Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 18. MAÍ 2014
USA Traveller
Velkomin í Vodafone
Byltingarkennd lækkun
á farsímakostnaði í USA
og Kanada
Vafraðu um netið í Bandaríkjunum og Kanada fyrir 99%
lægra gjald og hringdu eða sendu SMS á mun hagstæðara
verði. Móttekin símtöl eru 0 kr. og einungis 990 kr. daggjald.
Skráðu þig núna í Vodafone USA Traveller með
því að senda sms-ið „USA“ í 1414.
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
„Ég mun fjalla um framhjáhöld í fyrsta þættinum. Við ákváðum að
fjalla um þetta af því að það hefur ekki verið fjallað mikið um þetta
hingað til,“ segir Sölvi Tryggvason sjónvarpsmaður en ný þátta-
sería af Málinu í hans umsjá hefst á mánudaginn eftir helgi. Meðal
þess sem Sölvi tekur fyrir næstu vikur er, auk framhjáhalds,
myglusveppir, dómstólar götunnar og hjartagátt Landspítalans.
„Þetta er efni sem er erfitt að rannsaka með tölum, þar sem eina
leiðin er að fá fólk til að svara spurningalistum samviskusamlega.
En flestar rannsóknir benda til að þetta sé töluvert algengt í öllum
þjóðfélagshópum og á öllum aldri. Við munum bæði fjalla almennt
um framhjáhöld, en einnig segja tiltekna sögu um framhjáhald.
Við munum svo halda áfram á svipuðum nótum og áður í næstu
þáttum. Reyna að fjalla um mál sem snerta stóra hópa, en eru
kannski ekki í fókus frá degi til dags í íslenskum fjölmiðlum.“
Framhjáhöld komast reglulega í hámæli. Í byrjun árs var framhjáhald Frakklandsforseta til umfjöllunar um víða veröld..
AFP
MÁL SÖLVA TRYGGVASONAR Á DAGSKRÁ
Framhjáhald
í fyrsta þætti
Sölvi Tryggvason hefur nú í maí starfað í 10 ár í
fjölmiðlum og við hæfi að ný sería af Málinu fari í
loftið á sama tíma.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Strangtrúaðir hindúar í borginni
Amritsar á Indlandi heiðruðu gyðj-
una Maha Mariamman á mæðra-
daginn í síðustu viku með skrúð-
göngu. Maha Mariamman, sem
einnig þekkist sem Shitala meðal
Indverja, er dýrkuð víða um Suð-
ur-Asíu. Í Nepal, Bangladesh, Pak-
istan og Norður-Indlandi má finna
hof henni til heiðurs. Er hún gyðja
sára og sjúkdóma.
Þeir sem setja stálbita, sem kall-
ast Trishula, í gegnum kinnina og
ganga þannig í skrúðgöngunni um
götur Amritsar trúa því að gyðjan
verndi þá, færi þeim velmegun og
góða heilsu.
Það var þó ekki bara fólk með
stálbita í gegnum kinnina sem
vakti athygli ljósmyndara AFP
fréttaveitunnar því í skrúðgöng-
unni mátti einnig finna konur með
gatað bak sem drógu strætó í kaðli
sem bundinn var í lokka á bakinu.
Rúmlega 80% Indverja eru hind-
úatrúar en rúmlega milljarður
manna um allan heim er hindúa-
trúar. Langflestir búa í Suður-
Asíu.
FURÐUR VERALDAR
Gataðar
kinnar
Strangtrúaðir hindúar fórna sér fyrir gyðjuna Maha Mariamman með því að
setja stálbita í gegnum kinnina. Það á meðal annars að færa þeim góða heilsu.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jared Leto
leikari og Óskarsverðlaunahafi.
Conchita Wurst
sigurvegari Eurovision.
Baltasar Kormákur
leikstjóri og Edduverðlaunahafi.