Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 2

Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 2
26. maí 2012 LAUGARDAGUR2 SPURNING DAGSINS Kristján, voru þetta klaufa- legar lagasmíðar? „Ég hef nú lengi komið fram ásamt hljómsveit undir nafninu Kristján Hreinsson og hljómsveitin Hans. Ætli ég sé þá ekki Hans klaufi?“ Kristján Hreinsson, Skerjafjarðarskáld, samdi flest lögin á væntanlegri plötu kántrísveitarinnar Klaufanna. Fyrsta lagið, Lífið er ferlega flókið, er nýkomið í spilun. FULLKOMINN FERÐAFÉLAGI! SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Hafnarfjarðar ætlar að greiða Orlofsnefnd húsmæðra í bænum rúmar 2,5 milljónir króna vegna húsmæðraorlofs eins og nefndin gerði kröfu um með vísan í lög. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu borguðu bæjar- yfir völd greiðslu ársins 2011 ekki fyrr en í janúar á þessu ári en ekki í maí 2011 eins og orlofsnefndin taldi rétt. Bæjarráð ítrekaði hins vegar bókun sína frá 26. ágúst 2010 um að lögin um orlof húsmæðra séu úrelt og „ekki í samræmi við gildandi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nútíma jafnréttissjónarmið og jafnréttisáætlun Hafnar- fjarðar.“ Bæjarráð skoraði á Alþingi og Samband íslenskra sveitarfé- laga að beita sér fyrir því lögin verði felld úr gildi. - gar Orðið við kröfu húsmæðra: Borga orlofið með semingi EGYPTALAND, AP Mohammed Morsi, forsetaefni Bræðralags múslima, hafði í gær tryggt sér flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninganna í Egyptalandi. Hann verður því í kjöri í seinni umferð forsetakosn- inganna, sem haldin verður helgina 16. og 17. júní. Síðdegis í gær var búið að telja mikinn meirihluta atkvæða, en þó var ekki orðið endanlega ljóst hvort Ahmed Shafik eða Hamdeen Sabahi yrði í öðru sæti. Í seinni umferðinni verður kosið á milli þeirra tveggja frambjóðenda, sem flest atkvæði fengu í fyrri umferðinni. Shafik virtist þó ætla að hafa vinninginn, en hann er fulltrúi gömlu valdastéttarinnar. Hann var síðasti forsætisráðherra Hosni Mub- araks forseta, tók við embættinu nokkrum vikum áður en Mubarak hrökklaðist frá völdum snemma á síðasta ári og sat þangað til bráða- birgðastjórn hersins tók við. Sabahi er hins vegar vinstri maður, veraldlega sinnaður og þótti lengi vel eiga litla möguleika á sigri. Bræðralag múslima hefur boðað það að íslömskum lögum verði komið á í landinu. Þetta óttast hóf- samari múslimir ekki síður en verald lega sinnaðir Egyptar, og svo kristni minnihlutinn í landinu. Bræðralag múslima eru voldug samtök íslamista, sem upphaflega voru stofnuð í Egyptalandi árið 1928 en eru nú fjölþjóðleg samtök með öfluga hreyfingu í flestum mús- limaríkjum. Þau hafa staðið fyrir hryðju- verkum og voru lengi vel bönnuð í Egyptalandi, en nutu engu að síður mikilla vinsælda, ekki síst vegna linnulausrar baráttu þeirra fyrir réttindum og velferð múslima. Morsi nýtur því verulegs fylgis meðal heittrúaðra múslima en á sér að sama skapi marga andstæðinga. Sömu sögu er að segja af Shafik, sem vissulega hefur tekist að afla sér furðu mikils fylgis en á sér ekki síður harða andstæðinga, ekki síst meðal þeirra sem börðust hvað harðast gegn stjórn Mubaraks á sínum tíma. - gb Forsetaefni Bræðralags múslima keppir við fulltrúa gömlu stjórnarinnar: Andstæðar fylkingar mætast MOHAMMED MORSI OG AHMED SHAFIK LÖGREGLUMÁL Sérstakur sak sóknari var meðvitaður um fyrirætlanir þeirra Guðmundar Hauks Gunnars- sonar og Jóns Óttars Ólafssonar um að hefja störf sem sjálfstæðir rannsakendur eftir að þeir létu af störfum hjá embættinu. „Rannsak- endur hér hafa vitaskuld ákveðna þekkingu og reynslu sem hægt er að taka með sér í aðra starfsemi. Við áttum hins vegar alls ekki von á að sú staða kæmi upp að þeir myndu liggja undir grun um að hafa not- fært sér gögn úr rannsóknum þeirra hjá embættinu,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Embætti sérstaks saksóknara hefur kært þá Guðmund og Jón til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnar skyldu í starfi. Þeim er gefið að sök að hafa selt upplýsingar, sem þeir urðu sér úti um í störfum fyrir embættið, til þrotabús Milestone. Tvímenningarnir unnu meðal annars sautján blaðsíðna skýrslu fyrir þrotabúið um gjaldþol Mile- stone veturinn 2007 til 2008. Það flækir málið að þrotabúið hefur átt heimtingu á að fá aðgang að stórum hluta þeirra gagna um starfsemi Milestone sem sérstakur sak sóknari hefur undir höndum. Í yfirlýsingu frá Grími Sigurðs- syni, skiptastjóra þrotabúsins, kom þannig fram að hann teldi að þrota- búinu hefði verið heimilt að fá öll þau gögn sem afhent voru á grund- velli rannsóknar tvímenninganna fyrir þrotabúið. