Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Blaðsíða 52
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 201452
lífsgæði 8–17 ára getUmiKilla Barna með einhVerfU
< 0,001, η2 = 0,23) og Skóli og nám (t(89) = 4,30, p < 0,001, η
2 = 0,17). Meðalskor barna og
foreldra var nánast það sama í víddinni Fjölskylda og frjáls tími.
Til að rýna betur í ólíkt mat barna og foreldra þeirra var gerð fjölbreytudreifigrein-
ing og áhrif bakgrunnsþátta könnuð. Þegar munur á svörum var skoðaður með tilliti
til aldurs barnanna komu fram marktæk samvirkniáhrif (e. interaction effects) í lífs-
gæðavíddunum Líðan og sjálfsmynd (F(1, 90) = 7,22, p = 0,009, η
2
partial = 0,07), Fjölskylda og
frjáls tími (F(1, 77) = 7,15, p = 0,009, η
2
partial = 0,09) og Vinatengsl (F(1, 84) = 4,29, p = 0,041, η
2
partial
= 0,05). Í víddunum þremur var meiri munur á svörum eldri barna og foreldra þeirra
en meðal yngri barna og foreldra þeirra. Áhrifin voru þó fremur lítil í víddinni Vina-
tengsl. Aðrar bakgrunnsbreytur, eins og kyn barns, höfðu ekki áhrif á mismunandi
svör barna og foreldra.
Samanburður á lífsgæðum barna með einhverfu og jafnaldra
Með t-prófi óháðra úrtaka var mat barna í rannsóknar- og samanburðarhópi borið
saman og kom fram að börn með einhverfu mátu lífsgæði sín marktækt minni en
jafnaldrar þeirra á öllum fimm lífsgæðavíddunum; Hreyfiathafnir og heilsa (t(352) = 7,01,
p < 0,001, η2 = 0,12), Líðan og sjálfsmynd (t(348) = 4,90, p < 0,001, η
2 = 0,07), Fjölskylda og
frjáls tími (t(327) = 4,30, p < 0,001, η
2 = 0,05), Vinatengsl (t(347) = 5,15, p < 0,001, η
2 = 0,07) og
Skóli og nám (t(352) = 4,54, p < 0,001, η
2 = 0,06). Munurinn var mestur í víddinni Hreyfi-
athafnir og heilsa og mátti þar skýra 12% af breytileika í lífsgæðamati með því hvort
barnið var í rannsóknar- eða samanburðarhópi. Minnstur munur mældist hins vegar
í víddunum Fjölskylda og frjáls tími og Skóli og nám en þar skýrði það hvorum hópnum
barnið tilheyrði rétt rúmlega 5% af breytileika í lífsgæðamati. Mynd 1 sýnir dreifingu
heildarskora hjá börnum í rannsóknar- og samanburðarhópi.
Sjálfsmat barna
Skóli og nám
Vinatengsl
Fjölskylda og frjáls tími
Líðan og sjálfsmynd
Hreyfiathafnir og heilsa
Rannsóknarhópur
Samanburðarhópur
0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100
T-gildi
Mynd 1. Dreifing T-gilda kringum miðgildi hjá börnum með og án einhverfu