Morgunblaðið - 03.12.2014, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Nicolas Sar-kozy, fyrr-verandi
forseti Frakk-
lands, náði um
helgina að tryggja
sér formannssæti
franska UMP-
flokksins með 65% atkvæða.
Hann hefur nú þegar boðað að
flokksstarfið verði með öðrum
hætti, og er meðal annars talið
líklegt að nafni flokksins, sem
er arfleifð frá sameiningu eldri
hægri-flokka, verði breytt, og
ýmsum skipulagsbreytingum
komið í gegn til þess að gera
flokkinn meira aðlaðandi fyrir
ungt fólk.
Sarkozy stefnir leynt og
ljóst að því að verða aftur for-
seti Frakklands, en kosið verð-
ur árið 2017. Hann myndi að
öllu jöfnu teljast líklegastur
þeirra sem koma til greina sem
eftirmenn Francois Hollande,
núverandi forseta, sem slegið
hefur flestöll óvinsældamet,
sem hægt var að slá, í valdatíð
sinni. En þrátt fyrir góðan sig-
ur um helgina verður sú leið
líklega torsóttari fyrir Sar-
kozy en ætla mætti í fyrstu. Til
að byrja með vann hann nú
formannssætið með nokkru
minni mun en síðast þegar
hann gaf kost á sér í embættið,
en þá náði hann 85% stuðningi
meðal flokksmanna sinna.
Þá á Sarkozy eftir að mæta
reyndum pólitískum refum í
prófkjörsslagnum um hver
verði frambjóðandi UMP-
flokksins. Hefur nafn Alains
Juppe, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Frakka, oftast verið
nefnt í umræðunni, og mun
Sarkozy þurfa að taka á honum
stóra sínum til þess að hreppa
hnossið, gefi
Juppé kost á sér.
Á hliðarlínunni
bíður svo Marine
Le Pen, formaður
Þjóðfylkingar-
innar, en síðustu
kannanir gefa til
kynna að hún eigi raunhæfa
möguleika á því að vinna fyrri
umferð forsetakosninganna,
og slá þar með við föður sínum,
sem sjálfur komst í aðra um-
ferð árið 2002, en beið þar
lægri hlut fyrir sitjandi for-
seta. Sé eitthvað að marka
kannanirnar gæti Le Pen
yngri jafnvel komist til valda,
að því gefnu að mótherji henn-
ar í seinni umferðinni verði
Hollande en ekki Sarkozy.
Slíkum vangaveltum, sem
byggjast á spám sem gerðar
eru þegar enn er langt til
kosninga, ber vitaskuld að
taka með fyrirvara. Víst má
telja að ýmislegt muni breyt-
ast á þeim rúmlega tveimur ár-
um sem til stefnu eru. Engu að
síður er enn og aftur umhugs-
unarvert fyrir stjórnmála-
menn í Evrópusambandinu
hve stuðningur við þá sem
helst efast um ágæti sam-
bandsins er mikill. Enn sem
komið er hefur sambandið lítið
sem ekki brugðist við þessu og
þeir sem hafa ráðið ferðinni,
hinir ókjörnu embættismenn,
halda sínu striki. Haldi sam-
bandið áfram eins og ekkert
hafi í skorist gæti endað með
því að forysta sambandsins
gengi endanlega fram af al-
menningi í aðildarríkjunum og
jafnvel hörðustu ESB-sinnar
gætu ekki lengur talað um efa-
semdaflokkana sem jaðar-
flokka.
Franskir hægrimenn
búa sig undir for-
setakosningar og
ýmsar blikur eru á
lofti}
Sarkozy snýr aftur
Sænskir jafn-aðarmenn
fengu næstléleg-
ustu úrslit sögu
sinnar í síðustu
kosningum, en
mynduðu þó minnihlutastjórn í
kjölfarið. Borgaraflokkarnir
eiga það sammerkt með jafn-
aðarmönnum að lýsa Svíþjóð-
ardemókrötum sem holds-
veikum, í pólitískri merkingu
orðsins. Þannig var lengi litið á
svipaðan flokk í Noregi. Í Dan-
mörku er látið eins og slíkur
flokkur sé of sýktur til að fá
lykla að ráðuneyti, en megi
hafa áhrif gegn stuðningi við
heilbrigða flokka.
Norrænir kratar græddu
einir á þessari holdsveikis-
flokkun stjórnmálanna. Þeir
máttu starfa með eða styðjast
við sósíalista yst til vinstri, án
upphrópana. Vitað var að
sænska stjórnin
var æði völt í sessi,
því hún náði ekki
að setjast á póli-
tískan þrífót, held-
ur sat tvífót, sem
aðeins loftfimleikamenn eru
færir um.
Nú blasir við að minni-
hlutastjórn Löfvens, forsætis-
ráðherra Svía, kemur ekki
fram fjárlagafrumvarpi. Borg-
araflokkarnir þrír lögðu fram
sitt eigið fjárlagafrumvarp og
Svíþjóðardemókratar – þessir
pólitískt holdsveiku – ætla að
styðja það – með skilyrðum þó.
