Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2006, Síða 32

Ægir - 01.02.2006, Síða 32
32 F I S K V I N N S L A N „Almennt finnst mér að for- svarsmenn fyrirtækja séu mjög vel meðvitaðir um að þessi mál þurfa að vera í lagi og það hafa greinilega orðið miklar framfarir í þessu, hér áður fyrr var víða pottur brot- inn varðandi til dæmis hús- næði fyrir fiskverkun, en á þessu hafa orðið jákvæðar breytingar,“ segir dr. Róbert Hlöðvarsson, tæknistjóri á matvælasviði Frumherja, sem er stærsta fyrirtækið hér á landi í eftirliti og skoðunum í hérlendum fiskvinnslufyrir- tækjum í umboði Fiskistofu, auk þess sem Frumherji sinnir skoðunum á skipum í umboði Siglingastofnunar Íslands, ökutækjum, rafmagni og lög- gildingu voga. Virkt eftirlit Matvælasvið Frumherja bygg- ir á gömlum grunni, en Nýja skoðunarstofan, sem var stofnuð árið 1993, var sam- einuð Frumherja árið 1997. „Við erum með mjög virkt eftirlitskerfi, við heimsækjum allar fiskvinnslur fjórum sinn- um á ári og fylgjumst þannig með að allt sé í góðu lagi. En ábyrgðin á framleiðslunni er á hendi viðkomandi framleið- anda og hans er að vera með virkt innra eftirlit í sínu fyrir- tæki,“ segir Róbert og bætir við að einnig sé farið reglu- lega um borð í öll skip og báta stærri en fimmtán tonn og fylgst með að þar sé öll umgjörð með matvælafram- leiðslunni í lagi. Minni bátar voru einnig á hendi skoðun- arstofanna, en 1. júní sl. voru skoðanir á bátum undir 15 tonnum færðar undir Fiski- stofu, sem Róbert telur að hafi verið skref aftur á bak. Gegnsærra kerfi „Skoðunarstofukerfið hefur verið í notkun í 13 ár og reynst vel og því engin ástæða til að færa eftirlitið aftur til hins opinbera. Okkar aðferð hefur vakið athygli víða erlendis og þar eru menn að skoða svipaðar lausnir. Hlutleysi og hæfni skoðunaraðilans er að mínu mat betur tryggt með faggild- ingu en með opinberu eftir- litskerfi,“ segir Róbert. Hann telur að það hafi tvímælalaust sýnt sig að það að hafa þenn- an eftirlitsþátt á hendi einka- rekinna og faggiltra skoðun- arstofa hafi verið gæfuspor. Eftirlitið sé virkara en áður og örugglega mun ódýra fyrir samfélagið. „Með þessu fyrir- komulagi er skilið með skýr- um hætti milli þeirra sem setja gæðakröfurnar, þ.e. rík- isins, og þeirra sem fylgja kröfunum eftir, þ.e. skoðun- arstofanna. Þetta kerfi er mun gegnsærra en áður, notendur þjónustunnar greiða fyrir hana í stað þess að áður var greitt fyrir hana með skattfé almennings,“ segir Róbert og bætir við að auk reglubund- ins eftirlits faggildingaraðilans sendi Fiskistofa eftirlitsmenn sína út í fyrirtækin reglulega og hafi þannig eftirlit með verklagi skoðunarstofanna. ESA heimsækir Ísland einnig reglulega til að hafa eftirlit með að stjórnvöld uppfylli ákvæði EES samningsins á þessu sviði. Einnig sé töluvert um að kaupendur íslenskra sjávarafurða sendi fulltrúa sína hingað til lands til þess að ganga úr skugga um að fyrirtækin uppfylli þær gæða- kröfur sem þeir gera. „Það má því segja að eftirlit með framleiðslu sjávarafurða sé margfalt og spurning um hvort ekki mætti einfalda það. Þegar allt kemur til alls er tilgangur opinbers eftirlits með matvælaframleiðslu sá að tryggja að neytendur fái heilnæman mat á diskinn hjá sér. Svo einfalt er það,“ segir Róbert Hlöðversson. Menn eru almennt vel meðvitað- ir um mikilvægi eftirlitsins – segir dr. Róbert Hlöðvarsson, tæknistjóri á matvælasviði Frumherja hf. Dr. Róbert Hlöðversson, tæknistjóri á matvælasviði Frumherja. Fornubúðir 3 - 220 Hafnarfjörður - Sími 555 6677 - oli@umb.is aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 32

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.