Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 26
Eiríkur: „Geðheilsan er búin að vera ansi slæm. Nóvember hefur eiginlega verið dá- lítið slæmur mánuður.“ Þórunn: „Mann langar svo að vera að vinna í einhverju öðru en kemst ekki í það.“ Eiríkur: „Já, ég ætlaði að segja það.“ Þórunn: „Og svo fær maður samviskubit útaf einhverri bók fyrir næsta ár sem maður finnur að verður einhvern veginn lélegri og lélegri af því að maður getur ekki sinnt neinu.“ Eiríkur: „Maður er bara handónýtur. Ætli það sé ekki einfaldast að segja það bara.“ Þótt taugar höfundanna fjögurra séu þandar þessa dagana þurfa þeir ekki að kvarta yfir viðtökum gagnrýnenda við bókum þeirra sem hafa farið um þau lofsamlegum orðum. Kristín hverfur nú í fyrsta sinn frá ljóðinu með smásagnasafninu Doris deyr og Eiríkur heillar gagnrýnendur með Sýrópsmán- anum. Sömu sögu er að segja af Braga og Þórunni sem eru auk þess tilnefnd til Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna; Bragi fyrir Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitinga- húsinu eftir Jenný Alexson og Þórunn fyrir Mörg eru ljónsins eyru. Þegar spurt er hvort þau reikni með því að það versta sé að baki og að desember verði betri tekur Bragi orðið: „Þetta er í fyrsta skipti sem ég þarf að biðja um svefntöflur. Samt er ég skárri núna en oft áður.“ Eiríkur: „Ég held að desember verði skárri. Er það ekki?“ Bragi: „Júú ...“ Þórunn: „Ég mæli með því að maður hlusti bara á útvarpið. Þá heldur maður að það sé einhver á vakt ef maður heyrir svona muldur í útvarpi.“ Bragi: „Ertu þá að meina fyrir svefninn?“ Kristín: „Ertu þá að meina RÚV?“ Þórunn: „Nei. BBC Radio.“ Bragi: „Ekki Útvarp Sögu? Blm: „Þá færuð þið nú alveg yfir um.“ Eiríkur: „Ekki nema heilsuhornið hans Valda [Valdimar Tómasson] hjá Torfa rakara ...“ Blm: „Já, auðvitað. Þar sem Valdi mætir og les ljóð ...“ Bragi: „Ég hef aldrei heyrt það. Hvenær er það á dagskrá?“ Eiríkur: „... og svarar svo spurningum um bætiefnin. Fyrst kemur hann með ljóðabók og kynnir hana og svo spyr Torfi hvaða bætiefni hann sé búinn að vera að taka. Og þá segir hann: „B-vítamín og C.““ Blm: „En hvað er helst að taka ykkur á taugum? Sölulistarnir?“ Þórunn: „Nei,nei ...“ Eiríkur: „Nei. Ekki metsölulistarnir.“ Þórunn: „Við erum ekki réttu týpurnar til að spyrja þessarar spurningar. Erum við nokkuð inni á metsölulistum?“ Blm: „En dómarnir? Þorið þið að kveikja á sjónvarpinu þegar Kolbrún Bergþórsdóttir og Páll Baldvin mæta á miðvikudagskvöld- um?“ Eiríkur: „Jú, maður tekur kannski ákvörð- un um að gera það ekki en svo breytist það kannski þegar líður á daginn.“ Kristín: „Já, þetta er svona ströggl ...“ Eiríkur: „... og svo kannski svona um klukkan níu er maður bara búinn að kveikja.“ Kristín: „Mér finnst þetta aðallega einkenn- ast af ströggli við að reyna að byrja á ein- hverju nýju en geta það ekki.“ Þórunn: „Já, þetta er það sama og ég var að segja. Maður getur ekki unnið.“ Kristín: „Ég er alltaf að fara í sumarbústað til þess að fá næði en svo er maður bara kominn á Selfoss og byrjaður að fletta blöð- unum og leita að dómum.“ Þórunn: „Það þarf pínu ró til þess að geta skrifað eitthvað af viti.“ Kristín: „Þannig að þetta eru ekki alveg kjöraðstæður fyrir taugaveiklaðan rithöf- und.“ Þórunn: „En þetta með dóma, umfjöllun og allt það er kannski ekki aðalatriðið. Ég held að þetta sé aðallega spurning um tilverurétt. Þú veist. Við erum bara með þetta syndróm og þess vegna erum við frekar að vona að við fáum listamannalaun, eða ...“ Eiríkur: „... að maður megi halda áfram að vera til ...“ Þórunn: „... í þessu eina sem maður er að gera. Er það ekki?“ Bragi: „Maður er líka svolítið í því að kom- ast að því hvort vinir manns séu að segja manni satt. Þeir eru kannski búnir að lesa bókina og ...