Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Blaðsíða 11

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Blaðsíða 11
BRÉF TIL MAJU Runólfur var fenginn til að hreinsa þetta burt úr ganginum, og það kost- aði hann áflog, talaði hann úr eilífðinni á næsta fundi hjá Hafsteini, og gat þó ekki þrifið nógu vel til í það skiptið. Þá fann Margrét þynnast fyrir í gang- inum, áður en hún vissi, að Runólfur hefði nokkuð að hafzt. En eftir fáar vikur þykknaði aftur, en hefur nú þynnzt á nýjan leik. Máski Runólfur hafi gert aðra atrennu. Ég verð einskis var og hef þó oft sofið með höfuðið inni í draug, sam- kvæmt nákvæmri staðsetningu fimm skyggnra manna, einn dönsk kona, hér öllu ókunn. Það leikur líka grunur á, að þetta sæki fremur eftir nábúð við Margréti en samfélagi við mig. Margrét hefur sem sé miðilsgáfu tvímælalaust, og frá slíku fólki kvað stafa Ijós nokkurt inn í rökkur undirheima. Ástandið er svipað og þegar flugur sækja að lampaljósi í skuggsýnu. En eilífðarverurnar hafa slæmt af þessu hangsi í göngum og skotum síldar- plansins. Ég hef gengið hér aftur og fram um ganginn með fyrirvitkomandi þankaeinbeitingu. En það virðist ekki bera meiri árangur en að reyna að koma viti fyrir menn hér í heimi. Sama þokan, heimskan, fáfræðin og for- herðingin bæði þar og hér. Ég er að segja við Margréti, að við eigum að taka upp aðferðina, sem oft gafst vel í gamla daga, að fá okkur sópl og hýða ganginn hátt og lágt á kvöldin og steypa rösklega úr koppunum yfir gólf og veggi með tilheyrandi munnsöfnuði. En þá er það málningin á veggjunum, teppið á gólfinu, skít- sælt í litum sínum, og þefurinn, ef gestir koma. Það illa verður stundum að reka út með illu. Það er einn af heimsins skammtávegkomleikum. Hvernig var ekki með Þorstein Sigurðsson kennara, ágætan mann, gæddan mikilli miðilsgáfu og djúpu dulvitranaskyni, þann hinn sama, sem heyrði hljóðin á Seltjarnarnesi, að hverju ég hef sveigt i digti mínu um þá næðingasömu hálfeyju. Þorsteinn átti um eitt skeið heima á Akureyri, enda Eyfirðingur að ætt og uppruna. Þá féll maður fyrir þeirri tegund heimsku að drekkja sér í Akur- eyrarpolli. Hann sótti fast að Þorsteini eftir viðskilnað líkamanna, svo að hann fékk ekki sofið á nóttum. Þorsteinn greip til formúlu spíritista og dul- spekinga og upphóf heitar bænagerðir fyrir astralplanssúkses hins vansæla sjálfsmorðingja. En hann sótti því fastar að Þorsteini. Loks var það eina nótt, þegar hann leitaði ákaft á Þorstein, að hann brast þolinmæðina og 89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.