Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Page 277
Rýmið er gríðarstórt eða um 40 metr-
ar í þvermál og allt að 20 metra hátt.
Hringlaga lögun rýmisins og glerj-
aðir útveggir verða óhjákvæmilega
til þess að fókusa hljóð inn að miðju.
Ómtími í rýminu án nokkurra að-
gerða var áætlaður nálægt sex sek-
úndum, sem er með öllu móti
ómögulegt. Hér þurfti því, á sama
hátt og í gangveginum Jörð, að nota
nær alla tiltæka fleti til hljóðdeyf-
ingar. Lausnirnar eru flestar þær
sömu, þ.e. klætt er undir stiga, fram-
an á svölum milli hæða og í kringum
upphækkaðan þakglugga og á veggj-
um þar sem því var við komið með
gipsi og steinull. Reynt var að dreifa
hljóðdeyfingu þannig að hún dreifði
hljóðinu að einhverju leyti líka.
Niðurstaðan í báðum þessum rým-
um, Sól og Jörð, er sú að ekki berg-
málar og mögnun hávaða er í lágmarki, sem er það sem stefnt var að. Rýmin óma að sjálf-
sögðu nokkuð, Sól aðeins meira en Jörð, og bæði töluvert meira en önnur rými skólans.
Það er hinsvegar fullkomlega eðlilegt í ljósi stærðar þeirra eins og komið var inná fyrr í
þessum texta. Það sem mestu máli skiptir er að þau hljómi þægilega og eðlilega.
Ónnur rými
Mikil vinna var lögð í að ná sem bestri hljóðvist í ýmsum annars konar rýmum en þeim
sem hér hafa verið nefnd. Má þar nefna skrifstofurými, sérstaklega opnar skrifstofur,
tilraunastofur, lestrarsali, hópvinnu- og fundarherbergi og margt fleira sem ekki er rúm
til að fjalla sérstaklega um hér. Þær lausnir sem notaðar voru eru þó í meginatriðum
svipaðar eða þær sömu og lýst hefur verið. Þá má sérstaklega nefna stórt og veglegt
bókasafn og glæsilegan matsal sem bæði eru fullhönnuð. Bygging þeirra mun þó bíða
betri tíma.
Líkanreikningar
Oll helstu rými byggingarinnar voru sett upp í
þrívíddar-reiknilíkön og hermd í hljóðvistar-reikni-
forritinu ODEON. Forritið reiknar flestar helstu
kennistærðir er varða hljóð og gefur m.a. mögu-
leika á að sýna þær myndrænt en einnig hljóðrænt,
þ.e. mögulegt er að heyra hvernig tiltekið rými ætti
að hljóma fullbúið. Eru slík reiknilíkön því gríðar-
lega öflug verkfæri þegar hanna á rými samkvæmt
ýtrustu kröfum, ekki síst vegna þess hversu auðvelt
°g fljótlegt er að prófa hinar mismunandi lausnir
sem kunna að koma til greina.
Mynd 9. Sýnir ODEON líkan af miðsvæðinu
Sól. Litirnir gefa til kynna hversu mikil
hljóðdeyfing hvers flatar er og á hvaða
tíðnum hún er virkust. Þannig er hljóðdeyfing
meiri því dekkri sem flöturinn er.
Tækni- og vísindagreinar i 2 7 5