Prentarinn - 01.11.2006, Qupperneq 15
Við lok verkefnis í Lecco héraði. Fv. Mika (jp), Lóa, Claudia (it), Lulu
(Kína/Oz), Giulio Ceppi framkv.stj. MBD og Loridana tutor fyrir MBD.
Dagsferð til Como. Miguel (Portugal), Mika (jp) og ég (i gulu).
controllable s/mp,e/to
Markmiðið með náminu er að
skapa nýja tegund af stjórnendum
og leiðtogum sem geta sameinað í
eitt nýsköpun, skipulagshæfni og
frumkvöðlahugsun. Aðilar sem
geta virkjað sköpunargáfu og hug-
myndaauðgi starfsmanna og unn-
ið að nýsköpunarverkefnum innan
fyrirtækja. Að veita stjómendum
þau tæki og tól sem þarf til að
vinna úr rannsóknum og upplýs-
ingum og nýta þau til að móta
nýjar vörur, herja á nýja markaði
og styrkja samkeppnisstöðu fyrir-
tækja. Með því að sjóða saman
hönnun og viðskiptafræði nást ný
hugsun og starfsaðferðir sem
skila sér í markvissari og
árangursríkari stefnumótunar- og
hönnunarvinnu hjá íyrirtækjum.
Notast var við nýlegt kennslu-
módel er veitti róttæka sýn á „the
learning by doing approach".
Nemendur vörðu miklum tíma í
að greina vandamál, hanna og
sannreyna úrræði. Unnið var í
vinnustofum (workshop) við að
leysa úr raunverulegum verkefn-
um (case histories) sem enduðu
svo með því að leggja fram full-
unna vöm hverju sinni. I hóp-
vinnu sem þessari lærir maður af
reynslu og þekkingu hinna í hópn-
um, sem er hvort tveggja í senn,
erfitt og gefandi.
Kennarar hjá Domus em aðal-
lega þungavigtargestakennarar úr
markaðs- og hönnunarheiminum.
Til okkar komu kennarar frá
fyrirtækjum eins og Philips, Levi,
Diesel, Pininfarina, 3M, Young &
Rubicam, Future Concept Lab,
Autogrill, Elica og Pininfarina
Extra, Unilever og Pirelli og
héldu fyrirlestra, kenndu og komu
með góða áherslupunkta úr „the
real life“. Einnig stendur DA fyrir
hinum ýmsu fyrirlestmm í sam-
vinnu við fagmenn - handa fag-
mönnum og nemendum DA.
Farið var í efni sem:
Made By Italians - Sér-ítalskt
vinnulíkan (módel) fyrir Business
Design
Slow Life - Nálgun á lífsgæða-
kapphlaupið sem felst í að kanna
kosti þess að hægja á sér
Wedding Brands - Samstarf,
bandalag og ný sambönd milli
vömmerkja
Lærdómsríkt starfsnám
Nemendur fara í starfsnám, oftast
2-3 saman, í þrjá mánuði í senn -
og í mínu tilviki fékk ég tækifæri
hjá 3M. Hjá 3M fengum við það
verkefni að finna nýjar vörur sem
byggðar voru á OLF plötu
(Optical Lighting Film), ljósleið-
ara og ljósdíóðum (LED). Þar
sem 3M samanstendur af 7 deild-
um, var erfitt að finna hvar við
ættum að reyna fyrir okkur. Eftir
greiningarvinnu lá fyrir að þörf
væri fyrir ákveðna vöm í „heilsu-
deildinni" og einblíndum við á
tannlækningar. Eftir að hugmynda-
vinnu lauk var búið til líkan af
vömnni. Að því loknu var unnið
að gerð viðskipta- og markaðs-
áætlana. Það má því segja að við
höfum farið í gegnum allt hönn-
unarferlið. Það lítur út fyrir að vel
hafi tekist, því 3M hefur ákveðið
að vinna frekar að verkefninu.
I bekknum var „litríkur
kokteill" - fólk héðan og þaðan,
3 heimsálfur og allt frá textílhönn-
uði til lögfræðings og allt þar á
milli. Mjög sjarmerandi blanda
sem getur ekki verið annað en
gimileg og lærdómsrík.
Reynslunni ríkari
Eg fékk mjög góða reynslu af
þessu námi og sé ekki eftir neinu.
Þetta var gríðarleg vinna fyrir lít-
inn grafíker sem vissi varla hvað
SVÓT var - en ég hafði afar gott
af þessu. Nú er bara að vinna úr
þessu öllu og spurning hvar mað-
ur endar!
Vil endilega skora á fólk í
okkar fagi að kynna sér nám líkt
og MBD. Það hefur löngum verið
þörf fyrir að brúa bilið á milli
hönnunar og markaðsfræði og
ekki seinna vænna að byrja á því.
Lengi vel skoðaði ég Manager
Design í Englandi, sem svipar að
mörgu leyti til MBD, nema það er
ekki eins sérhæft nám, og notast
þeir við svipaða stefnu og gengur
og gerist í flestum háskólum - þ.
e. frábmgðið DA. Ég fann enga
aðra skóla á Italíu eða Spáni sem
svipar til MBD.
Hér em nokkrar vefsíður ef
frekari áhugi er á því að fræðast
meira um DA og MBD.
vnw. masterbusinessdesign. com
www. domusacademy. com
www. salford. ac. uk
Þar er að finna Design Manag-
ment
Einnig er hægt að „Googla" þessi
heiti, og leggjast yfir þetta í róleg-
heitunum.
Eigið góðar stundir
Kœr kveðja,
Lóa Dis Finnsdóttir
PRENTARINN ■ 15