Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 156
Vegna þessarar hættu hefur Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) komið upp níu við-
vörunarstöðvum (Volcanic Ash Advisory Center, VAAC) í heiminum þar sem fylgst er
með eldgosum og dreifingu ösku í lofti. Tvær þeirra eru í Evrópu, í Toulouse og London-
A Islandi og á Jan Mayen (þar gaus síðast árið 1985) verða líklega einu eldgosin sem
stöðin í London fylgist með. Er hún því í nánu samstarfi við Veðurstofu íslands-
Megintilgangur þessara stöðva er að gera „flugheiminum," einkum þeim sem annast
flugleiðsögu, viðvart um eldgos og dreifingu ösku. Því skiptir öllu máli fyrir flugumferð
að vita hvort um er að ræða hreint hraungos eða öskugos. Almenna reglan er sú að
flugumferðarstjórar veita ekki heimild til flugs gegnum ösku sem viðvörunarstöðin hefur
spáð um.
Að morgni 14. apríl klukkan 05:23 lét Veðurstofa íslands vaktstöðina í London vita að eld-
gos væri við að hefjast. í kjölfarið hóf viðvörunarstöðin að senda öskudreifingarspá til
flugstjómenda á sex klukkustunda fresti. Vegna eðlis og stærðar gossins varð fljótlega
ljóst að askan bærist langar leiðir í efri loftlögum og yfir svæði þar sem flugumferð er
mikil. Hún feyktist í fyrstu frá suðaustri til norðausturs af landinu til Skandinavíu og
Bretlands. í raun varð flugumferð í allri Vestur Evrópu fyrir barðinu á öskudreifingunnj
áður en eldgosinu lauk, auk þess sem áhrifanna gætti víðar, því ekki var hægt að leggja 1
lengra flug en sex tíma þar sem öskuspáin náði ekki yfir lengra tímabil. Mikil samvinna
var á íslandi milli helstu sérfræðinga Flugmálastjórnar íslands, Isavia, Veðurstofunnar og
jarðvísindamanna hvað varðar flugöryggi, lofthæfi, flugleiðsögu auk jarð- og veðurfræði,
enda er dreifing öskunnar og leiðir til að forðast vá hennar ekki eingöngu bundin við
lofthæfi flugvéla eins og margur kann að halda. Samvinnan náði einnig langt út fyr*1'
landsteinana. Eurocontrol boðaði flugmálastjórnir og flugleiðsöguþjónustufyrirtæki tíl
símafundar mánudaginn 19. október. Niðurstöður þess fundar fóru fyrir fund ráðherra,
sem Evrópusambandið boðaði strax í kjölfarið, auk þess sem þennan dag var haldinn
símafundur með Alþjóðaflugmálastofnuninni og flugmálastjórnum þeirra landa seú1
liggja að Norður-Atlantshafinu, svokallaðs NAT SPG-svæðis. í kjölfarið voru tekin upp
ný viðmið í Evrópu þar sem loftrýminu var skipt upp eftir spá viðvörunarstöðvarinnar í
London um dreifingu öskunnar og hugsanlegrar öskumettunar. Um var að ræða svo-
kölluð hvít, rauð og svört svæði, þar sem öruggt var talið að fljúga um hvítt svæði, rautt
gæti hugsanlega innihaldið einhverja ösku og gátu flugrekendur að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum flogið um þau svæði. Svart svæði var skilgreint þannig að talið var
líklegt að það innihéldi hættulega þéttleika ösku. Flugmálastjórn íslands fer með ábyrgð
á loftrými landsins og tók stofnunin virkan þátt í að aðstoða Isavia og samþykkja nýja
vinnuferla, bæði hjá Isavia varðandi heiiU'
ildarveitingar til blindflugs í loftrýminu, svo
og nýja vinnuferla hjá flugrekendum un)
það hvernig þeir mættu og gætu hagað flug1
sínu þegar spáð er öskumengun í loftt;
Viðvörunarkerfið virkaði vel eins og til hafð1
verið ætlast. Alvarleg hætta skapaðist ekki,
engin slys urðu né bilun í hreyflum loftfara,
enda tókst nánast að stöðva alla flugumfetð
á öskuspásvæðum. Fregnir bárust þó af þvl
að öskuagnir hefðu fundist í einstaka
hreyflum. Afleiðingar eldgossins og ösku-
dreifingarspánna urðu hins vegar gríðaf'
legar. Talið er að ekki hafi orðið meiri röskuu
á samgöngum í Evrópu síðan í heimsstyr)'
öldinni á árunum 1939-1945. Daginn eftir að
eldgosið hófst var um 80% flugferða aflýst a
_________________________ Norðurlöndunum, Bretlandi og Vestuí'
lcelandair færði skiptistöð (Hub) sína til Glasgow. Evrópu og hélst SVO næstu fimm daga í röð-
(mynd eftir Orra Eir(ksson) Tekjumissir flugrekanda var þá áætlaður uu1
1 5 4
Arbók VFl/TFl 2010