Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Page 134
saman auk annarra efna eftir tegund sements hverju sinni. Hráefnið er brennt við 1.500
gráður á Celcíus. Efnabreytingar eiga sér stað og eftir kælingu er sementsgjallið flutt til
geymslu þar sem það er fínmalað og dælt til í síló. Allt framleiðsluferlið í Alaborg - frá
kalknámu til geymslu í sílóum - er tölvustýrt og ströngustu gæðakröfur uppfylltar.
I áratugi var Alaborgarsementið helsta hráefnið í steinsteypu á Islandi og af því er afar
góð reynsla. Fjölmargar virðulegustu byggingar landsins eru vitnisburður um gæði
sementsins frá Álaborg.
Sement frá Álaborg aftur á íslandi eftir hálfrar aldar hlé
Aalborg Portland A/S í Danmörku hóf sölu á sementi til Islands árið 2000 eftir liðlega
fjörtíu ára ríkiseinokun Sementsverksmiðjunnar. Félagið stofnaði dótturfélag, Aalborg
Portland Islandi hf. [APÍ], opnaði skrifstofu í Kópavogi og reisti síló í Helguvík á
Suðurnesjum.
Viðtökur markaðarins voru afar góðar, enda gæði Álaborgarsementsins íslendingum enn
í fersku minni. Markaðshlutdeild API hefur vaxið jafnt og þétt og er komin yfir 50% á
hinum almenna markaði fyrir sement.
Aalborg Portland íslandi gerði þjónustusamning við rannsóknarstofu Línuhönnunar,
þannig að viðskiptavinir Aalborg Portland geta ávallt leitað til rannsóknarstofunnar um
ráðgjöf um steypu, meðhöndlun og margvíslegar prófanir. Þá hafa viðskiptavinir
Aalborg Portland Islandi aðgang að rannsóknum sementsverksmiðjunnar í Álaborg. Þar
er um að ræða svokallað RDC-setur, „Research & Development Center" og upplýs-
ingaþjónustu sementsverksmiðjunnar, „Cementfabrikkernes Tekniske Oplysnings-
kontor". Þetta er mikill fengur fyrir íslenskan byggingariðnað enda standa Danir mjög
framarlega í heiminum í rannsóknum og þróun á steypu. Aalborg Portland sementið er
framleitt í Álaborg og er flutt laust til landsins í sérbyggðum stórflutningaskipum.
Sementið er framleitt samkvæmt stöngustu gæða- og umhverfisstöðlum. Nánari
upplýsingar um fyrirtækið og framleiðslu þess er að finna á vefsvæðinu www.aalborg-
portland.is.
Helstu framieiðsluvörur Aalborg Portland
RAPID® sement. Portlandssement. Styrkleikaflokkur 52,5 N. Lágt alkalí-innihald og
nær miklum styrkleika á skömmum tíma. Hentar mjög vel við alhliða steypuvinnu.
Þrátt fyrir mikinn styrk er hitamyndun vel viðunandi. Fjöldi rannsókna á Rapid
sementi og íslenskum fylliefnum staðfesta að steypan uppfyllir allar kröfur í íslensk-
um stöðlum og reglugerðum um styrkleika, veðrunar- og alkalíþol.
BASIS® sement. Portlands kalksteinssement. Styrkleikaflokkur 52,5 R. Sterk steypa
strax í upphafi og heldur styrkleika vel. Hefur ásamt Rapid sementi þótt henta sér-
lega vel til framleiðslu á forsteyptum einingum.
MESTER® sement. Portlandssement. Styrkleikaflokkur 42,5 N. Mester sement er
hægharðnandi sement með langan líftíma í bala og hentar sérstaklega vel til
múrviðgerða og til pússningar. Sementið er fáanlegt í hentugum 25 kg pokum.
LAVALKALI® sement. Portlandssement. Styrkleikaflokkur 42,5 N. Lágalkalí og
súlfatþolið sement sem hentar sérlega vel til við gerð stórra mannvirkja þar sem rúm-
mál steypu er mikið t.d. byggingu vatnsaflsvirkjana.
AALBORG WHITE® sement. Portlandssement, styrkleikaflokkur 52,5 N. Hvítt
sement sem hefur mikinn hreinleika. Hvíta sementið er mjög vinsælt til að ná fram
hvítum lit í steypuna og/eða til litunar á steypu til ýmissa sérverkefna. Hvíta sem-
entið hefur sama styrk og svipaða eiginleika og Rapid sement.
1 3 2
Arbók VFl/TFl 2005