Sagnir - 01.06.2007, Blaðsíða 51
Fjórar sögur frá hendi Jóns Oddssonar Hjaltalín
M.J. Driscoll bjó til prentunar. Sigurgeir Steingrímsson hafði umsjón með
útgáfunni. Reykjavík 2006. Ixxiv, 177 s.
Jón Oddsson Hjaltalín (1749-1835) var lengst af prestur í Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd. Hann var afkastamikill rithöfundur, sálmaskáld
og þýðandi, en aðeins sálmar hans birtust á prenti að honum lifandi.
Eftir Jón liggja einnig í handritum kvæði hans af trúarlegum toga,
rímur, tækifærisvísur og annars konar veraldlegur kveðskapur, auk
frumsamdra og þýddra sagna. Útgáfan sem hér birtist, á fjórum
sögum frá hendi sr. Jóns, er úrval sagnaritunar hans og varpar Ijósi
á skáldsagnagerð þessa tímabils í íslenskri bókmenntasögu; engin
þeirra hefur áður verið prentuð. — Sögunum er fylgt úr hlaði með ítarlegum inngangi útgefanda.
Háskólaútgáfan annast dreifingu bókarinnar
Einu sinni átti ég gott
Efnið sem hér er gefið út á bók og tveimur geisladiskum er varðveitt
á segulböndum í þjóðfræðasafni Stofnunar Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum og er flutt af fólki alls staðar að af landinu. Hér
er að finna allt frá bænum og fallegum vögguvísum til kveðskapar
um Grýlu og hennar hyski ásamt öðrum barnafælum. Inn á milli eru
síðan sungnar eða mæltar fram sérkennilegar þulur, skemmtilegir
kveðlingar og stuttar sögur sem hægt er að hafa gaman af, auk vísna
sem notaðar hafa verið til að kenna börnum og leika við þau. Rósa
Þorsteinsdóttir hafði umsjón með útgáfunni og skrifar inngang, Halldór
Baldursson myndskreytti bókina og um hljóðvinnslu sá Sigurður
Rúnar Jónsson í Stemmu.
Smekkleysa annast dreifingu bókarinnar
Nemendur og kennarar í sagnfræði geta keypt bækur á góðu verði á skrifstofu stofnunarinnar.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu -101 Reykjavík
Sími 525 4010 - Fax 525 4035 - Netfang: arnastofnun@hi.is
http://www.arnastofnun.is