Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.05.2012, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 26.05.2012, Qupperneq 10
26. maí 2012 LAUGARDAGUR10 TÆKNI Franska herskipið Monge liggur nú við bryggju í Reykjavík. Þar verður skipið fram á miðviku- dag á meðan birgðir eru endur- nýjaðar. Jaques Riviére, skipherra Monge, segir að skipverjar séu nú í fríi á Íslandi, en hafi verið við rannsóknir á hafinu í kring- um landið að undanförnu. Monge er svokallað mælinga- og prófunarskip en tæknilegur útbúnaður skipsins er einstakur. Á því eru til dæmis þrír gríðar- stórir ratsjárdiskar, sá stærsti er 60 tonn að þyngd, firnaöflugur sjónauki, sem hægt er að nota til að skoða stjörnur, jafnvel að degi til, og geisli sem notaður er til að greina lofthita, loftraka og vind í tuga kílómetra hæð. „Yfirleitt er okkar helsta verk- efni að fylgjast með eldflaugatil- raunum, en við erum hér á hafinu umhverfis Ísland til að fylgjast með mögulegum aðskotahlutum á braut um jörðu,“ sagði Riviére skipherra spurður um verkefni Monge. Hann segir að búnaður Monge sé notaður, í samvinnu við geim- vísindastofnun Frakklands, til að fylgjast með slíkum hlutum til að forða því að þeir lendi á gervi- hnöttum og þvílíku. „Við fáum beiðnir um að fylgjast með ákveðnum hlut úti í geimnum og ef okkar mat er að hætta sé á að hann lendi til dæmis á gervihnetti með tilheyrandi skemmdum, er gervihnötturinn færður úr leið hlutarins. Þetta gerist svo til á hverjum degi hjá okkur.“ Sjaldgæfara er svo að stærri hlutir falli til jarðar úr geimnum, en þó hafa tvö slík tilvik komið upp síðustu mánuði. Geimvísinda- stofnanir heimsins nota meðal annars mælingar frá Monge til að reikna út feril og mögulegan lendingastað þeirra. Mælitækin eru gríðarlega nákvæm og geta meðal annars greint hlut á stærð við 100 krónu pening í 800 kílómetra fjarlægð frá Jörðu, og stærri hluti í allt að 5.000 kílómetra fjarlægð. Fátt má út af bera við slíka nákvæmnisvinnu enda er Monge sérútbúið að öllu leyti. Meira að segja litur skipsins er hugsaður í því tilliti, en hvítt dregur síður í sig sólarljós en aðrir litir og því þenst skrokkur skipsins síður út sólarmegin, en það dregur úr skekkju í mælingum. Eftir nokkurra daga afslöppun hér á landi halda skipverjar heim á leið með viðkomu í Færeyjum. Heimahöfn Monge er í borginni Brest, en skipið er jafnan á ferð um Norður-Atlantshafið við mæl- ingar þriðjung ársins. thorgils@frettabladid.is Risaratsjár Monge forða geimárekstrum Franska skipið Monge liggur við Reykjavíkurhöfn. Það er einstaklega vel tækj- um búið og fylgist meðal annars með eldflaugatilraunum og aðskota hlutum í geimnum. Getur numið hlut á stærð við 100 krónu mynt í 800 km hæð. ■ Smíðað 1991 og tekið í notkun árið eftir. ■ Nefnt eftir vísindamanninum Gaspard Monge (1746-1818). ■ Fjórir ratsjárdiskar í Evrópu geta fylgst með fallandi hlutum í neðra lagi lofthjúpsins, einn er í Þýskalandi, hinir þrír eru á þilfari Monge. ■ Stærsti diskurinn, Normandie, er 62 tonn á þyngd og 14 metrar í þvermál. Hægt er að snúa honum í heilhring á 10 sekúndum. ■ Áhöfnin telur um 200 manns. Nú eru þar 124 sjóliðar og 78 tæknimenn. ■ Skipið er afar orkufrekt og er rafmagnsnotkun þess á við 20.000 manna bæ í Frakklandi. Um Monge ÖFLUG TÆKI Jaques Riviére, skipherra Monge, á þilfarinu þar sem ratsjárdiskarnir öflugu eru. Tækjabúnaðurinn á Monge er gríðaröflugur og aðeins eitt annað sambærilegt skip er til í heiminum, en það er í eigu Kínverja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í STJÓRNSTÖÐINNI Tæknimenn um borð í Monge eru með afar fullkomna aðstöðu í líkingu við það sem gerist hjá geimvísindastofnunum. KYNLEG FLEYTA VIÐ KAJANN Monge er einstakt skip bæði hvað varðar tæknilega getu og ekki síður útlit. Hefur það enda vakið verðskuldaða athygli við Skarfabakka. Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað í Volkswagen Passat Comfortline Plus er nú fullkomið leiðsögukerfi með Íslandskorti ásamt bakkmyndavél. www.volkswagen.is Ratvís og víðsýnn Volkswagen Passat EcoFuel Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat Passat Comfortline Plus sjálfskiptur kostar aðeins 4.590.000 kr. Faxaflóahafnir sf. Bjóða íbúum Reykjavíkur til göngu- ferðar um Gömlu höfnina í Reykjavík undir leiðsögn Hjálmars Sveinssonar formanns hafnarstjórnar laugardaginn 26. maí 2012. Á undanförnu ári og fram á árið 2012 hefur stýrihópur á vegum Reykjavíkurborgar unnið að rammaskipulagi Gömlu hafnarinnar í Reykjavík í samvinnu við Graeme Massie arkitekta í Skotlandi. NÚ þegar þeirri vinnu er að mestu lokið vill hafnarstjórn gefa almenningi kost á að kynna sér SKIPULAGIÐ OG RÆÐA ÞAÐ. Lagt verður af stað í gönguna frá styttu Ingólfs Arnasonar á Arnarhóli stundvíslega kl 11:00, gengið verður um austur höfnina og út á Grandagarð að Sjóminjasafninu Víkin þar sem formaður mun KYNNA ÞÆR HUGMYNDIR SEM UNNIÐ ER AÐ. Eina sjónvarpsstöðin í heiminum sem helguð er sönnum sakamálum ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.