Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Page 32
SAMEIGINLEGUR REKSTUR TFÍ OG VFÍ
1.3.1 Uppbygging og starfsemi TFÍ/VFÍ
starfsárið 2009-2010
Skrifstofa
Skrifstofan er rekin sameiginlega af Stéttarfélagi verkfræðinga, Verkfræðingafélagi
Islands og Tæknifræðingafélagi Islands. Skrifstofan veitir félagsmönnum alla nauðsyn-
lega þjónustu og er bakhjarl fyrir innra starf félaganna. Skrifstofan er opin alla virka daga
frá 9-12 og 13-17, nema á föstudögum til kl. 16:00. Lokað er í júlímánuði vegna sumar-
leyfa.
Á skrifstofunni starfa Árni Björn Björnsson framkvæmdastjóri, Sigrún S. Hafstein,
sviðsstjóri útgáfu- og markaðsmála, Þrúður G. Haraldsdóttir, sviðsstjóri kjaramála,
Guðríður Ó. Magnúsdóttir skrifstofustjóri, Ingibjörg Ósk Birgisdóttir, fulltrúi í móttöku,
Ingigerður Jónsdóttir, fulltrúi sjóða, og Þórunn Árnadóttir, fulltrúi menntunarnefnda.
Logi Kristjánsson hefur leyst Þrúði G. Haraldsdóttur af í veikindum hennar síðan
haustið 2009.
Fundir og ráðstefnur
Fjöldi funda og skoðunarferða var haldinn á vegum félaganna á starfsárinu og listinn í
kafla 1.3.3 er merki um öflugt og fjölbreytt starf. Samrekstur skrifstofu VFÍ, TFÍ og SV
hefur reynst vel og samstarf félaganna er gott. Samlokufundir áttu sinn fasta stað í
félagsstarfinu og voru vel sóttir. Heiti potturinn, morgunfundir um málefni líðandi
stundar hafa skipað sér fastan sess og á vegum deilda félagsins var farið í heimsóknir til
fyrirtækja og í skoðunarferðir. Fundir og námskeið tóku vissulega mið af breyttum
aðstæðum á vinnumarkaði eins og árið á undan, líkt og sést best á fyrrnefndum lista.
Nýsköpun í verki
8. maí 2009 stóðu VFÍ, TFÍ og SV fyrir ráðstefnu um framsækin fyrirtæki í tæknigreinum.
Yfirskrift ráðstefnunnar var Nýsköpun í verki og var hún haldin í Öskju. Markmiðið var
að draga fram nýjungar í verkfræði og tæknifræði og kynna verkefni þar sem íslendingar
eru framarlega á sviði nýsköpunar. Kynnt voru sjö fyrirtæki sem eru misjafnlega langt
komin en eiga það þó sameiginlegt að vera komin vel á skrið, sum eru meðal þeirra
fremstu í heiminum á sínu sviði. Flvatinn að ráðstefnunni var umræðan um nýsköpun
sem leið út úr efnahagsvanda þjóðarinnar. Ráðstefnan gaf þátttakendum færi á að kynnast
starfsemi framsækinna tæknifyrirtækja sem eru að skapa raunveruleg verðmæti í dag.
3 o
2 0 10