Ský - 01.02.2007, Blaðsíða 62

Ský - 01.02.2007, Blaðsíða 62
 62 ský ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S F LU 3 45 61 10 /2 00 6 Safety on board During take-off and landing seat belts must be securely fastened and seats and tables in an upright position. Seat belts must also be used at all times when the seat belt sign above the seats is illuminated. Air Iceland also recommends that passengers use the seat belts at all times when sitting in their seats. Smoking is not permitted in domestic air services and on flights between Iceland and other European destinations. Above the passenger seats in the Fokker 50 you will find closed overhead compartments for your hand baggage. Electronic devices in the passenger cabin The use of portable telephones, walkie-talkies, remote controlled toys and other devices specifically designed to transmit radio signals is strictly forbidden at all times as radio waves could affect the very sensitive navigation equipment and digital computers used in modern aircraft. The use of portable tape recorders, CD players, lap-top computers, vido cameras and electronic games is limited to the cruising phase of the flight and forbidden during takeoff and climb as well as descent and landing phases of the flight. Please show consideration for your fellow passengers and only use these devices with earphones and switch off the sound effects of computer games. The use of heart pacemakers, hearing aids and other devices required for medical reasons is of course not restricted. Service on board Air Iceland crews will do their utmost to make your flight as pleasant and comfortable as possible. You can call a cabin attendant by using the call button above your seat. On the domestic routes Air Iceland offers complimentary coffee, tea, water and soft drinks for children. Öryggi um borð Við flugtak og lendingu er ætíð skylt að hafa sætisbeltin spennt og sætisbök og borð í uppréttri stöðu. Einnig er skylt að hafa sætis- beltin spennt þegar kveikt er á viðeigandi upplýsingaskiltum fyrir ofan sætin. Mælt er eindregið með því að farþegar hafi sætisbeltin ætíð spennt. Reykingar eru hvorki leyfðar í innanlandsflugi né í flugi milli Íslands og annarra Evrópulanda. Fyrir ofan farþegasætin í Fokker 50 eru lokaðar hillur fyrir handfarangur. Rafeindatæki í farþegarými Notkun farsíma, „lab rabb“ tækja, fjarstýrðra leikfanga og annarra tækja sem sérstaklega eru hönnuð til að senda frá sér útvarps- bylgjur, er ætíð stranglega bönnuð um borð í flugvélum Flugfélags Íslands. Notkun ferðasegulbandstækja, geislaspilara, fartölva, sjónvarpsmyndavéla og leiktækja er aðeins leyfð í láréttu farflugi flugvélanna og þar með bönnuð í klifurflugi, lækkunarflugi og aðflugi til lendingar. Notið þessi tæki aðeins með heyrnartólum. Ætíð skal vera slökkt á hljóðgjafa leiktækja. Notkun hjartagang- ráða, heyrnartækja og annarra tækja, sem farþegi þarf að notast við af heilsufarsástæðum, er að sjálfsögðu án takmarkana. Þjónusta um borð Áhafnir Flugfélags Íslands leggja sig fram um að gera farþegum ferðina sem ánægjulegasta. Með því að ýta á hnapp fyrir ofan sætið getur farþegi kallað á flugfreyju eða flugþjón. Í boði er kaffi, te, vatn og svaladrykkir fyrir börnin. Welcome on board Velkomin um borð flugfelag.is / Sími 570 3030 Völundarhús Pans Frá því nýjasta kvikmynd Guillermos del Toro, Pan’s Labyrinth, var frumsýnd í Bandaríkjunum í desember