Löfven krefst þess að borgara-
flokkarnir þiggi ekki þann
stuðning. Geri þeir það muni
hann segja af sér. Ekki virðist
það bólgin hótun. Snúnara er
að spá um hver muni koma
skást út úr kosningunum sem
fylgja munu í kjölfarið.
Það kemur ekki á
óvart þótt völt
ríkisstjórn riði}
Tvífótur riðar til falls
É
g komst að því um daginn að ég
væri ofsóttur. Málið er nefnilega
það að ég er miðaldra hvítur
karlmaður og þar að auki krist-
inn (að nafninu til – er enn í Þjóð-
kirkjunni, sem þýðir víst að ég er kristinn að
mati kirkjunnar). Ofsóknirnar felast í kröfu um
að ég taki tillit til náungans, hlusti á umkvart-
anir hans og, meira að segja, reyni að bæta ráð
mitt.
Í okkar annars ágæta þjóðfélagi er ég nátt-
úrlega ansi vel settur sem miðaldra hvítur karl-
maður, enda þarf ég ekki annað en að líta í
kringum mig til að sjá að þeir sem mestu ráða í
samfélaginu eru einmitt miðaldra hvítir karl-
menn – köllum það gildi hvítra miðaldra karl-
manna, einskonar opinbert leynifélag. Þeir
stjórna nánast öllum helstu fyrirtækjum lands-
ins, eru ekki bara forstjórar og framkvæmdastjórar og
stjórnarformenn, heldur eru þeir obbi stjórnarmanna yf-
irleitt. Meirihluti alþingismanna er líka miðaldra hvítir
karlar og eins meirihluti ráðherra í ríkisstjórn landsins,
meirihluti presta, meirihluti prófasta og svo má lengi telja
og bæta því við í leiðinni að sá þjóðfélagshópur sem best
laun hefur og mest starfsöryggi er einmitt – hvítir miðaldra
karlmenn.
Mér hefur því alltaf þótt það hjákátlegt þegar miðaldra
hvítir karlmenn taka að væla um ofsóknir og ekki síður þeg-
ar ungir hvítir karlmenn taka undir, en þeim rennur sjálf-
sagt blóðið til skyldunnar – verða brátt miðaldra sjálfir.
Í ljósi yfirburðastöðu miðaldra hvítra karl-
manna í íslensku þjóðfélagi, sem tölur sanna,
má einna helst líkja því við það að snúa fað-
irvorinu upp á andskotann þegar þeir kveinka
sér undan gagnrýni á yfirburðastöðu þeirra.
Sú gagnrýni er þó fyllilega réttmæt og kemur
ekki bara frá konum, sem borið hafa skarðan
hlut frá borði síðastliðin ríflega ellefuhundruð
ár, heldur líka frá þeim fjölda aðfluttra Íslend-
inga sem tekið hafa þátt í að byggja upp ís-
lenskt samfélag og íslenskt velferðarkerfi á
síðustu áratugum, hverrar trúar sem þeir ann-
ars eru og hvernig sem þeir eru litir.
Nú má vel vera, kæri lesandi, að þér finnist
það alvarlegt vandamál að fjöldi fólks hefur
flust hingað til lands á undanförnum árum og
kannski finnst þér það líka vandamál að marg-
ir af þeim játa ekki kristna trú (sumir eru
meira að segja múslímar), eða að þeir eru ekki allir jafn
fallega bleikir og ég (og kannski þú). Vel má líka vera að
þér finnist konur vera of frekar til fjörsins, að kröfur
þeirra um kynfrelsi, jafnrétti, sömu laun fyrir sömu vinnu
og fleira smálegt sé „forréttindafemínismi“. Að mínu viti
eru miðaldra hvítir karlmenn og þeirra valdafrekja þó
miklu meira vandamál og ekki síst fyrir það hvernig þeir
hafa komið sér fyrir í hlutverki fórnarlambsins. (Að þessu
sögðu þá set ég ekki alla miðaldra hvíta karlmenn undir
sama hatt, meðal þeirra eru vissulega fjölmargir mikils-
háttar menn sem eru mörgum velviljaðir – eins og ég.)
arnim@mbl.is
Árni
Matthíasson
Pistill
Gildi hvítra miðaldra karlmanna
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ríkisstjórnin hefur sam-þykkt tillögu SigmundarDavíðs Gunnlaugssonar,forsætisráðherra, um að
leggja fyrir Alþingi frumvarp til
breytingar á lögum um Stjórnarráð
Íslands.
Meðal annars á að taka stefnu
stjórnarráðsins í upplýsinga- og
samskiptamálum til heildarendur-
skoðunar og er stefnt að því að bæta
upplýsingagjöf til fjölmiðla og al-
mennings. Þá verður vægi og eftir-
fylgni með siða- og verklagsreglum
innan stjórnarráðsins aukið.
