Tónlistin - 01.11.1943, Blaðsíða 70

Tónlistin - 01.11.1943, Blaðsíða 70
68 TÓNLISTIN listarkennslu gegn um útvarpið, ef for- ráðamenn þess vildu meðtaka þann skilning, að það er allsendis ónóg- að láta grammófóninn snúast í útvarpsstof- unni þegar skrúfað er fyrir öll viðtæki landsins. Nei, þá væri betra að unna grammófóninum hvíldar og láta í hans stað einhvern vel menntaðan tónlistar- mann koma að hljóðnemanum og segja tónlistarsögu eða gefa verkefni í hljóm- fræði, það er víst hvort sem er séð um, að þeir hafi ekki of rnikið að starfa hér heima. Ég bið yður velvirðingar á þessum bollaleggingum mínum, en einhvernveg- inn verður það, sem manni býr í brjósti, að fá útrás. Steingrímur Sigfússon Patreksfirði. RÝR NÓTNAKOSTUR. Að gefnu tilefni vildi ég draga fram eitt atriði, sem mér finnst vert að sé gaumur gefinn. Á íslenzkum nótnamark- aði verður þess mjög tilfinnanlega vart, hve litlu hér er úr að velja af aðgengi- legri orgelmúsík fyrir almenning, þegar sleppt er safni Brynjólfs Þorlákssonar, sem var mjög vel þegið á sínum tíma. Auk þess hefir birzt eitt hefti af Tónum og eitt hefti af Samhljómum. Hví kem- ur ekki framhald? Ég- þykist vita, að það sé vegna þess að kaupendur eru of fáir. Ríkið á að styrkja alþýðlega út- gáfu með góðverkum innlendra og er- lendra höfunda. Sverrir Gíslason Hvammi í Norðurárdal. Það er ófrávíkjanleg regla min, að ég kaupi allar útgáfur, sem birtast á sviði tónlistar, alveg eins það margbrotna og strembna, sem ég ræð ekki við, eins og það einfalda og' viðráðanlega. Ég álít það skyldu allra þeirra, sem nótur þekkja, að gera þetta. Það má vissulega ekki minna vera — ekki minni viður- kenning þeim til handa, sem fórna fé og tíma fyrir listina, hina fögru list, tónlistina. Ég fer dálítið nærri um það, hversu dýrt og erfitt það er núna á tímum að gefa út söngrit og nótna- bækur, og ég vildi óska, að sem flestir mundu skilja það. Það, sem ég finn að tónverkum ýmissa nútíma tónsnillinga íslands, er það, að þeir þekkja ekki nógu vel sina eigin þjóð. Hún er nefnilega enn stödd á frumskeiði þekkingarinnar, að minnsta kosti i tónlist, sem raunar er ekki nema eðlilegt. Þroskabraut hennar i þeim efn- um nær naumast aftur fyrir siðustu aldamót. Ég er fæddur 1880, og mér er óhætt að segja það, að fram að aldamót- um söng hver með sínu nefi. 18 ára gamall lærði ég að leika á stofuorgel — eða 1S9S — og svo hræðilegu hornauga var ég litinn af öllum fyrir þetta athæfi mitt — ekki sízt af eldri kynslóöinni — að menn álitu að ég mundi fyrir tiltækið aldrei reynast fær um að vinna fyrir brauði mínu. — Það yrði of löng saga að segja frá því öllu hér, en ég skrifaði ofurlítið af minni tónlistarsögu i Lesbók Morgunblaðsins fyrir nokkrum árurn. Það mun hartnær óumdeilanlegt, að íslenzk alþýða hefir yfirleitt ekkert vit á stórbrotnum tónverkum. Það þýðir ekkert að bjóða henni nema einföld og létt tónverk. Ég þekki þetta svo vel af eigin raun. Ég hefi alla ævi mína lifaö og hrærzt i samvist við einmitt þetta fólk og verið sjómaður í fjölda ára, og lög eins og hið sigurkrýnda sjómanna- lag, íslands Hrafnistumenn, eru ekki sungin á sjónum, þegar búið er að vinda upp segl, heldur Heyrið morgunsöng á sænum og önnur slík lög. Menn hafa alltaf gaman af að syngja, þótt ekki sé af list. Á öllum öldum liefir það ætíð verið svo og er enn, að mestu listamennirnir hafa jafnan verið mestu vandkvæðamenn sinnar samtíðar. Enginn skildi ljóð Ein- ars Benediktssonar og Stephans G. Stephanssonar á meðan þeir lifðu, en nú vilja allir eiga þau. Skoðun mín er sú, að þjóðin þurfi að fá mikið af léttum og aðgengilegum sönglögum á meðan hún er að læra að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tónlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.