Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Side 85
Félagsmál VFÍ/TFÍ 83
Viðurkenning fyrir stærðfræðikennslu
Hagsmunafélagið veitir svo oft sem þurfa þykir viðurkenningu fyrir gott framtak í þágu
verk- og tæknifræðimenntunar. Tilgangur viðurkenningarinnar er að beina athygli að fram-
lagi til að efla verk- og tæknifræðimenntun. Viðurkenninguna má veita fyrir einstök
verkefni, starf eða atburði sem hafa sérstakt gildi í þessu sambandi.
Félagið veitti í maí verðlaun fyrir árangursríka kennslu í stærðfræði á framhaldsskóla-
stigi. Verðlaunin ldaut Áskell Harðarson, stærðfræðikennari í MR. Björn Bjarnason
menntamálaráðherra aflienti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal MR þann 26. maí,
sérstakt skjal og 150.000 krónur.
Ein forsendan fyrir því að laða að fleira ungt fólk til að nema verk- og tækniffæðigreinar
í háskólum okkar er góð almenn undirbúningsmenntun á framhaldsskólastigi. Af einstökum
námsgreinum þar skiptir stærðfræði einna mestu máli. Af þessari ástæðu ákvað
Hagsmunafélagið að beina kastljósinu að þessu sinni að einstaklingi sem vinnur gott verk á
sviði stærðfræði á framhaldsskólastigi.
Er stærðfræðikennslan á villigötum?
Haldinn var opinn umræðufundur í tilefni af Stærðfræðideginum, þann 27. september, á
alþjóðlega stærðfræðiárinu 2000. Fundurinn var í samvinnu við Islenska stærðfræðafélagið.
Yfirskrift fundarins var „Er stærðfræðikennslan á villigötum?"
Framsögumenn fúndarins voru Anna Kristjánsdóttir stærðfræðingur, prófessor við
Kennaraháskóla íslands, Ellert Ólafsson verkfræðingur, framkvæmdastjóri Tölvu- og
stærðfræðiþjónustunnar í Reykjavík og Lárus H. Bjarnason stærðfræðingur, rektor
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Yfir 100 manns sóttu fundinn í hátíðarsal Háskóla Islands, stærðfræðikennarar af öllum
skólastigum, verkfræðingar, tæknifræðingar og annað raungreinafólk. Sven Þ. Sigurðsson,
stærðfræðingur, prófessor við Háskóla íslands, stjórnaði umræðunum þar sem fram komu
mismunandi sjónarmið um réttar áherslur í stærðfræðikennslu. Menn voru sammála um að
stærðfræðikennslu þyrfti að efla, m.a. vegna þess að stærðfræðin hefur aldrei gegnt eins
veigamiklu hlutverki í framþróun og nú.
AGORA
Félagið stóð fyrir móttöku fyrir ungt fólk á AGORA, upplýsingatæknisýningu í
Laugardalshöll þann 13. október. Þórólfur Árnason, forstjóri Tals, ávarpaði ungmennin og
sagði frá sínu verkfræðinámi og starfi.
Starllð framundan
Félagið mun í áframhaldandi starfí sínu leggja áherslu á samstarf við aðra hagsntunaaðila til
að ná fram samlegðaráhrifum og að nýta þau tækifæri sem gefast til að tengjast einstökum
góðum málum og lcggja þeim lið. Áfram verður lögð áhersla á undirslöðugreinar verkfræði
og tæknifræði, s.s. stærðfræði og eðlisfræði.