Í fréttatilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu kemur m.a. fram að
meginmarkmið frumvarpsins sé „að
auka sveigjanleika framkvæmdar-
valdsins til að skipuleggja störf sín á
sem faglegastan og hagkvæmastan
hátt. Jafnframt miðar frumvarpið að
því að gera úrbætur á þeim ágöllum
sem fram hafa komið á lögunum frá
því að ný heildarlög um Stjórnarráð
Íslands tóku gildi í september 2011.“
Aukinn sveigjanleiki við skipu-
lagningu ráðuneyta er eitt af helstu
atriðum frumvarpsins. Lagt er til að
heimildir til að skipuleggja ráðu-
neyti verði rýmkaðar. Grunn-
skipulag ráðuneyta verður óbreytt
en ef ástæða þykir til verður heimilt
að setja á fót sérstakar starfsein-
ingar, svonefndar ráðuneytisstofn-
anir, í ráðuneytum sem ekki munu
teljast hluti aðalskrifstofu. Þannig
verður mögulegt að sameina rekstur
ráðuneyta og einstakra stjórnsýslu-
stofnana og stjórnsýslunefnda sem
heyra undir ráðuneyti og fá þær þá
stöðu innan ráðuneytis sem sérstök
starfseining eða ráðuneytisstofnun.
Auka á hreyfanleika starfs-
manna innan stjórnsýslu ríkisins.
Gerð er tillaga um almenna heimild
til að flytja starfsmenn, sem ráðnir
eru ótímabundið til starfa hjá ráðu-
neytum og stofnunum á milli þess-
ara aðila. Liggja þarf fyrir samþykki
viðkomandi ráðherra fyrir flutn-
ingnum, forstöðumanns stofnunar
og starfsmannsins sjálfs. Í núgild-
andi lögum er heimilt að starfsmenn
flytjist á milli ráðuneyta en nú á
heimildin einnig að ná til flutnings
milli ráðuneyta og stofnana.
Heimild ráðherra til að ákveða
aðsetur stofnana sem undir hann
heyra verður endurvakin. Ráðherra
hafði heimild til þess í eldri lögum
um stjórnarráðið. Við endurskoðun
laganna árið 2011 féll þessi heimild
niður án skýringa og án þess að
breytingin hefði verið rædd á Al-
þingi. Talið er rétt og eðlilegt að end-
urvekja þessa lagaheimild. „Að
óbreyttu má ætla að sérstaka laga-
heimild þyrfti í hverju tilviki ef stað-
setja ætti stofnun í hús utan sveitar-
félagamarka Reykjavíkur. Verður
slíkt vart talið eðlilegt.“
Auknar valdheimildir
Starfræksla ráðherranefnda um
ríkisfjármál og efnahagsmál verður
lögbundin. Tillagan um þetta er sett
fram í ljósi þeirrar reynslu sem feng-
ist hefur af starfrækslu ráðherra-
nefnda frá gildistöku núgildandi
laga. Hún er líka sett fram í sam-
hengi við fram komið frumvarp til
laga um opinber fjármál. Samkvæmt
því „munu ábyrgð og valdheimildir
ráðuneyta þegar kemur að fram-
kvæmd fjárlaga aukast umtalsvert
sem aftur kallar á aukna samhæf-
ingu og samráð innan stjórnarráðs-
ins,“ segir í tilkynningunni. Lög-
festing ráðherranefnda um
ríkisfjármál og efnahagsmál er
einnig í samræmi við meg-
inniðurstöður skýrslu Rann-
sóknarnefndar Alþingis.
Bætt úr ágöllum í
stjórnarráðslögunum
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnarráðið Gera á úrbætur á skipulagi og starfi stjórnarráðsins til að
gera það sveigjanlegra. Einnig á að bæta upplýsingagjöf frá stjórnvöldum.
Forsætisráðuneytið hefur kynnt
fyrirhugaðar breytingar sem
lagt er til að verði gerðar á
stjórnarráðinu. Kynningunni
fylgir frumvarp til laga þess efn-
is.
Lagasetningin á einkum að
hafa þau áhrif að auka sveigjan-
leika í starfi stjórnarráðsins, að
því er segir í athugasemdum við
frumvarpið. Með því að auka
sveigjanleika við skipulag
stjórnarráðsins og stofnana sem
heyra undir ráðuneytin verður
stjórnvöldum gert betur kleift að
bregðast við sífellt flókn-
ari úrlausnarefnum.
Jafnframt á að
auka vægi og eftir-
fylgni með siða- og
verklagsreglum innan
stjórnarráðsins, m.a.
í samráði við um-
boðsmann Al-
þingis og
Ríkisendur-
skoðun.
Aukinn
sveigjanleiki
ÚRBÆTUR Á SKIPULAGI OG
STARFI STJÓRNARRÁÐSINS
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson