Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Síða 6

Frjáls verslun - 01.07.2012, Síða 6
6 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 Þ að er hárrétt ákvörðun hjá Jóhönnu Sig ­ urðardóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar, að hætta í pólitík eða láta af þátttöku í stjórnmálum eins og hún orðar það sjálf. Hún segir í yfirlýsingu að hún hafi ekki sóst eftir því að verða forsætisráðherra og leiða Samfylkinguna og hafi haft áform um að hætta í stjórnmálum að loknu því kjör­ tíma bili sem hófst vorið 2007 þegar Samfylking og Sjálf stæðisflokkur hófu samstarf. Þetta með að hún hafi ekki sóst eftir því að verða forsætisráðherra er ekki alls kostar rétt hjá henni; hún fór fram sem foringi flokksins í kosningunum vorið 2009 og ætlaði sér þá aldrei annað en að leiða flokk og ríkisstjórn eftir þær kosningar. Hún hefur verið alþingismaður frá árinu 1978 eða í um 34 ár. Það er langur tími. Jóhanna klauf Alþýðuflokkinn árið 1994 vegna ósætt is við formanninn, Jón Baldvin Hannibalsson. Hún hætti í flokknum með því að steyta hnefa og kyrja þessi orð: Minn tími mun koma. Ekki er vitað nákvæmlega hvað hún átti við með þeim orðum í ljósi þess að hún segist ekki hafa sóst eftir formennsku í Samfylkingu og að verða forsætisráðherra. Hún stofnaði hins vegar Þjóðvaka ásamt Ágústi Einarssyni árið 1994 og fékk Þjóðvaki fjóra þingmenn í kosningunum 1995. Ef til vill var það þessi sigur sem hún átti við; hefndarsigur. En hennar tími kom hins vegar óvænt sem forsætis ráð ­ herra 1. febrúar 2009 þegar Samfylkingin sleit stjórnar­ sam starfi við Sjálfstæðisflokkinn eftir búsá halda bylt ­ inguna og steig í sæng með Vinstri grænum með aðstoð Framsóknarflokksins. Og viti menn; hefnd in var innan seilingar. Það verður seint sagt um Jóhönnu Sigurðardóttur að hún sé leiðtogi. Hún kann að hafa verið duglegur liðsmaður, en leiðtogi er hún ekki. Einkenni sterkra leiðtoga er að gera réttu hlutina, en stjórnendur og almennir liðsmenn gera hlutina rétt. Vissulega er þetta ein föld framsetning en engu að síður notuð í umræðum um stjórnun og orðalagið á ættir að rekja til Peters F. Druckers; þekkts fræðimanns um stjórnun. Jóhanna hefur heldur ekki þá persónutöfra, sjálfstraust, eldmóð og hæfileika til að umgangast fólk sem einkennir góða leiðtoga. Hún kemur fram sem einfari án færni í sam ­ skiptum. Hvað er árangursrík forysta? Forysta snýst um fólk. Til að geta leitt fólk þarf færni í samskiptum. Árangursrík forysta er því að ná árangri með fólki með því að leiða það til góðra hluta af færni. Lao Tse, kínverskur heim ­ spekingur sem var uppi 600 árum fyrir Krist, sagði að góður leiðtogi væri maður sem gæti leitt fólk að rétta markmiðinu. Hann byggi til rétta umgjörð fyrir fólkið, svo það næði markmiði leiðtogans og eigin markmiðum í leiðinni. Leiðtoginn léti annars ekki mikið fyrir sér fara og að fólk hefði það á tilfinningunni þegar árangur næðist að það hefði gert þetta sjálft og segði: Okkur tókst það! Þetta á jafnt við um leiðtoga innan fyrirtækja og ríkisstjórna. Ríkisstjórnir eiga að láta lítið fyrir sér fara en skapa rétta umgjörð til að fyrirtæki og starfsmenn þeirra nái árangri með orðunum: Okkur tókst það! Sem forsætisráðherra hefur Jóhanna komið fram sem ráðherra hefnda og átaka og reynt að koma mörgum átakamálum í gegn með hnefanum. Hún hefði átt að setja fjögur til fimm mál á oddinn sem forgangsmál þegar hún tók við sem forsætisráðherra – og öll hefðu þau átt að snúast um að rífa atvinnulífið upp eftir hrunið og laga þann skuldavanda sem við var að eiga. Það var verkefnið; að fá fólk og fyrirtæki til að ganga í takt upp úr öldudalnum. Þess í stað valdi hún þá leið að hækka skatta á fólk og fyrirtæki sem dregur úr bæði vilja og getu til að standa sig. Oftar en ekki virðist sem henni sé illa við velgengni fyrirtækja í einkarekstri. Henni virðist sérstaklega í nöp við sjávarútveginn, stóriðjuna og ferðaþjónustuna, einmitt þær atvinnugreinar sem skapa gjaldeyri og útflutningsverðmæti – og eru undir ­ staða þess hagvaxtar sem hún þó gumar af að hafa náð frá árinu 2011. Ríkisstjórn hennar hefur eytt allt of miklu púðri í mál sem valda deilum og sundrungu frekar en samhug á örlagastundu; mál eins og Icesave, stjórnlagaráð og málsóknina gegn Geir H. Haarde. Jóhanna hefur þótt dugleg kona og hún hefur haft á sér stimpil heiðarleika. Dugleg er hún örugglega en efast má um að hún geri réttu hlutina. Eftir að ríkis ­ stjórn hennar var það svo mikið kappsmál að setja Geir H. Haarde á sakamannabekk tók ég að efast um heiðarleika hennar. Hún fór gegn forsætisráðherra í ríkisstjórn sem hún sat sjálf í og þóttist enga ábyrgð hafa borið á einu né neinu. Tökum það samt út fyrir sviga. Óheiðarleiki hennar fólst ekki síst í því að hún talaði alltaf sjálf opinberlega eins og hún væri algjörlega á móti málsókninni á meðan hún lét fótgönguliða sína klára málið og draga Geir fyrir dóm. Þetta var pólitísk ákæra; óþverrabragð. Þarna var hún tvöföld í roðinu. Réttlætið sigraði sem betur fer og Geir vann nánast fullnaðarsigur í þessu máli. Jóhanna Sigurðardóttir hefur skrifað sig inn í sögu ­ bækurnar sem fyrsta konan sem gegnir embætti for ­ sætis ráðherra á Íslandi. Enginn nær slíkum árangri nema hafa eitthvað til brunns að bera, það segir sig sjálft. Hún segist ekki hafa sóst eftir þessari vegtyllu og hún sá hana aldrei fyrir, en hún var augljóslega rétta konan, á réttum stað og á réttum tíma. „Minn tími mun koma“ urðu fleyg orð. Þar hafði hún rétt fyrir sér. Það hefur hún einnig þegar hún segir að það sé kominn tími til að hætta. Minn tími mun koma Jón G. Hauksson Sem forsætis­ ráðherra hefur Jóhanna komið fram sem ráð herra hefnda og átaka. Leiðari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.