Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 86

Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 86
86 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 ráðlagður dagSkaMMtur: 2 x 10 mínútur á daG Kannast þú við að æða áfram dag hvern, eltast við og bregð­ast við endalausu alls kyns áreiti umhugsunarlaust og skilja svo ekkert í því að áður en þú veist af er hver vikan og mánuðurinn liðinn, jafn vel árið, án þess að þú hafir gert það sem þú ætlaðir þér eða náð þeim árangri sem þú hafðir ætlað þér eða taldir að þú hefðir sett þér markmið um? Hvernig getur þú breytt þessu fyrir þig? Auðvitað er ekkert eitt rétt svar en hér kemur tillaga frá mér sem ég skora á þig að prófa. tAktU 10 míNÚtUr í UppHAFI Hvers DAGs tIl Að: 1. Hugleiða og fá skýra sýn á hvernig þú vilt að dagurinn verði og hverju þú ætl ar að áorka áður en hann verður að kvöldi kominn. 2. Skoða daginn í samhengi við áætlun sem þú kannt að hafa fyrir vikuna eða mán uðinn og setja þér dagsáætlun í sam hengi við það. 3. Skoðaðu dagbókina þína, gerðu ráð stafan ir til þess að þú hafir nægan tíma til að undirbúa þig fyrir hvern fund, sím tal eða annað sem þú þarft að gera. Hér kemur grein eftir Herdísi Pálu Pálsdóttur, MBA í stjórn un, um góðar leiðir til að ná betri yfirsýn í vinnunni og fá þá tilfinn ingu að allt sé á hreinu. Hún hvetur alla til að taka frá tvisvar sinnu tíu mínútur á dag til að fara yfir stöð una. Hluti af grein inni birtist í blaðinu um áhrifaríkustu kon urnar í viðskiptalífinu en seinni hluti hennar datt út og er því greinin birt í heild sinni aftur. TexTi: Herdís Pála PálsdóTTir Herdís Pála Pálsdóttir, MBA, markþjálfi og eigandi www.herdispala.is stjórnun

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.