“ Þórunn: „... þora ekki annað en segja að hún sé góð.“ Kristín: „Og maður spáir í tóninn og rödd- ina og reynir að ráða í þetta allt saman.“ Slysasögur notaðar til að selja bækur Bragi: „Það er orðið svo erfitt að koma inn með bók núna og vekja athygli fjölmiðla á henni og það er orðið svolítið áberand að það er farið að hvetja höfundana til þess að koma með einhverjar sögur í kringum bókina – helst einhverja hrakfarasögu á ritunartíma hennar. Maður er búinn að sjá þetta með nokkrar bækur. Eflaust eru allar þessar sögur sannar en stundum ansi smávægi- legar. Höfundurinn missteig sig kannski í hálku þegar hann var að skrifa bókina. Eða tölvu var stolið. Þetta virðist vera orðið mjög mikilvægt. Þegar pólitískar endurminningar og þannig bækur eru annars vegar gerist þetta bara sjálfkrafa þegar einhver smákafli er birtur. Í honum er einhver smá sensasjón, eitthvert skúbb. Skáldsagan hefur þetta ekki og þess vegna þurfum við, höfundarnir sjálfir, að birta eitthvað um okkur.“ Eiríkur: „Þetta eru kannski áhrif frá leik- húsinu. Fréttum af óhöppum við uppsetn- ingu á leikritum fer stöðugt fjölgandi og þetta er að stigmagnast. Fyrst voru þetta bara fréttir af því að einhver datt og braut sig kannski en nú er engin sýning með sýn- ingum lengur án þess að einhver leikaranna lendi beinlínis í lífsháska og sé fluttur í ofboði af æfingu.“ Bragi: „Við sjáum þetta til dæmis með Jónínu Ben. Ég hálfvorkenni henni núna eftir að þetta nýja mál kom upp. En það var fyrirsögn á viðtali við hana sem var eitthvað á þá leið að hún var að því komin að stökkva út um glugga en það sem bjargaði henni var að það voru engir gluggar á hótelherberg- inu hennar. Hugsiði ykkur! Hún hefði getað gengið út á hótelganginn. Hún hefði bara þurft að fara út af hótelherberginu. Fólk er farið að teygja sig svo langt eftir sögunni.“ Þórunn: „Þess vegna þarf listamannalaun fyrir ræflana sem eru ekki góðir í að ljúga upp einhverjum sögum af sjálfum sér ...“ Eiríkur: „Jájá. Ég var eiginlega bara að því kominn að drepa mig á meðan ég var að skrifa þessa bók. Ég stökk þrisvar út um gluggann. Æ, maður á ekki að vera að gera grín að þessu.“ Bragi: „Við ættum nú að hafa ímyndunarafl í þetta fyrst við gátum komið saman bók.“ Þórunn: „Við gætum líka búið til hatur rithöfunda á milli og farið heim hvert til annars með leiðindi.“ Endaði á spítala út af stressi Óróleikinn í huga rithöfundanna í nóvem- ber og desember er fyrst og fremst tengdur eirðarleysi yfir því að geta ekki einbeitt sér að næsta verkefni í friði fyrir áreitinu sem Endum alltaf á byrjunarreit Á síðasta degi nóvembermánaðar, sem reis í dulargervi fallegs haustdags, hitti Þórarinn Þórarinsson rithöfundana Eirík Guðmundsson, Kristínu Eiríksdóttur, Braga Ólafsson og Þórunni Erlu-Valdimarsdóttur yfir nokkrum kaffibollum á Íslenska barnum við Austurvöll. Höfundarnir eru allir með bækur í jólabókabrjálæðinu þetta árið. Bragi með sína fyrstu skáldsögu eftir áralanga bið og Kristín með sitt fyrsta prósaverk. Öll eru þau ágætis kunningjar þannig að lítið fór fyrir formlegum kynn- ingum og á meðan beðið var eftir kaffinu sagði Þórunn sæta sögu af Einstein sem var tekinn í msigripum fyrir róna og aumingja og Bragi bætti um betur með frásögn af perversjónum Mozarts en síðan var tekið upp alvarlegra tal með vangaveltum um geðheilsu rithöfunda í jólabókaflóðinu. Bragi, Eiríkur, Þórunn og Kristín komu sér fyrir í sögulega horninu á Íslenska barnum og skiptust meðal annars á góðum ráðum um hvernig best væri að halda ró sinni í jólabókahasarnum. Meðal þess sem skaut upp kollinum voru svefntöflur og BBC Radio. Ljósmyndir/Hari Framhald á síðu 28 26 spjall Helgin 10.-12. desember 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.