Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 88
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52TÍMAMÓT Elskuleg eiginkona mín og systir okkar, ÁSA TULINIUS til heimilis í Álftamýri 40 verður jarðsungin í Dómkirkjunni þann 9. apríl kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Elís Björnsson Magnús J. Tulinius Agla Tulinius og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SVÖVU ÞORBJARNARDÓTTUR Öldugötu 33 í Reykjavík. Kærar þakkir til Heimahjúkrunar og Félagslegrar heimaþjónustu Reykjavikur. Guðný Bernhard Reynir Bjarnason Þorbjörg Bernhard Helga Kristín Bernhard Gísli Jón Magnússon ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. 551 3485 • udo.is Óli Pétur út fararstjóri Jóhanna Erla guðfræðingur út fararþjónusta Davíð út fararstjóri Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför okkar ástkæra EIRÍKS YNGVA SIGURGEIRSSONAR Miðteigi 7, Akureyri. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar á Akureyri og starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri fyrir einstaka umönnun og alúð. Lísa Björk Sigurðardóttir Lára Halldóra Eiríksdóttir Jón Torfi Halldórsson Margrét Eiríksdóttir Hulda Sif Hermannsdóttir Jón Valgeir Halldórsson Berglind Hermannsdóttir Rolf Hauritz og barnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Elskulegur bróðir okkar og mágur, BJARNI HINRIK JÓNASSON áður til heimilis í Hátúni 10a, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 21. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Hátúni og á Hrafnistu fyrir góða umönnun og hlýhug. Sigríður Inga Jónasdóttir Erla Jónasdóttir Þórarinn Guðjónsson Helga Jónasdóttir Emil Wilhelmsson Ragnar Þór Jónasson Sigríður Sigurgeirsdóttir MERKISATBURÐIR 1940 Alþingi samþykkir að taka upp hægri umferð á Íslandi þann 1. janúar 1941 en horfið var frá þeim áformum vegna her- náms Breta sem óku vinstra megin og gera enn. 1948 Lög eru sett um vísindalega verndun fiskimiða landgrunns- ins. Á þeim byggðist útfærsla fiskveiðilögsögunnar. 1955 Sir Winston Churchill segir af sér sem forsætisráðherra Breta og dregur sig í hlé frá stjórnmálum vegna heilsubrests, átt- ræður að aldri. 1968 Kosningaréttur er lækkaður úr 21 ári í 20 ár. 1971 Söngleikurinn Hárið er frumsýndur í Glaumbæ. 1986 Flugvél á leið frá Ísafirði til Reykjavíkur ferst í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi og með henni fimm manns, en tveir lifa af. 1992 Bosnía og Hersegóvína lýsa yfir sjálfstæði frá Júgóslavíu. „Það er víst komið að þessu þótt ótrú- legt sé. Svona líður tíminn ef maður lifir af,“ segir Jón Stefánsson um 50 ára starfsafmæli sitt við Langholts- kirkju. Hann tekur vel beiðni um símaviðtal og segir best að hespa því af. Vitnar í gamla sögu. „Það var karl í Mývatnssveitinni að leggja af stað í göngur og sagði: „Það er best að byrja á því að éta nestið, það er þá eitthvað frá.“ „Já, það eru fimmtíu ár frá því ég settist fyrst á orgelbekk hér. Það var 4. apríl 1964. Hann fékk hjartaáfall hann Helgi Þorláksson skólastjóri sem var hér organisti á þeim tíma. Þá var hringt í doktor Róbert Abraham Ott- ósson, söngmálastjóra þjóðkirkjunn- ar, og hann beðinn að bjarga málum. Það voru tvær fermingarmessur dag- inn eftir. Ég var á fyrsta ári í Tónskóla þjóðkirkjunnar og Tónlistarskólanum en var reyndar orðinn nokkuð vanur orgelleik því þegar ég var í fornámi spilaði ég hálfsmánaðarlega í messum hjá Óháða söfnuðinum um eins og hálfs árs skeið. Var líka alinn upp við orgel- leik norður í Mývatnssveit, afi var þar organisti. Svo ég sló til þegar til mín var leitað.“ Jón kveðst hafa leyst af í Lang- holtskirkju þar til hann fór norður í Mývatnsveit í sína sumarvinnu. „Ég var oft að vinna í kaupfélaginu en eitt besta sumarið mitt var ég að sjá um netaveiðina fyrir búið í Vogum – meðan veiðiskapur í Mývatni var hlunnindi. Þá var ég oft sex til átta klukkutíma á dag úti á vatni og kom með um 200 bleikjur að landi,“ rifjar hann upp. Í ágúst 1964 fékk Jón upphringingu af sóknarnefndarfundi í Langholts- sókn, honum var boðin organistastað- an og þáði hana með þökkum. „Hér hef ég svo verið síðan nema tvívegis farið í framhaldsnám, fyrst til München og svo til Vínarborgar.“ Skyldi Jón ætla að halda veglega upp á þessi tímamót? „Já, við ætlum að vera með tilstand í messunni á morg- un af þessu tilefni. Kórarnir þrír sem ég stjórna fá allir hlutverk í messunni, Gradualekór Langholtskirkju, Gra- duale Nobili með stóru stelpunum og Kór Langholtskirkju. Aðalhátíðin verð- ur samt í maí þegar tveir síðarnefndu kórarnir flytja Mattheusarpassíuna ásamt tveimur hljómsveitum. Passían er með stærri bitum.“ Það er sem sagt ekkert slegið af. „Ekki í bili. Ég hef alltaf haft gaman af því að umgangast fólk og meðan ég er svo heppinn að hafa orku og ánægju af starfinu þá held ég áfram.“ gun@frettabladid.is Við orgelið í hálfa öld Jón Stefánsson organisti hefur verið stórt númer í starfsemi Langholtskirkju í Reykjavík í hálfa öld. Þar hefur hann óþreytandi leikið við athafnir, stofnað kóra og stjórnað þeim. ORGANISTINN „Ég hef alltaf haft gaman af því að umgangast fólk og meðan ég er svo heppinn að hafa orku og ánægju af starfinu þá held ég áfram,“ segir Jón Stefánsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Alþjóðadómstóllinn í Haag dæmdi Dönum yfirráð yfir öllu Grænlandi þenn- an dag árið 1933 en Norðmenn höfðu reynt að helga sér hluta þess undir heit- inu Land Eiríks rauða. Land Eiríks rauða var landsvæði á austurströnd Grænlands sem Norðmenn gerðu tilkall til og hernámu 27. júní 1931 í kjölfar deilunnar milli Danmerkur og Noregs um yfirráð Dana yfir Grænlandi. Norðmenn vildu meina að þeir gætu gert tilkall til strandlengju Austur-Grænlands þar sem landið hefði verið einskismanns- land þegar þeir hófu landkönnun og byggingu veiðistöðva þar undir lok 19. aldar. Noregur sætti sig við dóm Alþjóðadóm- stólsins og lét landsvæðið eftir. Eftir það nefndu Danir svæðið Land Kristjáns 10. Það er nú hluti af þjóðgarði Grænlands. ÞETTA GERÐIST: 5. APRÍL 1933 Dönum dæmd yfi rráð yfi r öllu Grænlandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.