Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 18
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18 Seinni hluti Íslenski framhaldsskólinn er bæði góður og mjög sveigjanlegur þar sem nemendum býðst að velja um fjölbreyttar námsleiðir sem henta hverjum og einum. Ég vil minnast á áfangakerfið við Menntaskólann við Hamrahlíð sem olli straumhvörfum á sínum tíma og síðustu ár hafa fleiri skólar bæst við sem bjóða upp á námsleiðir með styttri námstíma eins og t.d. Kvennaskólinn í Reykja- vík. Þannig gefst nemendum kostur á styttri námstíma standi hugur þeirra til þess. Hafa þarf í huga að stytting fram- haldsskólans hefur væntanlega í för með sér lengingu skólaársins og aukið álag á nemendur, sem án vafa kemur niður á félagslífi þeirra. Það tel ég afleitt því að virkni í félags- lífi stuðlar ekki hvað síst að þroska einstaklingsins. Annað atriði sem vert er að huga sérstaklega að eru námskröfur erlendra háskóla. Nú þegar hafa nemendur sem hyggj- ast stunda nám erlendis lent í vand- ræðum vegna ónógs undirbúnings, t.d. vegna háskólanáms í Danmörku og Svíþjóð. Samtök framhaldsskóla- nema þurfa að vera á varðbergi fyrir því að nýtt skipulag námsins festi ekki nemendur í nokkurs konar átt- hagafjötrum þannig að þeir standist ekki lengur kröfur erlendra háskóla. Nú innleiðir hver deild Háskóla Íslands á fætur annarri inntöku- próf. Það er gert vegna þess að stúd- entspróf er ekki lengur sú trygg- ing fyrir nægilegum undirbúningi undir háskólanám sem hún áður var. Í nýjasta tölublaði Tímarits um menntarannsóknir sem Háskólaút- gáfan gefur út er sagt frá rannsókn Önnu Helgu Jónsdóttur og fleiri háskólakennara um gengi nýnema í stærðfræði á Verkfræði- og náttúruvís- indasviði Háskóla Íslands. Sú rannsókn gefur til kynna að þau áhrif, sem fyrirhug- aðar breytingar geta haft á tækninám í landinu, eru verulega mikið áhyggju- efni. Vart þarf að deila um mikilvægi tæknimenntunar í ljósi væntinga þjóðarinnar til aukinnar hagsældar á Íslandi. Skólar þrói eigin námskrár Ég tel farsælast að skólar fái, eins og reyndar nýju framhaldsskóla- lögin gera ráð fyrir, að þróa eigin námskrár, rækta sína styrkleika og bjóða nemendum upp á skýrt val. Hingað til hef ég talið að það væri pólitískur vilji á Alþingi fyrir því að þingmenn beiti sér fyrir að standa gegn allri miðstýringu í tilhögun náms en styddu í stað þess við sjálf- stæði, sveigjanleika og val í námi. A.m.k. virtist mér slíkur vilji koma fram í aðdraganda lagasetninga á Alþingi um heildstæð lög fyrir öll skólastigin árið 2008. Í samtölum mínum um kerfis- breytingu námsins við nemendur mína og foreldra þeirra er oftast bent á að beinast liggi við að stokka upp námið í efstu bekkjum grunn- skólans. Eins og ég hef áður sagt eru öll rök sem mæla með því að hafa kerfið sveigjanlegt og opið. Það er brýn þörf í slíkri uppstokkun náms- ins á að bjóða nemendum upp á að velja nám til undirbúnings verk- námi í framhaldsskóla. Á árunum 2007 og 2008 vann Menntaskólinn í Reykjavík að þróunarverkefni þar sem nemendum úr 9. bekk bauðst að taka námsefni 10. bekkj- ar grunnskólans og fyrsta bekk framhaldsskólans á sama árinu. Þessi tilraun gekk afar vel og var það samdóma álit nemenda og foreldra sem tóku þátt að vel hefði tekist til. Í haust sótti ég, fyrir hönd skólans, um leyfi til mennta- og menningar- málaráðuneytis til þess að halda þróunarverkefninu áfram með því að bjóða nemendum úr 9. bekk að þreyta inntökupróf og taka þannig þátt í þróunarverkefni skólans. Með þessu móti gæfist þeim nemendum möguleiki á því að stytta námstíma sinn til stúdentsprófs um eitt ár. Að lokum vil ég leggja áherslu á að það er skýr afstaða Menntaskól- ans í Reykjavík að með tilliti til far- sæls ferils nemenda í háskólanámi sé ekki rétt – heldur beinlínis rangt – að svipta nemendur bestu hugsan- legu möguleikunum til þess að öðl- ast þann undirbúning sem opnar þeim sem flestar dyr inn til framtíð- ar. Ég hvet stjórnmálamenn til þess að huga að skólakerfinu í heild sinni allt frá leikskóla til háskóla í þeim kerfisbreytingum sem fyrirhugað- ar eru. Með framtíð þjóðarinnar í huga er mikilvægt að hlúa að æsku landsins og vonandi berum við gæfu til þess að láta nemendur njóta for- gangs í ákvörðun um menntastefnu þjóðarinnar. ➜ Þannig gefst nemendum kostur á styttri námstíma … Er stytting náms til stúdentsprófs til hagsbóta fyrir nemendur? MENNTUN Yngvi Pétursson rektor Mennta- skólans í Reykjavík BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 E N N E M M / S ÍA / N M 6 11 4 3 Less emissions. More driving pleasure. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.