Morgunblaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013
Ég hélt upp á afmælið um síðustu helgi í góðra vina hópi. Þaðgetur vel verið að ég sletti í form ef einhver skyldi droppainn,“ segir Anna María Björnsdóttir, íþróttakennari á Siglu-
firði, sem er fertug í dag.
Hún kennir við Grunnskóla Fjallabyggðar en útskrifaðist frá
Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni árið 2008. Eftir að hafa
starfað við þjálfun í ýmsum íþróttum, eins og blaki, fótbolta, bad-
minton og skíðum, lét Anna María gamlan draum rætast og dreif sig
í nám að Laugarvatni, komin vel á fertugsaldurinn. Áður hafði hún
menntað sig og unnið sem hárgreiðslukona. „Það er langt síðan ég
hætti með stofu en klippi ennþá ættingja og vini.“
Á Laugarvatni kynntist hún eiginmanni sínum, Óskari Þórð-
arsyni, sem starfar í dag sem íþróttakennari við Menntaskólann á
Tröllaskaga. Þegar hún var á öðru ári í skólanum, 2007, eignuðust
þau sitt fyrsta barn, Alex Helga, en í bekk Önnu Maríu var óvenju-
mikil frjósemi þann veturinn. Voru þær fimm í bekknum sem eign-
uðust börn, þar af ein með tvíbura. „Síðan hafa bæst við tveir dreng-
ir hjá okkur, Sebastian Amor árið 2010 og síðan Marínó Örn á þessu
ári, orðinn átta mánaða. Bekkjarsystur mínar hafa einnig haldið
áfram í barneignum eftir að við kláruðum námið, flestar með tvö
eða þrjú börn hver, þannig að þetta var mikill frjósemisbekkur,“
segir Anna María en það stendur einmitt til á næstunni að hittast
með allan barnaskarann. bjb@mbl.is
Anna María Björnsdóttir 40 ára
Fertug Anna María Björnsdóttir með sonum sínum, Alex Helga og
Sebastian Amor, þegar hún gekk með þann þriðja, Marínó Örn.
Sletti í form ef ein-
hver droppar inn
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Akranes Heiður Dís fæddist 22. febr-
úar kl. 15.30. Hún vó 3.685 g og var 50
cm löng. Foreldrar hennar eru Friðrika
Ýr Einarsdóttir og Halldór Ragnar
Guðjónsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Eva fæddist 23. nóvember.
Hún vó 3.190 g og var 48 cm löng. For-
eldrar hennar eru Sigurbjörg (Sirra)
Guðnadóttir Arnar Þór Úlfarsson.
E
lín Margrét fæddist í
Reykjavík 17.10. 1953
en ólst upp á Laxa-
mýri í Þingeyjarsýslu
hjá afa sínum og
ömmu, sem þá bjuggu félagsbúi
með sonum sínum, Vigfúsi og
Birni, og fjölskyldum þeirra. „Það
var mjög gestkvæmt á Laxamýri
og eins voru alltaf einhver barna-
börn afa og ömmu þar yfir sum-
armánuðina eins og þá tíðkaðist áð-
ur en leikskólar komu til sögunnar.
Maður hafði alltaf nóg að gera á
fjölmennu sveitaheimili, fyrst við
leik og síðan við almenn sveitastörf
eins og heyskap og mjaltir. Ég
varð t.d. snemma liðtækur fjósa-
maður.“
Elín gekk í farskóla í Reykja-
hreppi. „Þeim fækkar óðum sem
vita hvað farskóli er. Þá var skóla-
stofa sett upp í stofum á heimilum
Elín M. Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri HA – 60 ára
Úti í Eyjum Elín og Kjartan á toppi Eldfells úti í Vestmannaeyjum nú í sumar sem leið.
Eldhress atorkukona
frá frægu óðalssetri
Hefðarkonur Dagný Kaldal Leifsdóttir, Ágústa Ólafsdóttir og Elín Margrét
á landsfundi Ladies Circle á Húsavík.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD
FAXAFENI 14 - 108 REYKJAVÍK - S. 525 8200 - Z.IS
ÚRVA
L - GÆ
ÐI - Þ
JÓNU
STA
MIKIÐ ÚRVAL
AF VEGGFÓÐRI