blaðið - 24.08.2007, Side 18
26
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2007
blaóiö
LÍFSSTÍLLVEIÐI
veidi@bladid.net
Ég var búinn að vera með
hann á í 15 mínútur, fiskurinn
tókflugu hjá mér. Það er mikið
af fiski hérna í Dalsárósnum.
Sportvörugerðin lif..
Sk i pliolt 5. 5C2
Sérfraeöingar
i fluguveiði
Nælum stanglr,
splæsum Ifnur
og setjum upp
Góð silungsveiði í Miðfirði
Laxinn tregari en silungurinn
Góð veiði Fallegar bleikjur af
silungasvæðinu í Miðfjarðará.
Veiðin hefur verið góð á silunga-
svæðinu í Miðfirði og veiðimenn,
sem þar voru um síðustu helgi,
veiddu þrjá laxa og fimm væna sil-
unga, fjórar bleikjur og einn vænan
urriða. f Brúarhylnum eru á milli 30
og 40 laxar en þeir eru tregir að taka
hjá veiðimönnum. Silungurinn sem
veiðist er vænn og hafa veiðimenn
séð töluvert af honum á nokkrum
stöðum í ánni.
„Þetta var ágætt. Ég veiddi tvo
laxa og einn silung. Það var töluvert
af laxi við brúna, en hann var tegur.
Ég fékk fyrsta laxinn í fyrsta kast-
inu um morguninn,” sagði Þráinn
Traustason sem var við veiðar á sil-
ungasvæðinu í Miðfirði.
„Laxinn er tregur að taka þótt þeir
séu margir hérna við brúna,“ sagði
Ari Arason sem líka var við veiðar
þarna og kastaði grimmt á hylinn.
Veiðin hefur gengið vel á silunga-
svæðinu í Miðfjarðará í sumar,
einnig á silungasvæðunum í Víði-
dalsá og Vatnsdalsá. Veiðimenn
sem voru á silungasvæðinu í Víði-
dalsá veiddu 35 fallegar bleikjur.
Merkið sem
þú treystir
DREIFING/ÞJONUSTA:VEIÐITÆKNI S:5771400
ÉiBenellÍ
5 arm ubyrgð é öllum nyjum byitum
Víðidalsá
Vænn og góður Ingvar Karl, Rósant,
Jón Felix og útlendur vinur þeirra við
Dalsárósinn með laxinn sem veiddist.
Dretfing:
Hólmasloö 1 • 101 FUykjavik • Simi 562-0095/890*404? • www.veidihusid.is
Fjör við Dalsárósinn
Eftir Gunnar Bender
g.bender@bladid.net
„Ég var búinn að vera með hann
á í 15 mínútur, fiskurinn tók flugu
hjá mér. Það er mikið af fiski hérna
í Dalsárósnum,” sagði Rósant Freyr
Birgisson þegar blaðamaður hitti
hann við Dalsárósinn í Víðidalsá
í Húnavatnssýslu fyrir nokkrum
dögum. Þá var hann rétt nýbúinn
að landa fallegum 6 punda laxi.
Með honum við veiðiskapinn voru
þeir Ingvar Karl leiðsögumaður, Jón
Felix og útlendur vinur þeirra.
Það var bleikja og lax á lofti á mín-
útu fresti í Dalsárósnum. Hylurinn
var spegilsléttur og sumir laxarnir
voru vænir.
„Laxinn var skemmtilegur og tók
vel í,“ sagði Rósant ennfremur.
„Ég ætla að reyna eitt kast enn. Fisk-
urinn stekkur og stekkur um allan
hylinn. Kannski fæst fiskurinn til
að taka,” sagði Ingvar Karl leiðsögu-
maður og labbaði að hylnum til að
kasta. Fiskurinn stökk.
Dalsárósinn er einn allra besti
veiðistaðurinn í Víðidalsá en í
sumar hefði samt veiðin mátt vera
betri í ánni en núna eru komnir rétt
um 300 laxar á land. Hópur sem var
að ljúka veiðum í Víðidalsá veiddi 12
laxa og töluvert af bleikju.
Veiðimennirnir köstuðu enn
þegar ég fór. Fiskurinn stökk, takan
var kannski ekki mikil en einn og
einn fiskur gaf sig. Það var fyrir
mestu fyrir veiðimennina.
Vantar þig veiðileyfi? www.svfr.is er rnálió!
Úrval veiðileyfa - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu
Fréttir, greinar, fróðleikur og margt fleira