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst var skýrslan unnin, í það minnsta að hluta, á sama tíma og mennirnir störfuðu fyrir sérstakan saksóknara. Þeir létu endanlega af störfum fyrir embættið í febrúar á þessu ári en störfuðu þó um tíma sem verktakar eftir að hafa hætt formlega um áramótin. - mþl Sérstakur saksóknari var meðvitaður um fyrirætlanir fyrrum starfsmanna um að starfa sjálfstætt: Átti ekki von á að grunur um brot kæmi upp „Við áttum hins vegar alls ekki von á að sú staða kæmi upp að þeir myndu liggja undir grun um að hafa notfært sér gögn úr rannsóknum þeirra.“ ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI FÓLK „Ég hef verið að leggja hart að mér og reyna að gera mitt besta,“ segir Auður Lóa Guðnadóttir, nítján ára gamall dúx Fjölbrautarskólans í Breiðholti, spurð hvort árangur- inn hafi komið henni á óvart. Auður Lóa fékk 9,05 í meðaleinkunn en hún lauk stúdentsprófi af listnáms- braut skólans á þremur árum. Hún hlaut að auki fjölda verðlauna fyrir námsárangur í einstökum greinum á útskriftarathöfninni, sem fór fram í Háskólabíói í gærdag. Auður Lóa segist ekki hafa verið ákveðin í því frá upphafi að klára námið á þremur árum. „Nei, ég var búin að taka eitthvað smá í ensku í fjarnámi áður og svo ákvað ég eftir fyrsta árið að það væri jafnvel bara skemmtilegra að taka þetta á þremur árum því myndlistarbrautin er í sjálfu sér bara þrjú ár.“ Fyrr í vikunni fékk Auður Lóa bréf þess efnis að hún hefði komist inn í myndlistardeild Listaháskóla Íslands, og þar hefur hún nám í haust. „Ég hélt eftir viðtalið að ég myndi ekki komast inn, mér fannst ég alveg klúðra því, en svo fékk ég bréf fyrr í vikunni,“ segir hún. Fjöldi nemenda hefur farið af list- námsbrautinni yfir í Listaháskólann og Auður Lóa segist þekkja nokkra aðra af brautinni sem hafi sótt um nú. Allir komust inn. Hún segir að námið veiti mjög góðan undir- búning. Fréttablaðið náði tali af Auði Lóu stuttu eftir að útskriftarathöfninni lauk. Hún fagnaði með veislu seinni partinn í gær. En hvað tekur svo við fram að náminu í Listaháskólanum? „Í sumar ætla ég að fara með fjöl- skyldunni til Parísar í þrjár vikur. Annars verð ég að vinna í Fossvogs- kirkjugarði.“ thorunn@frettabladid.is Nítján ára dúx á leið í Listaháskólann Auður Lóa Guðnadóttir dúxaði í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, en útskriftar- athöfnin var í gær. Auður Lóa tók stúdentspróf af listnámsbraut á þremur árum og komst í vikunni inn í BA-nám í myndlistardeild Listaháskóla Íslands. MEÐ FULLT FANG AF VIÐURKENNINGUM Auður Lóa var verðlaunuð fyrir margvíslegan árangur við skólaslitin og útskriftina í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STJÓRNMÁL Ástþór Magnússon og Hannes Bjarnason skiluðu í gær til innanríkisráðu neytisins endanlegum undirskriftar- listum vegna framboðs til emb- ættis forseta Íslands. List- arnir voru vott- aðir af kjör- stjórn, þó með fyrirvara hvað Ástþór snertir vegna meintra falsana undir- skrifta í Norð- austurkjör- dæmi. Fjöldi nafna á lista Ástþórs í kjördæm- inu mun vera 171 sem er fimm fleiri en tilskilið er. Hins vegar á eftir að draga frá fölsuðu nöfnin sem talin eru tuttugu til þrjátíu talsins, svo sterkar líkur eru á að Ástþór sé úr leik. Í dag geta frambjóðendurnir skoðað og gert athugsemdir við listana í innanríkisráðuneytinu. Ráðuneytið hefur frest fram á fimmtudag til að yfirfara gögnin. - gar Sjö frambjóðendur í spilinu: Ástþór enn á tæpasta vaði ÁSTÞÓR MAGNÚSSON KOSNINGAR Ólafur Ragnar Grímsson mælist með 45 pró- senta fylgi í nýrri skoðana- könnun Gallup. Þóra Arnórs- dóttir mælist með 37 prósent. Ólafur hefur því níu prósenta forskot á Þóru. Ari Trausti Guðmundsson mælist með 9 prósenta fylgi en aðrir frambjóðendur með mun minna. 1350 manns voru spurðir í könnuninni sem fór fram 18. til 25. maí. Svarhlutfall var 59 prósent. MMR birti einnig nýja könnun í gær. Þar mælast Ólafur og Þóra jöfn, með rúmlega 41 pró- senta fylgi. Sú könnun var gerð 21. til 24. maí og svöruðu 856 einstaklingar henni. - þeb Kannanir frá Gallup og MMR: Ólafur með for- skot í könnun ÞJÓNUSTA Mikil vonbrigði eru á þeim stöðum á landsbyggðinni þar sem Landsbankinn hefur tilkynnt um lokun útibúa. Ýmsir núverandi og fyrrverandi sveitarstjórnar- menn vilja jafnvel að heimamenn hætti í viðskiptum hjá bankanum sem kveðst loka útibúunum í sparnaðarskyni. Íslandspóstur sagðist í gær þurfa að gera ýmsar breytingar á starfsemi sinni á þeim stöðum þar sem fyrirtækin hafa sam- eiginlega afgreiðslu. Samkvæmt bráðabirgðaáætlun Íslandspósts er fyrst og fremst um styttingu á opnunartíma að ræða. - gar Hliðaráhrif af lokun útibúa: Skemur opið hjá Póstinum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.