Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Qupperneq 97

Frjáls verslun - 01.07.2012, Qupperneq 97
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 97 Ég er framkvæmda­stjóri sölu­ og þjón ustusviðs ÁTVR auk þess að vera yfir vörusviði. Þetta eru því nokkrir hattar og býsna mörg og margvísleg verkefni sem fylgja starfinu. Helst er að nefna þjónustu og rekstur í 48 vínbúðum um allt land og einnig eru undir því sviði innkaup á öllum vörum til fyrirtækisins, en árlega koma um 4,3 milljónir viðskiptavina í vínbúðirnar og kaupa um nítján milljónir lítra af áfengi. Við erum um þessar mundir að skoða pantanaferil vörunnar frá móttöku til sölu og innleiða svokallað AGR­pantanakerfi. Í því felst auðvitað hin hefðbundna ABC­greining á vörusafninu og síðan ítarlegri skilgreining á þjón ustustigi vara eftir því hvaða hópi þær tilheyra. Við höf um einnig verið að skoða snerti ­ fleti þjónustunnar og fræðslu til viðskiptavina og starfs fólks í tengslum við nýja tækni og það er óhætt að full yrða að mörg spennandi tæki færi séu á þeim vettvangi. Dæmi um þetta er innleiðing á pin­ og chip­posun­ um, sem er væntanleg, en við höfum verið að skoða áhrif þess á þjónustuna og biðina á álags­ tímum, en Íslendingar kaupa mikinn hluta áfengis á tiltölulega fáum klukkustundum í vikulokin. Það þýðir að álag á þjónustu og kortakerfi er tiltölulega hóflegt megnið af vikunni en mjög mikið á þessum fáu klukkustundum. Ég hef brennandi áhuga á þjónustu og mælingum almennt og vonandi smitast þessi áhugi yfir á önnur verkefni sem ég er að vinna að hverju sinni. Ég verð einnig mjög glaður ef mér tekst að smita samstarfsfólk mitt af þessum áhugamálum mínum.“ Einar lauk cand. oecon.­prófi frá HÍ árið 1998 með áherslu á markaðsmál og lauk síðan MBA­námi í HÍ árið 2008. „Mér finnst gott að hreyfa mig og geri töluvert af því. Er mikill golfari og eftir að knattspyrnuskórnir voru lagðir á hilluna hefur þetta áhugamál tekið yfir flest önnur. Ég hef einnig verið töluvert í veggtennis (skvassi) í gegnum tíðina en það hefur aðeins látið undan undanfarið og svo er ég tiltölulega nýbyrjaður að hjóla, sem er góð hreyfing þegar maður nennir ekki að leggja á sig ferðina í ræktina. Þá les ég mikið og hef haldið utan um þær bækur sem ég les í nokkur ár (mælingar sýna að þær eru á bilinu 30 til 38 á ári) og ég er yfirleitt með fleiri en eina bók í takinu hverju sinni, les yfirleitt mikið af sagnfræði en áhuga­ sviðin eru mörg og ná allt frá þróun tungumála til veðurfræði og alls þar á milli. Einnig hef ég gaman af því að ferðast og hef undanfarin ár farið reglulega í golfferðir til Bretlandseyja. Toppurinn þar er auðvitað að spila á hinum fræga Old Course í smábænum St. Andrews. Ég hef verið svo lánsamur að ná að spila þar tvisvar en því miður ekki með miklum árangri. Síðan fórum við hjónin til Póllands síðastliðinn vetur og það kom vægast sagt verulega á óvart. Ekki eingöngu hversu hratt háhýsin hafa sprottið upp í Varsjá (þau eru farin að skyggja á hina tröllvöxnu höll menningar og vísinda sem Stalín „gaf“ Pólverj­ um), heldur einnig hvað það er stutt úr miðbænum í niðurnídd­ ar blokkir í sovétarkitektúr og skipulag sovéttímans. Það sem kom ekki á óvart var hversu gott var að eiga í samskiptum við Pólverjana, fyrir utan safnverð­ ina, sem virðast ennþá vera á sovéttíma, og hversu mikil og góð matarmenningin er þarna eystra.“ Einar S. Einarsson – framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs ÁTVR „Ég hef brennandi áhuga á þjónustu og mælingum almennt og vonandi smitast þessi áhugi yfir á önnur verkefni sem ég er að vinna að hverju sinni. Ég verð einnig mjög glaður ef mér tekst að smita samstarfsfólk mitt af þessum áhugamálum mínum.“ Nafn: Einar Snorri Einarsson Fæðingarstaður: Reykjavík, 31. janúar 1972 Foreldrar: Einar Einarsson (látinn) og Olga G. Snorradóttir Maki: Hildigunnur Hafsteinsdóttir Börn: Stjúpdóttir, Bergdís Helga, 14 ára Menntun: Viðskiptafræðingur cand. oecon. og MBA frá HÍ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.