Fréttablaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 26
26. maí 2012 LAUGARDAGUR26 Ég er ekki viðkvæm fyrir því að taka hlut sem hefur verið sam- félagslega stimplaður, eins og sjálft orðið klám, og snúa honum upp í eitthvað jákvætt. K onur ímynda sér alla mögulega hluti, þykist ég vita. Ég á von á öllu og ég vil að fantasíurnar séu sannar. Þess vegna er ég að gera þetta,“ segir lögfræðingurinn og varaborgar- fulltrúinn Hildur Sverrisdóttir sem hyggst í lok sumars gefa út bók þar sem íslenskar konur deila sögum af kynferðislegum fantasíum sínum með öðrum. Með það að markmiði hefur Hildur opnað heimasíðuna Fantasíur. is, þar sem konur geta sent inn sýnis- horn úr kynferðislegum hugarheimi sínum án þess að mögulegt sé að rekja sögurnar til sendenda. Tekið er á móti slíkum sögum fram til 17. júní. „Ég er í raun að biðja konur um sögurnar þeirra, sem þær þekkja afar vel og hafa ótal sinnum farið yfir í huganum, til að aðrar konur geti notið þeirra. Ætli megi ekki segja að við séum, í krafti leyndarinnar, fjöldans og samstöðunnar meðal kvenna, að blikka hver aðra,“ segir Hildur. Konur flóknari kynverur Hver voru tildrögin að þessu verkefni? „Ég hef verið að velta þessari hug- mynd fyrir mér í nokkur ár. Þegar ég var í laganámi gegndi ég stöðu fram- kvæmdastjóra V-dagsins, sem snerist meðal annars um að berjast gegn kyn- ferðisbrotum. Þá var sjónum beint að mikilvægi þess að konur noti réttu orðin yfir kynfæri sín og skammist sín ekki fyrir að segja þau, því slíkt valdi til dæmis erfiðleikum við að til- kynna um kynferðisbrot. Í fram haldinu fór ég að velta því fyrir mér hvort í raun væri hið sama upp á teningnum varðandi kynferðis legar fantasíu- hugsanir kvenna. Hvers vegna ættu konur að skammast sín fyrir þær? Í nokkur ár vann ég ásamt öðrum að því að festa þau skilaboð í sessi að ábyrgð í kynferðisbrotamálum sé a lfarið gerendanna og ég held að sú vinna hafi skilað sér út í samfélagið, sem er gott, en hvaða skilaboð eru fólgin í því að ofbeldisbrot séu fyrirferðarmest í opinberri umræðu um konur og kyn- líf? Ég vil taka fram að með þessu er ég á engan hátt að draga úr mikil- vægi umræðu um ofbeldi gegn konum, en ég tel afleitt hversu margar konur skammast sín fyrir svo eðlilegan hlut sem kynferðislegar fantasíur. Hvers vegna ríkir meira samþykki fyrir slíku þegar karlmenn eiga í hlut? Konur eru alveg jafn miklar kynverur og karlar og að mörgu leyti mun flóknari kyn- verur. Þær eru vandfýsnari. Karlmenn eru háðari sjónrænni þáttum, en konur kunna að meta uppbyggingu og stemn- ingu. Þess vegna held ég að svona bók, með kynferðislegum fantasíum í smá- sagnaformi, henti konum mjög vel.“ Hugtakið klám er óljóst Verður bókin þá klám fyrir konur? „Ef ég svara sem lögfræðingur, þá flokkast þessar sögur ekki undir klám heldur kynþokkalist eða erótík. Á hinn bóginn er áhugavert að velta fyrir sér hugtakinu klám, hvað það þýðir og hvar það stendur. Ég leyfi mér að efast um að allir í samfélaginu séu með- vitaðir um hvað er klám og hvað er ekki klám, því hugtakið er óljóst. Þetta þykir mér áhugavert. Ég er ekki við- kvæm fyrir því að taka hlut sem hefur verið samfélagslega stimplaður, eins og sjálft orðið klám, og snúa honum upp í eitthvað jákvætt. Til dæmis á for- sendum kvenna. Gæðaklám, gert fyrir konur og af virðingu fyrir konum.“ Býstu við að framtakið mæti gagn- rýni einhvers staðar að? „Ég geri fastlega ráð fyrir umræðu um bókina, því efnið er þess eðlis. En ég hefði ekki lagt út í þetta án þess að hafa hugsað verkefnið út í öll horn. Ég veit að þetta er skrítið og framandi og ber virðingu fyrir því að þetta gæti farið í taugarnar á fólki við fyrstu sýn. Til dæmis finnst mörgum að kynlíf sé nánast komið inn í eldhús til allra og þykir nóg um. En ég trúi á þetta verk- efni. Það skiptir máli að konur geti notið kynferðislegs efnis á sínum for- sendum og ekki neinna annarra. Svo má auðvitað ekki gleyma því að þetta er stórskemmtilegt og hresst. Ég held að útkoman gæti komið skemmti- lega á óvart og eflt okkur konurnar, að minnsta kosti smávegis. Ég sé í það minnsta ekki hvernig þetta getur skaðað nokkurn.