Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Page 11
Tæknifræðingafélagið hefur staðið að útgáfu Árbókar TFÍ og VFÍ frá upphafi auk þess að
standa að útgáfu Verktækni með félögum verkfræðinga.
Eins og fram hefur komið hefur Tæknifræðingafélagið lagt áherslu á menntun og
træðslu smna félagsmanna allt frá stofnun félagsins 1960. Árbókin birtir að venju margar
ahugaverðar greinar. Greinar sem vekja lesandann til umhugsunar um það sem verið er
að gera í fræðaheimi tæknimanna. Hér eru birtar greinar nemenda og kennara við
haskólana, þar sem þeir gera grein fyrir rannsóknum sínum.
Miklar sviptingar urðu á vinnumarkaði háskólamenntaðra tæknimanna á liðnu ári. Fjöldi
starfa var lagður niður og atvinnuleysi hefur aukist. Aldrei fyrr í sögunni hafa jafn-
margir tæknifræðingar verið án atvinnu um lengri tíma eins og nú. Aldrei fyrr hafa
tæknifræðingar þurft að sæta viðlíka aðhaldsaðgerðum af hálfu vinnuveitenda, en þar á
eg við aðhaldsaðgerðir opinberra stofnana og fyrirtækja í eigu ríkis og sveitarfélaga
Pessum stofnunum og fyrirtækjum hefur verið gert að hagræða og endurskipuleeeja
starfsemi sína og ná fram um 10% hagræðingu og lækkun rekstrarkostnaðar.
Við þessar aðstæður í þjóðfélaginu hefur verið litið til nýsköpunar í atvinnulífinu sem
einnar af forsendum þess að hægt verði að koma efnahag landsins á réttan kjöl að nýju.
bþornmalamenn vilja gjarnan geta gert grein fyrir nýsköpun í tæknigreinum og taka
luslega þatt þegar vinna á opinbera áfangasigra á því sviði.
En svo kemur bakslagið.
í nýframlögðum fjárlögum fyrir næsta ár, 2011, eru framlög til háskólanna stórlega
skorin mður. Forgangsröðun niðurskurðarins vekur furðu og áhyggjur tæknimenntaðra
manna. Ljóst er af þeim tillögum sem fyrir liggja að skorið verður niður í tæknitengdu
haskolanami umfram aðrar háskólagreinar. I grein Gunnars Guðna Tómassonar í Frétta-
btaðinu 11. oktober 2010 kemur fram að framlög fyrir hvern ársnemanda í fullu tækni-
nami og raunvísindum eru lækkuð um 12,2% en önnur framlög utan tæknináms lækka
mmna eða jafnvel hækka. Hvernig á nýsköpun í tæknigreinum að geta orðið þegar
niðurskurður er látinn bitna svo ótæpilega á þessum greinum?
Á sama tima og stjórnvöld á íslandi skera niður fjárframlög til tæknitengdra háskóla-
greina auka nágrannaþjóðirnar fjárframlög til þessara háskólagreina. í Svíþjóð til að
mynda hafa stjórnvöld ákveðið að auka fjárframlög til tæknigreina um 20% umfram
Q?rfíug'rfÍnar' K°nl Þetta tram 1 erindi Dr. Björns Birgissonar, aðstoðarrektors KTH í
Stokkholmi Ný hugsun í tækni- og verkfræðinámi" sem flutt var á afmælisdögum
t ækmfræðifelagsins sem haldnir voru í Háskólanum í Reykjavík 20.-22. október 2010.
j stað þess að skera niður tæknitengt háskólanám ætti að leita leiða til að ná fram
hagræðmgu og „bestun" á þessu sviði. Útflutningstekjum fslendinga má skipta í fjórar
megmstoðir: tækni- og hugverkaiðnað, matvælaiðnað, ferðaþjónustu og stóriðju.
1 æknimenntaðir starfsmenn eru víðast hvar en þó mest áberandi í tækni- og hugverka-
lönaði. Við stóriðjuna starfar einnig fjöldi tæknimanna.
Til að efla og styrkja tækninám á háskólastigi ætti að sameina tæknifræði- og verk-
træðideild Háskólans í Reykjavík, verkfræðideild Háskóla íslands og tæknifræðihluta
Keihs a Reykjanesi í eina menntastofnun eða Tækniháskóla.
Auk þess þarf að stórefla áhuga ungmenna á menntun í iðngreinum. Þar vex og dafnar
ahugi á tækni og vísindum og hvetur ungmenni oft til frekara náms.
Nú þegar erfiðir tímar eru framundan, skora ég á forráðamenn þessara menntastofnana
taka upp viðræður sín á milli sem leiði til aukinnar hagkvæmni og hagræðingar til að
regðast við þeim niðurskurði sem fyrirsjáanlegur er. Með sameiningu námsbrauta í
tækmfræði og verkfræði í einn háskóla má ná fram skilvirkara námsframboði í tækni-
greinum á háskólastigi.
Félagsmál
V F í / T F í
9