Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Blaðsíða 74
SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR
sé ekki bók sem henti unglingum, þvert á móti tel ég að unglingar geti haft af
henni gaman og þó nokkurt gagn (eins og reyndar að flestum góðum og
athyglisverðum ,,fullorðinsbókum“). En fjarvera Sögu afstúlku meðal nýrra
íslenskra skáldsagna (fyrir fullorðna) sýnir klárlega misskilning forráða-
manna verslunarinnar á innihaldi hennar því þetta er skáldsaga sem er í
virkri samræðu við aðrar samtímabókmenntir og póstmódernísk fræði -
eins og áður er getið. Athyglisvert er að sögur af ungum stúlkum hafa verið
nokkuð áberandi síðustu ár (kannski svar við flóði drengjasagna áttunda og
níunda áratugarins). Saga af stúlku er í samræðum við verk eins og Hellu,
Hallgríms Helgasonar, Svaninn, eftir Guðberg Bergsson, Ég heiti ísbjörg. Ég
er Ijón, eftir Vigdísi Grímsdóttur, og jafnvel Veröld Soffíu, eftir Jostein
Garder.9 (Einnig mætti fara enn lengra aftur og benda á Sölku Völku, og þá
sérstaklega það flókna mæðgnasamband sem þar er lýst). Flestar þessar bæk-
ur fjalla á sinn hátt um tilurð kynsins og merkingu þess í samfélagi okkar og í
þeirri samræðu tekur Mikael Torfason þátt með eftirtektarverðum hætti.10
Hitt er þó einnig ljóst að höfundur Sögu afstúlku er líka í meðvitaðri sam-
ræðu við íslenskar unglingabækur. Eða öllu heldur má segja að hann taki
íróníska afstöðu til ákveðinnar tegundar íslenskra unglingabóka. Þetta gerir
hann með því að nota útúrsnúning á þekktum unglingabókatitlum í kafla-
fyrirsagnir bókarinnar, svo sem „Draugar í sleik gráta víst og geta jafnvel ver-
ið á föstu“. Með slíkum útúrsnúningum er Mikael Torfason kannski að lýsa
frati á bækur, markaðssettar sérstaklega fyrir unglinga, sem lýsa á yfirborðs-
legan hátt lífi unglinga og samskiptum þeirra undir áhrifum af lélegum
amerískum bíómyndum og snöggsoðinni sálfræði. Bókum þar sem eðlis-
hyggjan og hin gagnkynhneigða regla ríkir ofar öðru í allri sinni dýrð. Slík
gagnrýni er löngu tímabær.
Ajtanmálsgreinar
1 Geir Svansson. „Ósegjanleg ást. Um hinsegin sögur og hinsegin fræði í íslensku sam-
hengi.“ Skírnir, haust 1998, bls. 478.
2 Mikael Torfason. Saga af stúlku. Forlagið 1998. Hér eftir verður vísað til bókarinnar með
blaðsíðutölum í sviga í meginmáli.
3 Ég bendi áhugasömum á ofannefnda grein Geirs Svanssonar í Skírni, i bók Dagnýjar Krist-
jánsdóttur Kona verður til, Bókmenntafræðistofnun og Háskólaforlagið, 1996, á grein
Dagnýjar Kristjánsdóttur í Kistunni, vefriti um hugvísindi, (ritstjóri: Matthías Viðar
Sæmundsson), og grein Sigríðar Þorgeirsdóttur í Fjölskyldan og réttlœtið, (ritstjórar: Jón
Kalmannsson, Magnús Baldursson og Sigríður Þorgeirsdóttir), Siðffæðistofnun Háskóla
Islands 1998.
4 Það sem hér fer á eftir er byggt að mestu leyti á grein Dagnýjar Kristjánsdóttur: „Skápur,
skápur, herm þú mér...“ Sjá Kistan, vefrit um hugvísindi, (ritstj. Matthías Viðar Sæmunds-
son). http://www.hi.is./~mattsam/Kistan/-private/dagny.htm
J
72
www.mm.is
TMM 1999:3