Frjáls verslun - 01.07.2012, Síða 87
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 87
4. Ef þú ert með verkefni sem tekur
30 mín útur eða meira að gera og
þarft að klára á ákveðnum degi eða
fyrir ákveð inn dag, taktu þá frá
tíma í dagbókinni til að sinna þessu
verk efni.
5. Farðu yfir verkefnalistann þinn
(tasklistann, sem þú von andi held
ur vel utan um í out look, Toodle Do.
com eða öðru sam bæri legu kerfi)
og forgangs rað aðu út frá mikilvægi
og hversu mikið virði verkefnin
skapa.
6. Skoða hvort þú sért með verkefni
á verkefnalistanum þínum sem þú
ættir ekki að gera eða betra væri að
aðrir gerðu.
7. Passa að þú bókir þig ekki svo þétt
á fundi eða í ýmis verkefni að þú
hafir ekki lausar stundir til að vinna
í mikilvægustu verkefnunum á
verkefnalistanum.
8. Passa að þú hafir tíma til að sinna
líkamsrækt af einhverju tagi, fara
út að ganga eða hjóla eða mæta
í ræktina til að brenna eða gera
styrktar æfingar eftir því sem þér
hent ar hverju sinni.
9. Passa að þú hafir tíma til að
staldra við, draga djúpt andann
og hugleiða hvort þú sért að vinna
stefnu miðað og út frá þeirri sýn
sem þú hefur fyrir daginn eða
hvort þú sért farinn að hlaupa um
eins og hamstur í hjóli.
10. Renna yfir innkominn tölvupóst
og fullvissa þig um að þótt þú sért
ekki búinn að svara eða bregðast
við þeim öllum sért þú alla vega
kominn með yfirsýn yfir þann
mikil vægasta og þann sem þú þarft
að bregðast við innan dagsins.
Í lok þessara 10 mínútna, í upphafi
dags, áttu að vera vel undirbúinn fyrir
árangursríkan dag þar sem þú upplifir að
þú sért með allt á hreinu!
Kannski eru þetta ekki réttu atriðin
fyrir þig og þú gerir þér annars konar
lista en taktu samt alltaf 10 mínútur í
upphafi dags til að fara yfir daginn sem
framundan er og gerðu allt sem þú getur
til að tryggja að hann verði góður og
árangursríkur.
tAktU 10 míNÚtUr UNDIr lOk
Hvers DAGs tIl Að:
1. Hugleiða og meta hvernig
dagurinn gekk.
2. Byrja í huganum að undirbúa
10 mínúturnar sem þú þarft að
taka þér morguninn eftir til að
skipuleggja þann dag, hvað mun
flæða yfir á næsta dag.
3. Setja í tasklistann þinn ef eitthvað
af því sem þú gerðir í dag,
fundir, símtöl eða verkefni, krefst
eftirfylgni síðar.
4. Kíktu á dagbók næsta dags og
athugaðu hvort þú þarft að
undirbúa eitthvað fyrir þann
dag áður en þú ferð heim eða að
bóka meiri tíma til undirbúnings í
upphafi næsta dags.
5. Athuga tölvupóstinn og skipulagið
á honum. Ertu búinn að merkja
þann póst sem þú þarft að fylgjast
með eða fylgja eftir og eyða pósti
sem þú þarft ekki að eiga?
6. Hreinsa út af verkefnalistanum
þínum það sem þú náðir að klára
yfir daginn og hafa það sem eftir
stendur klárt fyrir 10 morgun
mínútur næsta dags.
7. Taka til á skrifborðinu þínu þannig
að næsti dagur mæti þér ekki í
óreiðu.
Þessar 10 mínútur eiga að verða til þess
að þú ferð heim með þá tilfinningu að þú
sért með allt á hreinu og sért með allt klárt
fyrir 10 morgunmínútur næsta dags.
Kannski eru þetta ekki réttu atriðin fyrir
þig og þú gerir þér annars konar lista en
taktu samt alltaf 10 mínútur undir lok
hvers dags til að fara yfir daginn, meta
hvernig til tókst og hvað þú getur hugs
an lega gert betur næsta dag.
Það er því ekki eftir neinu að bíða með
að bæta hjá sér skipulagið, auka vellíðan
og ánægju með vinnuna og ná þannig
meiri árangri.
tafla með dæmum Sem Gott eR að
Hafa til viðmiðunaR við mat á þvÍ Í
Hvað tÍmi mannS feR
áríðandi / með tímamörk Ekki áríðandi / án tímamarka
m
ik
ilv
æ
gt
/
E
yk
ur
v
ir
ði
Ek
ki
m
ik
ilv
æ
gt
1. Hluti af stjórnun,
þættir sem ekki er
hægt að útdeila
Óvæntar krísur hjá
fyrirtækinu/deildinni
ákveðin verkefni og
fundir sem háðir eru tíma
3. minnka, fá aðra
til að leysa
Forgangsatriði annarra
truflanir
Sumir fundir, símtöl,
tölvupóstur
2. fókus
Hér ætti mest af tíma
stjórnenda að vera
áætlanagerð, undirbúningur
Menntun, þjálfun og þróun
Mynda sambönd og
tengslanet
Hvatning starfsfólks / umboð
til athafna
4. Eyða
innihaldslausar samræður
rusltölvupóstur
netráp eða tölvuleikir