“ Bið bara um heiðarleika Nú hefurðu unnið forvinnu, talað við margar konur um þessi mál og kynnt þér algengustu kynferðisfantasíur kvenna samkvæmt mörgum rann- sóknum. Á hvaða forsendum kemurðu til með að velja sögur í bókina? „Ég hef mínar hugmyndir um það, en núna fyrst í stað hef ég ákveðið að segja sem minnst um þær aðferðir sem ég hyggst nota til að velja fant- asíurnar því ég vil ekki gefa tóninn, meðvitað eða ómeðvitað. Það eina sem ég bið um er að konurnar sem senda mér fantasíur verði einlægar, hispurs- lausar og deili sögunum sem hafa verið verndaðar innan ímyndunar- afls þeirra. Rannsóknir hafa sýnt fram á ýmis algeng atriði í kynferðis- fantasíum kvenna sem ég yrði hissa ef ekki yrði minnst á í sögunum, eins og löngunina til að vera með annarri konu, kynlíf með mörgum, að hafa áhorfendur og ýmislegt fleira, en ég bið bara um að sögurnar séu sagðar af heiðarleika. Hver og ein kona tekur svo verkefninu eins og hún skilur það og fær vonandi úr því það sem hentar hverri og einni.“ Þú segist vonast eftir heiðarlegum sögum. Hvernig geturðu tryggt að fantasíurnar sem þú færð sendar séu í raun og veru frá konum? „Sögurnar verða valdar út frá for- sendum kvenna. Ef einhverjir karlar vilja endilega semja sögur sem svo passa við þær forsendur er það bara fallegt.“ Þegar rætt er um kynlífsfantasíur kvenna er algengt að minnst sé á að hjá mörgum innihaldi slíkar fantasíur nauðgun eða nauðung af einhverju tagi. „Já, það er rétt að þessi umræða kemur alltaf upp. Gjarnan er talað um „nauðgunarfantasíuna“, en það er ekki Hleypir fantasíum kvenna út Hildur Sverrisdóttir lögfræðingur vinnur nú að bók þar sem íslenskar konur deila sögum af kynferðislegum fantasíum sínum með öðrum. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá mikilvægi þess að konur geti notið kynferðislegs efnis á sínum forsendum. FANTASÍUR Þrátt fyrir að Hildur safni nú sögum af kynferðislegum fantasíum íslenskra kvenna segist hún sjálf fremur feimin og eiga ekki auðveldara með að ræða slík mál en hver annar. Sú staðreynd hafi öðrum þræði verið kveikjan að bókinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Í þremur efstu sætunum á metsölulista Amazon um þessar mundir situr erótíska trílógían Fifty Shades of Grey, Fifty Shades Darker og Fifty Shades Freed eftir breska rithöfundinn E.L. James, sem inniheldur meðal annars grafískar og djarfar lýsingar á áhugaverðu kynlífssam- bandi ungs fólks í Bandaríkjunum. „James er bresk úthverfamamma sem skrifaði þessar skáldsögur sem hafa slegið svona rosalega í gegn. Ég hef ekki lesið þær en skilst að þær séu ekkert sérstaklega vel skrifaðar. Það hlýtur að vera ástæða fyrir vin- sældunum. Konum hlýtur hreinlega að hugnast umfjöllunarefnið,“ segir Hildur. ERÓTÍK Í EFSTU SÆTUM rétta orðið því það sem gerist í þínum eigin huga er á þínum for sendum, og það er gerist á þínum forsendum er ekki ofbeldi. Rannsóknir sýna fram á að fæstir vilja í raun upplifa fantasí- urnar sínar. Það gildir um bæði kynin og allra helst um þessa fantasíu. En þessi hugmynd, að ímynda sér að vera tekin með valdi, er vissulega til staðar. Hún er í raun mjög algeng og hefur verið rannsökuð mjög mikið. Engin kona vill verða fyrir nauðgun, en mér þykir þessi umræða áhugaverð og trúi því að það sé betra að mæta henni heldur en þagga hana niður. Það er mikilvægt að segja frá hlutunum eins og þeir eru, því annars krauma þeir undir yfirborðinu og bjóða upp á ýmis konar hættulega mistúlkun.“ Ekki minni tepra en hver annar Ef við veltum fyrir okkur steríótýpum um lögfræðinga, er þá ekki harla ólík- legt að innan þeirra rúmist vinna við bók um kynlífsfantasíur? „Jú, kannski. En ég vil ekki vera steríó týpa. Sjálfri finnst mér ekkert auðvelt eða þægilegt að ræða þessi mál. Ég er að mörgu leyti dálítið feimin og hef alltaf verið. Hugsanlega var það hluti af ástæðu þess að ég réðst í þetta verkefni að ég fann að mér þóttu þessi mál óþægilegt umræðuefni og fór að velta því fyrir mér hvers vegna í ósköpunum svo væri. Margir vinir mínir urðu því mjög hissa þegar ég sagði þeim að ég ætlaði að hella mér út í þetta. En verkefnið snýst ekki um mig.“ En varla þarf að spyrja að því hvert umræðuefnið verður þegar þú hittir ókunnugt fólk á förnum vegi næstu vikur og mánuði? „Ég hafði nú ekki hugsað út í það, en ef fólk vill spjalla við mig um kyn- lífsfantasíur er það bara hið besta mál. Það er hægt að lenda í verri hlutum en að spjalla um slíkt á barnum. Þó er ég ekkert minni tepra en hver annar, sem er kannski dálítið fyndið.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.