Sveitarstjórnarmál - 01.03.1997, Qupperneq 17
VERKASKIPTING RÍKIS OG SVEITARFÉLAGA
mönnum sem ráðuneytið efndi til er
samningarnir voru undirritaðir við
athöfn að Borgartúni 6 í Reykjavík
3. janúar og „það er ekkert smáræði
sem sveitarfélögin eru að styrkja sig
með þessari yfirtöku," bætti hann
við.
„Við teljum það henta skjólstæð-
ingum okkar betur að fatlaðir séu
ekki einangraður hópur heldur í
hópi almennra borgara sem njóti
þjónustu með svipuðum hætti og
aðrir," sagði Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á Húsavík, við þetta tækifæri.
Hann kvað barnaverndarnefndir
hafa verið sameinaðar í tvær í Þing-
eyjarsýslum og að stefnt væri að
sameiginlegri félagsmálastofnun
fyrir alla sýsluna. „Reynslan er sú
að þá eru starfsmennirnir ekki að
bauka við félagsmálin hver í sínu
horni eins og einyrkjar heldur
styrkja þeir hver annan með því að
vinna í teymi," sagði hann.
Hinir bæjarstjóramir tóku í sama
streng: „Við höfum þegar tekið að
okkur heilsugæslu og öldrunarmál,"
sagði Sturlaugur Þorsteinsson, bæj-
arstjóri Homafjarðarbæjar, „og telj-
um okkur vera að styrkja stjómsýsl-
una enn frekar með því að yfirtaka
nú málefni fatlaðra."
FRA STJORN SAMBANDSINS
Sambandið tekur að sér
verkefni á sviði ferlimála
Hinn 13. febrúar sl. gerðu félags-
málaráðuneytið og sambandið sam-
komulag um að sambandið tæki að
sér tiltekin verkefni á sviði ferlimála
fatlaðra. Gildir samkomulagið frá 1.
febrúar 1997 til ársloka 1998 þegar
gert er ráð fyrir að sveitarfélög yfir-
taki að fullu og öllu málefni fatlaðra
frá ríkinu.
Samkvæmt samkomulaginu tekur
sambandið að sér að annast eftirfar-
andi verkefni:
a) Leiðbeiningar við stofnanir, fé-
lagasamtök, sveitarfélög og hönnuði
um hönnun nýbygginga og breyt-
ingar á eldri byggingum með tilliti
til aðgengis fatlaðra.
b) Úttekt á byggingum og um-
hverfi með tilliti til aðgengis fatl-
aðra. Um getur verið að ræða sjálf-
stæða úttekt eða úttekt sem sveitar-
félag óskar eftir.
c) Námskeiðahald og kynningu á
ákvæðum byggingarlaga og skipu-
lagslaga og reglugerðum með þeim
lögum með tilliti til aðgengis fatl-
aðra.
d) Störf fyrir nefnd sem starfað
hefur á vegum félagsmálaráðuneyt-
isins frá árinu 1991 og fjallar um
hönnun bygginga með tilliti til að-
gengis fatlaðra.
I greinargerð ráðuneytisins um
samkomulagið segir að markmið
þess sé að komið verði á markvissu
starfi á sviði ferli- og aðgengismála
fatlaðra árin 1997 og 1998. Það
verði gert með því að hvetja sveitar-
félögin til þess að sinna ferlimálum
með skipulegum hætti og að gera
áætlanir um nauðsynlegar úrbætur á
aðgengi opinberra bygginga, þjón-
ustustofnana og gatnakerfi.
Af hálfu sambandsins hefur Guð-
rún S. Hilmisdóttir verkfræðingur
umsjón með þeim verkefnum sem í
samkomulaginu felast. Hún hefur
viðtalstíma vegna þeirra á skrifstofu
sambandsins á mánudögum milli kl.
9 og 12.
„Fram til þessa hefur Vestmanna-
eyjabær sem reynslusveitarfélag að-
eins yfirtekið byggingareftirlit",
sagði Guðjón Hjörleifsson, bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum, við þetta
tækifæri. „Málefnum fatlaðra fylgir
Kertaverksmiðjan Heimaey, sam-
býli fatlaðra og meðferðarheimili.
Öll nálgun íbúa byggðarlagsins við
yfirstjóm slíkra stofnana eykur kröf-
ur til þeirra um skilvirka stjómun,
og ég er viss um að þessi mála-
flokkur kominn heim tryggir betri
þjónustu við skjólstæðingana. Og
allt eru þetta verkefni sem eiga
heima í héraði."
BYGGÐARMERKI
Ný byggðarmerkja-
nefnd
Stjóm sambandsins hefur skipað
Ólaf Kristjánsson, bæjarstjóra í Bol-
ungarvík, sem aðalfulltrúa og Unnar
Stefánsson ritstjóra sem varamann
hans í fastanefnd um byggðarmerki
sem félagsmálaráðherra, Páll Pét-
ursson, hefur skipað til fjögurra ára.
Aðrir í nefndinni eru Guðný Jón-
asdóttir menntaskólakennari og
Ingvar Gíslason, fv. menntamála-
ráðherra, sem er formaður nefndar-
innar.
Varafulltrúi Guðnýjar er Elín
Pálsdóttir, deildarstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, og varafulltrúi Ingvars
Sigríður Lillý Baldursdóttir, skrif-
stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu.
Þegar sveitarstjórn ákveður að
taka upp byggðarmerki fyrir sveitar-
félag ber henni að tilkynna félags-
málaráðuneytinu þá ákvörðun sína.
Ráðuneytið þarf að staðfesta þá
ákvörðun og birtir síðan staðfesting-
una og merkið í Stjórnartíðindum.
Áður en ráðuneytið gerir það þarf
fastanefndin að hafa látið í té já-
kvæða umsögn um merkið.