Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2014, Side 34

Læknablaðið - 01.03.2014, Side 34
162 LÆKNAblaðið 2014/100 S A G A L Æ K N I S F R Æ Ð I N N A R þegar með því að fá klíníska kennara inn í tíma, einkum í meinafræði og lyfjafræði. Í hinum full- komna heimi var gert ráð fyrir því að kennarar frá fleiri en einni kennslugrein væru saman í tímum. Til þess var ekki nægjanlegur kennslukraftur við læknadeild HÍ. Þá var reynt að skipa svokallaðar líffærablokkir þar sem kennarar komu saman og lögðu línur frá upphafi náms til útskriftar. Það reyndist ógerlegt í skipulagningu en umræðan varð þó til þess að mikilvægi grunngreina fyrir heildarnám í deild- inni komst á skrið. Þá var farin sú leið að raða sam- an fyrirlestrum miðlægt eftir fyrirlestraskrám einstakra kennslu- greina og treyst á það að þannig myndu stúdentar ná betur að sjá tengsl kennslugreina og samþátta efnið. Reynt var að raða saman á kennsludaga/vikur þeim fyrirlestrum einstakra kennslugreina sem augljóslega áttu saman. Þannig var til dæmis raðað saman fyrirlestrum um hormóna og kirtilvef í lífefnafræði, lífeðlisfræði, vefjafræði og líffærafræði. Þetta gekk til að byrja með en krafðist mikillar skipulagningar og riðlaðist svo fljótlega og var endanlega aflagt á 1.-3. námsári með breytingum í blokkir sem komu inn 1998. Enn eimir þó eftir af þessari tilraun í sérhæfðri meinafræði og lyfjafræði á 3. ári. Það er niðurstaðan eftir þessa tilraun að með þá úrvalsstúdenta sem í deildinni eru sé þeim enginn sérstakur greiði gerður með þessu miðlæga fyrirkomulagi. Þeir eru fullfærir um samþáttun og að skapa sér yfirsýn með leiðsögn sinna kennara! Þar við bætist að læknar sem jafnframt sinna sjúklingum hafa víðast verið í forsvari fyrir kennslu í grunngreinum og lagt þannig áreynslulaust inn klínískar áherslur í grunngreinakennslu frá upphafi náms. Samskiptafræði Í tillögum sem lagðar voru fram 1987 og 1988 var gert ráð fyrir nýrri línu sem ýmist kallaðist læknislist, samskiptafræði eða atferlisfræði. Hér var um að ræða siðfræði, sálarfræði, heimspeki, viðhorf lækna til sjálf sín og sjúklinga, viðtalstækni, saga læknis- fræðinnar og fleira. Í fyrstu var tíminn sem ætlaður var fyrir þessa kennslu nokkrir fyrirlestrar. Vægi þessa var síðan aukið til muna og skipulagt sjálfstætt námskeið sem kennt var í fyrsta skipti há- skólaárið 2003-2004. Bryndís Benediktsdóttir hefur haft umsjón með skipulagningu námskeiðsins frá upphafi. Kennslan fer fyrst og fremst fram á 1. og 2. ári og síðan tengist þessi þáttur við hinar hefðbundnu klínísku greinar á síðari árum læknanámsins. Áhersla er lögð á færnimiðaða kennslu. Á fyrsta ári er fjallað um það að vera læknir (læknanemi), sem og siðfræði, undir forystu Stefáns Hjörleifssonar heimilislæknis og doktors í siðfræði í Bergen. Þá er fjallað um sérstöðu fagsins, heilbrigðis- kerfið og almannatryggingar, mikilvægi teymisvinnu og farið í undirstöðuatriði sálfræði, samskipta og samtalstækni. Fjallað er um fagmennsku, lög og reglugerðir. Verklegar æfingar eru í litlum hópum í samtalstækni og nemendur fá að fylgja læknum til að kynnast starfinu. Á öðru ári er farið nánar í samskipti læknis og sjúklings, fjallað um uppbyggingu samtalsins, samtalstækni heldur áfram í litlum hópum, nú með hjálp myndavéla, og síðar bæði á heilsugæslu- stöðvum og á sjúkrahúsi. Þá hefst verkleg kennsla í líkamsskoðun í færnibúðum. Kennslan á 1. og 2. ári fer fram í nánum tengslum við námskeið í sálarfræði. Kennsluaðferðir hafa verið fjölbreytilegar: umræðutímar, verk- efni, fyrirlestrar, færnibúðir í líkamsskoðun, verklegar samtalsæf- ingar í 4-5 manna hópum, verklegt á heilsugæslustöð, verklegt á sjúkrahúsi. Lestur bókmennta undir handleiðslu bókmennta- fræðinga er notaður til að dýpka skilning bæði á læknisstarfinu og líðan sjúklinga. Námsmat er skriflegt próf á 1. ári en stöðvapróf á 2. ári þar sem metin er praktísk frammistaða í samtalstækni, líkamsskoðun og skilað er ritgerð í siðfræði. Á þennan hátt hefur verið mætt hugmyndum um að læknanemar komist snemma í tæri við sjúklinga og að formleg samskipti séu byggð upp í náinni samvinnu við sálarfræði, siðfræði og umræðu um fagmennsku. Þetta hefur síðan á síðustu árum verið að þokast inn á þriðja árið og mætir þar klínísku greinunum sem byrja á 3. og 4. ári. „Læknar tala eins og þeir skrifa“ Læknum er mikilvægt að geta sagt skýrt og rétt frá, kynna sitt mál í fyrirlestrum af ýmsu tagi, við kennslu, í viðtölum við sjúklinga eða við kynningu á rannsóknaniðurstöðum. Þessu hafði ekki verið sinnt. Þekkt eru nærtæk dæmi um að verðandi læknar hafi farið í gegnum læknanám, kandídatsár og sérnám í lyflæknisfræði án þess að þurfa nokkurn tíma að halda fyrirlestur um faglegt efni! Það kom fljótt í ljós að þetta var ekki rétta aðferðin. Með æ fleiri rannsóknum og kynningu á niðurstöðum, flutningi erinda og kynningu á eigin verkefnum hafa þessir hæfileikar lækna- nema verið virkjaðir á áreynslulausan (næstum) hátt og í réttum tengslum við dagleg störf. Þá hefur verkefnið Ástráður, þar sem læknanemar fara í framhaldsskóla með kynfræðslu, líka aukið á kynningarhæfni, auk þess að vera frábært framtak læknanema og eykur nánd við samfélagið sem þeir koma til með að þjóna. Verk- Halldóra Kristín Magnúsdóttir, Þóra Elísabet Kristjánsdóttir og Guðrún Eiríksdóttir.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.