Fréttir - Eyjafréttir - 06.05.1999, Qupperneq 28
Það fer ekki fram hjá nokkrum manni að kosningar eru í nánd og
þegar það gerist er enginn of gamall til að bera merki einhvers
framboðanna eins og þessar ungu dömur eru gott dæmi um.
Fréttirá
miðvikudaginn
Næsta fimmtudag ber upp á
uppstigningardag sem er al-
mennur frídagur.
Að því tilefni koma Fréttir út á
miðvikudaginn. Auglýsendur og
greinahöfundur eru beðnir um að
hafa þetta í huga.
Skila þarf greinum fyrir mánu-
dagskvöld og auglýsingum fyrir
hádegi á þriðjudag.
Enneinntekinnölvaður
Alls voru átta kærur vegna
umferðarlagabrota í síðustu viku.
Alvarlegast þeirra mála var að enn
einn ökumaður var grunaður um
ölvun við akstur. Einn var kærður
vegna hraðaksturs og annar sem ekki
hafði réttindi til að stjóma léttbifhjóli.
Önnur brot voru minniháttar. Þá var
lögreglu tilkynnt um árekstur á
mótum Faxastígs og Skólavegar.
Nokkur tjón varð á ökutækjum en
engin meiðsl á fólki svo vitað sé.
FLUTNINGAR -VESTMANNAEYJUM
Degltger ferðlr hrerl á lend tem er.
Vöruafgreiðsla
Sklldingavegi 4 Sími 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavík
AðaHlufnlngar Höðinsgöfu 3
Simi 581 3030
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
SEMðÍPEaOASÍLL
«481-2943,
1*897-1178
Framtíð Bræðrahorgar
verður ákveðin í fyrramálið
Enn hefur engin ákvörðun verið
tekin um framtíð Hótels Bræðra-
borgar en Ferðamálasjóður er
eigandi hótelsins. I byrjun apríl
var hótelið auglýst til sölu og óskað
eftir tilboðum.
Fyrir tveimur vikum greindum við
frá því að Ferðamálasjóður hygðist
taka ákvörðun um hvað gert yrði,
fyrir mánaðamótin apríl-maí. Enn
hefur þó engin ákvörðun verið tekin.
Snorri Tómasson, hjá Ferðamála-
sjóði, sagði í viðtali við blaðið í gær,
að endanleg ákvörðun yrði tekin kl.
tíu í fyrramálið, föstudag. Ekki væri
hægt að bíða lengur, væntanlegir
rekstraraðilar yrðu að fá mál á hreint
þar sem aðalferðamannatíminn væri
að bresta á. Snorri sagði að tilboð
hefðu borist og væri verið að skoða
þá kosti sem í boði væru. „Þetta
verður klárt fyrir helgi,“ sagði Snorri.
Jóhann Ó. Heiðmundsson, einn af
rekstraraðilum Hótels Þórshamars,
kvað já við því að þeir hefðu sýnt
þessu máli áhuga. Fréttir hafa fyrir
því heimildir að eigendur Þórs-
hamars hafi boðið í Bræðraborg.
„Að svo komnu máli vil ég ekkert
segja um þetta," sagði Jóhann í gær.
„Þetta skýrist væntanlega um helg-
ina.“ Jóhann sagðist ekki vita hvort
fleiri Vestmannaeyingar hefðu sýnt
rekstri Hótels Bræðraborgar áhuga.
Rúmlega 3200 á kiörskrá í Eyjum
Kjósendum á kjörskrá í Vest-
mannaeyjum hefur fækkað um 167
frá alþingiskosningunum 1995. Þá
voru á kjörskrá 3369 en að þessu
sinni eru þeir 3202. Karlar eru í
meirihluta á kjörskrá í Eyjum eða
1678 en konur 1524. 82 kjósendur
eru á kjörskrá sem hafa verið
búsettir erlendis skemur en átta ár
og tveir sem búið hafa ytra lengur
en átta ár. I síðustu kosningum
greiddu 3077 atkvæði eða 91,3%.
Kosið verður í tveimur kjördeildum í
Bamaskólanum en í blaðinu í dag er
auglýsing þar sem sjá má hvemig
skipt er niður í þær.
Kl. 14 í gær höfðu 235 greitt atkvæði
utankjörstaðar hjá sýslumanni og er
það svipað og var á sama tíma fyrir
kosningamar 1995. Að sögn Agústu
Friðriksdóttur, hjá sýslumanni, var
rólegt yfir kosningum framan af en
síðustu daga hefur þátttakan tekið
verulegan kipp. í dag munu fulltrúar
sýslumanns heimsækja Hraunbúðir þá sem vilja kjósa. Á föstudag verður
vegna utankjörstaðaatkvæðagreiðslu opið á skrifstofutíma embættisins og á
og vegna þess verður opið hjá kjördag verður opið vegna at-
embættinu milli kl. 16 og 20 fýrir aðra kvæðagreiðslu frá kl. 10 til 12.
Sfórhuga Eykyndilskonur:
llmferðarljós á Strandveginn
Á aðalfundi Slysavarnadeildarinnar Eykyndils í fyrra var samþykkt að
gefa umferðarljós sem staðsett verða á gatnamótum Strandvegar,
Heiðarvegar og Skildingavegar.
Þetta er kostnaðarsöm framkvæmd og nú leita Eykyndilskonur aðstoðar hjá
fyrirtækjum í bænum, í hinni árlegu vorsöfnun sinni, og vonast eftir góðum
móttökum nú sem endranær. Fyrirhugað er að setja ljósin upp á þessu ári og
ætti það að auka öryggi stórlega á þessum fjölfömu gatnamótum. Þær
Eykyndilskonur vildu leggja á það áherslu að án aðstoðar bæjarbúa væm þær
lítils megnugar en bæði fyrirtæki í bænum, svo og bæjarbúar almennt, hefðu
ávallt lagt þeim gott lið og vonuðust þær til hins sama að þessu sinni svo að
unnt verði að hrinda þessu ágæta máli í framkvæmd.
tilboð
Grillkol 4,5 kg.
Seven llp 2 Itr.
Egils appelsín 1/2 Itr. í dós
Pepsf 1/2 Itr. í dós
Malta og hrísbitar
Orville örbylgjupopp, ljölskyldupakkinn
Keebler Townhouse Saltkex
Papríku stjörnur
Papríkuflögur
verðáður verð nú
4Í*428r 298,- pk.
4atmr- 139,- II.
-ktfl4r- 68 ds.
■ktW 68 ds.
-UkMB 314 pk.
238 pk.
144 pk.
-KHUr 108 pk.
MÍ2/T 158 pk.