Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Page 23

Frjáls verslun - 01.07.2012, Page 23
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 23 Hlúum betur að sprota fyrir tækjum! Valdimar Sigurðsson segir að snjallsímar séu farnir að rugga bátnum í markaðsmálum. Hann tekur dæmi: „Segjum sem svo að ég ræki herrafataverslun. Viðsiptavinur kemur inn og mát ar alls konar flíkur og finnur eina sem honum líst vel á. Hann kemur til afgreiðslumannsins og segist vera með app og að hann geti farið í aðra verslun eða til Boston þar sem flíkin sé helmingi ódýrari. Þetta er það sem sumir neytendur eru farnir að gera; sérstaklega yngra fólk. Netið er með mjög harða verðsamkeppni í snjallsímum þar sem neytandinn getur náð í upplýsingar og oft framkvæmt verðsamanburð á staðn um. Mér finnst mjög lítil umræða um þetta eða hvernig hefðbundin smásala á að eiga við þetta vandamál/tækifæri – til dæmis hvort það eigi að lækka verð á staðnum. Þar með skapast tækifæri fyrir verðaðgreiningu þann ig að sá sem er ekki inni í þess ari tækni fær að borga fullt verð og þarf því helst að njóta frekari þjónustu. En sá sem er verðviðkvæmur og nýtir sér tækn ­ ina getur fengið vöruna á lægra verði. Hér skapast ýmiss konar ógnanir en jafnvel tækifæri ef vel er að staðið. Athugum að margir af neyt ­endunum sem nýta sér tækn­ ina myndu aldrei kaupa vöruna á uppsettu verði, og því tækifæri til að ná neytendaábata hvers og eins; eða virðinu. Hvernig smásalar eiga í raun að laga sig að þessum breyttu aðstæðum er pæling sem þarf að huga vel að. Hefðbundin smá sala er að verða flóknari og þarf að greina betur á milli kaupa í verslun og á netinu til að mæta þörfum neytenda. Það þarf að finna út alla virðisaukandi þætti. Thomas Möller segir að ef horft sé um fimmtíu ár aftur í tímann hafi helstu fyrirtæki landsins verið fiskvinnslufyrirtæki, flutningafyrir­ tæki, mjólkursölur, trygginga­ fyrir tæki, Rarik, Landspítalinn og Landsíminn. „Í dag verða flest ný störf til í fjarskipta­, ferða­ og upplýsinga ­ tæknifyrirtækjum sem voru ekki til fyrir nokkrum áratugum. Sem dæmi má nefna að það vinna tugir starfsmanna hjá Meniga, sem er með rafrænt heim i lis bókhald, og hjá Betware, sem þróar lottókerfi, vinna um hundrað manns. „Activity“­fyrir ­ tækin á Íslandi, sem flest eru sprotafyrirtæki, eru með um þúsund manns í vinnu. Nýlega var sagt frá því í fréttum um Reykjavík Startup að Marel og Össur framtíðarinnar gætu verið Guitarparty.com, StreamTags, CloudEngineering og REmindMe. Verðmætasköpun er fjölbreytt og snýst ekki bara um handverk.“ Thomas segir að á næstu ár ­ um muni spretta upp hundruð fyrirtækja á Íslandi sem hug ­ mynda ríkt fólk eigi eftir að stofna. „Þessi fyrirtæki munu skapa ný og spennandi störf fyrir unga fólkið í landinu. Það vill vinna við skapandi verkefni sem fyrst og fremst byggjast á nýrri upp­ lý singa­ og samskiptatækni svo og afþrey ingarþörf fólks. Hagvöxtur og velmegun næstu áratuga mun byggjast á ferskum hugmyndum frá fólki sem sér þarfir fyrir og þekkir tæknina sem þarf til að búa til söluvöru. Því er mikilvægt að hlúa að sprota ­ fyrirtækjum og aðstoða þau við að komast á legg. Þetta er hægt að gera með skattaívilnunum og þolinmæði fjárfesta. Það verður að efla nýsköpunarmiðstöðvar og sprotaaðstoð á öllum sviðum.“ Ingibjörg Þórðardóttir segir að fasteignamarkaðurinn hafi tekið aftur við sér síð­sumars eftir frekar rólega sumarmánuði. Hún segir að seldum fasteignum hafi fjölgað örlítið frá sama tíma í fyrra en til samanburðar hafi í ár verið gerðir um 15% fleiri kaupsamningar. Húsnæðisverð hefur hækkað á árinu, vísitala fasteignaverðs hefur hækkað um tæp 4% en á móti komi hins vegar hækkun neysluvísitölu sem vegur gegn fasteignaverðshækkuninni. Ingibjörg segir að það vanti minni íbúðir sem auðveldara er að festa kaup á og fá lán fyrir. Mér finnst unga fólkið sýna meiri áhuga núna og vera að koma í auknum mæli inn á mark aðinn. Kaupendur eru ennþá að bíða eftir því hvað Íbúðalána sjóð ur hyggst gera varðandi óverðtryggð lán og aðra hugs anlega lánamöguleika og þar á ég sérstaklega við að sjóðurinn hækki hámarkslánið en það hefur lækkað verulega sé miðað við hækkun neysluvísitölu. Hámarks lán ætti a.m.k. að vera orðið 26 milljónir en er ennþá 20 milljónir eins og það var í júní 2008 þegar það var síðast hækk­ að. ÍLS miðar við að hámarkslán fari ekki umfram 80% veðsetn­ ingarhlutfall eignar þannig að ljóst er að þetta þarf að leiðrétta.“ Ingibjörg segir að fasteignasal­ ar séu hins vegar frekar bjart­ sýn ir á fasteignamarkaðinn á kom andi misserum. „Fjárfesting í fasteign er það sem margir telja traust á þessum tímum.“ Appið í samkeppninni Vantar minni íbúðir THomas möllEr – framkvæmdastjóri rýmis STJÓRNUN dr. valdimar sigurðsson – dósent við við skiptadeild Hr ingibJörg ÞórðardóTTir – formaður félags fasteignasala FASTEIGNA- MARKAÐURINN MARKAÐS- HERFERÐIN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.