hafa allir keppst við að hlaða hana lofi og er hún yfirleitt á öllum listum yfir bestu kvikmyndir síðasta árs. Um er að ræða epíska ævintýramynd sem sviðsett er á Spáni í valdatíð Francos. Aðalpersóna myndarinnar er lítil stúlka, Ófelía, sem alin er upp af stjúpföður sem er stuðningsmaður Francos. Hún er einmana og kraftlítil og lifir sig inn í dagdrauma þar sem hún huggar bæði menn og dýr. Hrifning allra beinist ekki síst að hinni ungu leikkonu Ivönu Baquero sem heillað hefur alla sem séð hafa myndina. Pan’s Labyrinth er sjötta kvikmynd Del Toros og hefur hann unnið jöfnum höndum á Spáni og í Bandaríkjunum. Síðasta kvikmynd hans var Hellboy, sem margir voru hrifnir af. Dýrahringurinn Hinn ágæti leikstjóri David Fincher er ekki afkastamikill. Frá því hann leikstýrði þriðju Alien-myndinni árið 1992 hafa aðeins komið fjórar kvikmyndir frá honum, Seven, The Game, Fight Club og Panic Room. Sú fimmta, Zodiac, er á leiðinni, verður frumsýnd vestan hafs í byrjun mars. Um er að ræða sakamálamynd sem byggð er á bók, þar sem lýst er leit lögreglunnar að raðmorðingja í San Francisco sem aldrei hefur fundist. Er um að ræða eitt þekktasta óleysta morðmál í Bandaríkjunum. Hvort Fincher kemst að einhverri niðurstöðu hefur ekki verið látið uppi. Fincher lætur tvo blaðamenn við San Francisco Chronicle vinna með lögreglumanni sem er að rannsaka morðin. Í aðalhlutverkum eru Jake Gyllenhaal, Mark Ruffalo, Robert Downey jr. og Anthony Edwards. Hugh Grant enn í rómantíkinni Hugh Grant hefur haldið sér á floti síðustu árin með því að leika í rómantískum gamanmyndum og er ekki að sjá neina breytingu hjá honum að þessu leyti. Nýjasta kvikmynd hans Music and Lyrics, sem verður tekin til sýningar hér á landi í byrjun mars er um útbrunninn söngvara sem fær ekki vinnu nema í skemmtigörðum og sveitahátíðum. Þegar hann fær tilboð frá þekktri söngkonu um að semja lag sem á að höfða til unglinga og syngja með henni getur hann ekki neitað þó hann hafi aldrei samið lag áður. Til að bjarga málunum fær hann konu sem hann þekkir og er vel skáldmælt til að hjálpa sér við að semja lagið. Mótleikkona Grants að þessu sinni er Drew Barrymore. Leikstjóri er Mark Lawrence, sem einnig leikstýrði Hugh Grant í Two Weeks Notice. Smart spæjari Þeir sem horfðu á sjónvarp í árdaga þess hér á landi muna örugglega eftir gamanþáttaröðinni Smart spæjara (Get Smart). Gott ef hún var ekki endursýnd fyrir fáeinum árum. Í sjónvarpsseríunni lék Don Adams sjálfum- glaðan njósnara sem mistókst yfirleitt allt sem hann tók sér fyrir hendur en brotlenti þó aldrei og var það Mel Brooks sem skapaði persónuna. Nú á að fara að gera kvikmynd upp úr sjónvarpsseríunni. Ekki kemur Brooks nálægt kvikmyndgerðinni nema að hann gefur leyfi fyrir nýju handriti. Í hlutverki Maxwells Smart er Steve Carell, sem var einn eftirminnilegra leikara í Little Miss Sunshine og í hlutverki njósnara 99 er Anne Hathaway. Í öðrum hlutverkum eru meðal annarra Dwayne Johnson (The Rock) og Terence Stamp. Tökur fara fram í Los Angeles, Washington og Moskvu og hefjast í mars. Leikstjóri Get Smart er Peter Segal. Bíófréttir Texti: Hilmar Karlsson Ivana Baquero hefur heillað alla í hlutverki Ófelíu í Pan´s Labyrinth. Jake Gyllenhaal leikur annan tveggja blaðamanna sem eru á slóð raðmorðingja. Drew Barrymore og Hugh Grant strögla við að koma saman lagi á tveimur dögum. Kvikmyndir sky ,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.