar- verkið og undrast aðgerðarleysi yfirvalda. Þegar DV brá sér á vettvang í gær mátti heyra sjúklinga inni á Landakoti hvísla sín á milli hver hefði getað framið þennan voðaverknað. Styttan hefttr í gegnum árin fengið að standa í friði fyrir aftan spítalann en nú hafa tímarnir breyst. Tryggvi Ólafsson, húsvörður á Landakoti, er nýkominn úr fríi og varð hvumsa þegar fréttimar af skemmdarverkinu vom færðar honum. „Þetta er alveg ótrúlegt," sagði Tryggvi. „Um daginn var kveikt í msli fyrir utan kirkjuna og nú þetta. Mönnum er ekkert heilagt lengur." Mannvonska Lögreglan í Reykjavík hefur ekki fengið tilkynningu um skemmdar- verkið á styttunni. fbúar í Vestur- bænum sem DV ræddi við sögðu þetta koma sér á óvart. Vesturbær- inn væri rólegt hverfi en auðvitað sé alltaf misjafn sauður í mörgu fé. Hins vegar er einnig mögulegt að styttan hafi brotnað vegna frost- skemmda. Björn Jónsson, velunn- ari styttunnar, segist vona að svo hafi verið. Annað væri einungis dæmi um hina verstu mannvonsku. Skemmdarverk „Ef þetta væri í Danmörku og einhver hefði brotið sporðinn á haf- meyjunni væri honum samstundis „Þetta er alveg ótrú- legt. Um daginn var kveikt í rusli fyrir utan kirkjuna og nú þetta. Mönnum er ekkert heilagt lengur." stungið inn,“ segir Bjöm sem hefur upplifað tímana tvenna. „Hérna heima virðist enginn hugsa um styttur bæjarins. Ekki einu sinni þótt þær séu handalausar." í æsku sinni vann móðir Björns á spítalanum og segist Björn því hafa alist upp við hlið styttunnar. „Nú er búið að mölva hana og mér finnst að sá seki eigi að sæta ábyrgð," segir hann. simon@dv.is Yfirvöld í Garðabæ með allsherjarúthringingar heim til fólks „í nýrri rannsókn kom einnig í ljós að samkvæmi ungmenna í heimahúsum þar sem foreldrar eru ekki með eru of algeng hér í Garðabæ," segir á heimasíðu Garðarbæjar. „Foreldrar allra barna á ferm- ingaraldri eiga von á símhringingu á næstunni sem er liður í forvarna- starfi bæjarins. Sigríður Hulda Jónsdóttir verkefnisstjóri hefur tekið að sér að hringja í foreldra, ræða við þá um forvarnamál og hvernig þeir upplifa líðan og um- hverfi ungmenna í bænum al- mennt,“ segir á heimasíðu bæjar- ins og boðað að skilaboðum um hugmyndafræði bæjaryfirvalda verði komið til allra foreldra: „Rannsóknir sýna að sumarið eftir fermingu byrja mörg börn að smakka áfengi og að fikta við að reykja. Tilgangurinn með sím- hringingunum er að upplýsa alla foreldra um þessar niðurstöður og hvetja þá til að fylgjast sérstaklega vel með börnunum sínum. í nýrri rannsókn kom einnig í ljós að sam- kvæmi ungmenna í heimahúsum þar sem foreldrar eru ekki með, eru of algeng hér í Garðabæ. í sím- talinu eru foreldrar einnig hvattir til að leyfa ekki slík samkvæmi, hvorki að leyfa þau heima hjá sér né leyfa sínum börnum að fara í þau annars staðar. Ungmenni upplifa oft mjög erfiðar aðstæður í slíkum félagsskap og þrýsting á að neyta áfengis eða annarra vímu- efna.“ Þá segir að samtölin við foreld- rana muni nýtast til forvarna: „Sigríður Hulda mun i kjölfarið taka saman niðurstöður símtal- anna, þar sem m.a. á að koma fram hvað það er sem helst brennur á foreldrum í þessu samhengi, hvað þeir vilja að bærinn leggi áherslu á og svo framvegis. Gert er ráð fyrir að niðurstöðurnar muni nýtast vel við þróun og stefnumótun for- varnastarfs í bænum á næstunni." Ásdís Halia Bragadóttir Fráfarandi bæjar- stjóri í Garðabæ yfirgefur bæ þarsem for- eldralaus ungiingaparti iheimahúsum eru sögð vera vandamál.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.