Prentarinn - 01.11.2006, Qupperneq 12
í Kolding í Danmörku er áhuga-
verður skóli sem gaman er að
skoða nánar. Þarna hafa nokkrir
íslendingar verið við nám og
líkað vel. Þeir eru 14 þama núna
og ein af þeim er Hrafnhildur
Olafsdóttir sem var að vinna á
auglýsingadeild Morgunblaðsins
áður en hún ákvað að leggjast í
víking og innrita sig í þennan
skóla. Prentarinn sló á þráðinn til
hennar til að forvitnast um lífið
og tilveruna þarna úti.
Hvers konar skóli er þetta sem
þú ert í?
Skólinn heitir Ceu Kolding og er
stór iðnskóli þar sem kennt er í
nokkrum deildum, m.a. mat-
reiðsla, bílvirkjun, hárgreiðsla og
fleira. Minn skóli er sérskóli
innan þessa skóla og heitir Nordic
Multimedia Academy NoMA og
útskrifar fólk með diplómu í
margmiðlun.
Hvar er skólinn?
Hann er í Kolding sem er 50.000-
60.000 manna bær á Suður-
Jótlandi. Hér er rólegt og gott
að vera, bærinn er ekki of stór en
samt er hér allt til alls, öflugt
íþróttastarf, stór verslunarmið-
stöð, leikhús, tónleikastaðir og
fullt af menningarviðburðum
í hverjum mánuði.
Hvers konar nám er þetta?
Námið er diplómu-nám í marg-
miðlun, það er bæði kennt á
dönsku og ensku og því skiptast
nemendurnir í danskan bekk og
alþjóðlegan bekk, þeir eru flestir
frá Danmörku, Islandi og Finn-
landi. Flest verkefni eru unnin í
hópavinnu og tengjast stundum
atvinnulífinu, t.d. hönnun á vef-
síðum eða gerð sjónvarpsauglýs-
inga fyrir fyrirtæki. Nemendur fá
oftast frjálsar hendur í nálgun að
verkefnum og því er útkoman
ansi skrautleg, allt frá myndbönd-
um um skaðsemi reykinga til
tölvuleikja þar sem markmiðið er
að kála kennurunum.
Er fólk þarna frá miirgum lönd-
um og þá kannski einhverjir
fleiri Islendingar?
Nemendurnir sem eru núna í skól-
anum eru frá Danmörku, Finn-
landi, Islandi, Englandi, Færeyj-
um og svo komu tveir frá Kína í
haust, þannig að hópurinn er nokk-
uð fjölbreyttur. Við íslendingamir
emm einir 14 í skólanum núna og
skiptumst jafnt á fyrsta og annað
ár, en þessi skóli liefur verið mjög
vinsæll meðal Islendinga og ég
held að þeir hafi verið milli 15 og
20 sem útskrifuðust síðasta vor.
Hvaö er þetta langt nám?
Námið er tvö ár, fyrsta árið eru
kennd fjögur fög, hönnun, forrit-
un, viðskiptafræði og markaðs-
fræði. A síðara árinu velur nem-
andinn sér fag til sérhæfingar og
skiptist þá námið í hönnun, forrit-
un og verkefnastjórnun.
Ertu búin aó velja þér eitthvert
fag á siöara árinu?
Ég valdi mér verkefnastjórnun
sem sérhæfingu, fyrst og fremst
vegna þess að ég hef lítinn áhuga
á forritun og það sem kennt er hér
í hönnunartímunum er ég flestallt
búin að læra, bæði í prentsmíðinni
heima og þar á undan á hönnunar-
braut Iðnskólans. Það kom sjálfri
mér líka á óvart að ég hefði svona
mikinn áhuga á skipulagshliðinni
á verkefnunum og þá sérstaklega
að ég gæti haldið utan um 60-100
síðna skýrslur og áætlanir um
verkefni og munað hvað stendur á
flestum síðunum. En það sem
gerir þetta svona skemmtilegt er
fyrst og fremst bekkjarfélagamir
og krafturinn í kennurunum, þeir
eru mjög drífandi.
Þú vannst hcr heima sem prent-
smiöur. Hvaö kom til aö þú
dreifstþig til útlanda i nám?
Ég var alltaf að leita mér að námi
til að bæta við prentsmíðina enda
þýðir ekkert að hætta að læra ef
maður ætlar að endast í þessum
geira. Ég sá auglýsinguna og leist
vel á það sem skólinn hafði upp á
að bjóða, alþjóðlegan bekk og
mikla verkefnavinnu. Þetta nám
er frítt, það eru engin skólagjöld
og lítill bókakostnaður og lífsins
nauðsynjar eru talsvert ódýrari
hér í Danmörku en heima á
Islandi, ég hefði alveg örugglega
þurft að vinna með skólanum
hefði ég farið í sambærilegt nám
heima. Svo er líka svo auðvelt að
flytja til Danmerkur þetta er svip-
að því að flytja utan af landi og til
Reykjavíkur og tungumálið er
ekkert mál, maður er kominn með
kartöfluhreiminn á hreint eftir
smátíma.
Er þetta lánshæfl nám?
Námið er lánshæft og duga náms-
lánin mun betur til framfærslu hér
í Danmörku en þau gera heima á
fslandi.
Hvernig er fyrir nemendur þarna
að verða sér úti um húsnœði?
Utvegar skólinn það eða verða
nemendur að sjá um það sjálfir?
Nemendumir þurfa sjálfir að
útvega sér húsnæði. Þeir fá þó
oftast hjálp frá einhverjum sem er
í skólanum því að á vorin hefur
skólinn haldið kynningarfund á
Islandi og þar talar vanalega einn
nemandi úr skólanum og tekur að
sér hlutverkið að vera hálfgerður
námsráðgjafi fyrir þá nemendur
frá íslandi sem koma í skólann að
hausti. Ég tók þetta að mér síð-
asta vor og hjálpaði þónokkmm
að finna sér íbúð fyrir haustið.
Svo þegar fólk er komið út til
Kolding þá hjálpast allir í skólan-
um við að útvega ódýr húsgögn
og sýna nýju nemendunum hvar
allt er, enda vomm við í sömu
12 ■ PRENTARINN