Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
1
1
0
BEITTARI NÁLGUN
SKILAR ÁRANGRI
Viðskiptaumhverfi nútímans kallar á að þitt fyrirtæki nálgist viðfangsefnin fumlaust
og af öryggi. Það kallar á samstarfsaðila í fjármálum sem beitir samskonar aðferðum.
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA GLITNIS LÆTUR VERKIN TALA.
Þú færð nánari upplýsingar um Fyrirtækjaþjónustu Glitnis í síma 440 4000 eða á www.glitnir.is.
Jóhanna Waagfjörð
framkvæmdastjóri Haga
EFTIR ÞÓRU GUNNARSDÓTTUR
Erna Hauksdóttir
Samtökum
ferðaþjónustunnar
Erna Hauksdóttir er fram-
kvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar og ein allra
áhrifamesta konan í þessari
stóru atvinnugrein. Hún hefur
sig mjög í frammi sem ötull
talsmaður ferðaþjónustunnar.
Auður Þórisdóttir
KPMG
Auður Þórisdóttir er forstöðu-
maður skattasviðs KPMG á
Íslandi. Hún er því afar áhrifa-
ríkur ráðgjafi í skattamálum
margra af stærstu fyrirtækjum
landsins. Skattasviðið er eitt
þriggja sviða hjá KPMG, hin
eru endurskoðunarsvið og fyrir-
tækjasvið.
Iðunn Jónsdóttir
Norvik
Iðunn Jónsdóttir situr í
stjórn Norvik og er annar
tveggja framkvæmdastjóra
félagsins. Undir hana heyrir
stefnumótun og þróunverk-
efni fyrirtækisins.
Dóra
Sigurðardóttir
Agli Árnasyni
Dóra Sigurðardóttir er annar
tveggja eigenda að Agli
Árnasyni, einhverju kunnasta
fyrirtækinu á svið innréttinga
á Íslandi. Hún rekur fyrirtækið
ásamt eiginmanni sínum Birgi
Þórarinssyni, sem er forstjóri
félagsins. Dóra situr í stjórn
fyrirtækisis.
„Jóhanna Waagfjörð
er að mínu mati hvetj-
andi stjórnandi sem
veitir stuðning og vill
að starfsmenn sínir sýni
frumkvæði í verki. Hún
hlustar eftir hnitmiðuðum
upplýsingum og er fljót
að koma sér að kjarna
málsins,“ segir Þóra
Gunnarsdóttir, aðstoð-
armaður framkvæmda-
stjórnar Haga. ,,Jóhanna
er góður fyrirliði sem
kann að vekja áhuga og
skapa góðan liðsanda.
Hún lætur starfsfólk sitt
taka ákvarðanir og kann
að fela öðrum verkefni.
Þá er hún sanngjörn,
skilningsrík og fjölskyldu-
vænn stjórnandi.“
Þóra segir að Jóhanna
sé skipulögð, ósérhlífin
og vinni hratt. Hún sé
alltaf vel undirbúin bæði
hvað varðar lítil og stór
verkefni. Þóra segir að
hún sé einbeitt, hnit-
miðuð, taki ábyrgð og
eigi gott með að eiga í
samskiptum við fólk.
,,Jóhanna hefur þá
hæfileika að taka fólk
með sér þannig að það
tekur ekki eftir því hvert
það er komið. Hún beitir
sínum frábæru persónu-
töfrum enda er hún hvetj-
andi fyrirmynd stútfull af
öryggi sem ekki er annað
hægt en að taka eftir.“
– Þóra Gunnarsdóttir er
aðstoðarmaður framkvæmda-
stjórnar Haga.
Jóhanna Waagfjörð er fram-
kvæmdastjóri Haga. Hún er
í stjórn Bónuss, Hagkaupa,
10-11, Aðfanga, Hýsinga,
Útilífs, Debenhams, Noron,
Res, Íshafnar og Max. Þá
er hún stjórnarformaður hjá
Steinunn Sigurd ehf.