Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2008, Page 2
„Ég er yfir mig hneykslaður á þessu,“
segir Jónas Gunnarsson, sem hef-
ur verið úrskurðaður geðfatlaður,
sviptur fjárræði og sjálfræði. Jónas
var dæmdur til að greiða 185 þúsund
króna sakarkostnað vegna þjófnað-
ar á tveimur tilbúnum súpum sem
kostuðu tæpar eitt þúsund krónur.
Jónas fær ekki að borga
sakarkostnaðinn,
segist verða
að sitja
hann
af
sér innan veggja fangelsisins.
Jónas var fyrir skömmu dæmdur
í fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa
í tvígang stolið sér til matar í febrú-
ar síðastliðnum. Jónas stal bollasúpu
sem kostaði 250 krónur í 10-11. Hann
hefur átt við geðræn vandamál að
stríða um langt skeið. Sjálfur segist
hann þó bara vera „venjulegur
alkohólisti“.
Móðirin blekkt til
að skrifa undir
pappíra
Búið er að svipta
Jónas sjálfræði og
er hann ekki sátt-
ur við það. „Móð-
ir mín var blekkt
til að skrifa upp á
þessa pappíra.“
DV fjallaði um
mál Jónasar þegar
hann var dæmdur
til fangelsisvistar
fyrir súpuþjófnað-
inn. Þá sagðist syst-
ir Jónasar, Halldóra
Gunnarsdóttir, undr-
ast mjög að jafnveikur
maður og Jónas skyldi
vera dæmdur í fang-
elsi, enda væri það eng-
inn staður fyrir hann. Hún
sagðist þá ekki viss
um að hann
hefði gert
sér
grein fyrir gjörðum sínum. Hann
hefur lengi verið á sterkum lyfjum
sem hafa stundum gert illt verra.
Jónas segist hafa verið allsgáður í
mánuð og hefur sjaldan liðið jafn vel
og nú.
Dæmdur fyrir þjófnað upp á
eitt þúsund
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
Jónas í fimm mánaða fangelsi eft-
ir að hann rauf skilorð með því að
verða uppvís að því í tvígang að hafa
stolið sér til matar í verslunum 10-11
og Hagkaupa á einni helgi. Verðmæti
þess sem Jónas stal nemur um það
bil eitt þúsund krónum.
Föstudaginn 22. febrúar síðast-
liðinn kom Jónas inn í verslun 10-
11 í Austurstræti, þar opnaði hann
tilbúna súpu og neytti hennar án
þess að greiða fyrir hana. Andvirði
súpunnar er um 250 krónur. Tveim-
ur dögum síðar var hann aftur á ferð,
þá í verslun Hagkaupa í Kringlunni,
þar sem hann stal aftur mat, að and-
virði 769 krónur.
Vonast eftir samfélagsþjónustu
„Ég er að fara inn þann 18. sept-
ember. Þá á ég að mæta í Hegning-
arhúsið nema ég fái samfélagsþjón-
ustu. Ég vona auðvitað að ég fái að
flokka hjá Rauða krossinum, vinna
á kaffistofu Samhjálpar eða afgreiða
mat um helgar í Fjölskylduhjálp-
inni,“ segir Jónas.
Jónas vill meina að hann hafi ekki
fengið að áfrýja dómnum til Hæsta-
réttar. Hann vonar einnig að það sé
einhverja vinnu að hafa þannig að
hann þurfi ekki að fara í fangelsi.
Fái hann ekki réttlæti íhugar hann
að flýja land. „Forræðismaður minn
segir bara já og amen við kröfum
geðlækna.“
Hjá landlæknisembættinu feng-
ust þær upplýsingar að erfitt sé að tjá
sig um einstök mál en þó í langflest-
um tilvikum séu dæmdir menn,
sem eiga við geðræn vanda-
mál að stríða, vistaðir á
réttargeðdeild.
Þetta helst
föstudagur 22. ágúst 20082 Fréttir DV
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Baldvin heitir 18
ára piltur sem
er heimilislaus í
Reykjavík. Hann
hefur verið edrú
í sex mánuði og vinnur
150 prósent vinnu sem
þjónn á skemmtistað.
Honum hefur tekist
að borga handrukk-
urum 1,2 milljónir af
þeim þremur sem hann
skuldar. Skuldir vegna fyrra lífern-
is koma hins vegar í veg fyrir að hann geti leigt sér húsnæði. Baldvin
sagði sögu sína í DV á þriðjudag og benti þá meðal annars á að hjá
velferðarsviði Reykjavíkur væru engin úrræði fyrir ungt, skuldugt fólk
sem er á götunni. Aðstoðin lét hins vegar ekki bíða eftir sér því ung
kona hafði samband við DV eftir að hafa lesið greinina og vildi bjóða
Baldvini afnot af herbergi á heimili hennar til að létta honum lífið.
sveltur dögum saman
Fjórði
meirihlut-
inn í borg-
arstjórn
Reykjavíkur
tók við völd-
um á borgarstjórnar-
fundi í Ráðhúsi Reykja-
víkur. Hanna Birna
Kristjánsdóttir var
ráðin borgarstjóri, hún
verður fjórði borgar-
stjórinn á fyrstu rúmu
tveimur árum kjör-
tímabilsins og sjöundi borgarstjóri Reykjavíkur á tveimur kjörtíma-
bilum. Seinast þegar Sjálfstæðismenn mynduðu meirihluta í borg-
inni voru sumir borgarfulltrúar flokksins á báðum áttum eins og sjá
mátti í úttekt DV af endalokum síðasta meirihluta í borgarstjórn. Af
nýlegum ummælum Gísla Marteins Baldurssonar og annarra borg-
arfulltrúa má ráða að samstaðan hafi ekki verið mikil þegar ákvörð-
unin var tekin um meirhlutasamstarf með Ólafi F. Magnússyni.
einn meirihluti enn
2
Barnaníðingurinn Ágúst
Magnússon dvelur í for-
eldrahúsum við Laufrima
í Grafarvogi. Íbúar í
húsinu er hræddir enda
hverfið mikið fjölskyldu-
hverfi. Leikskóli er bak við húsið
þar sem Ágúst dvelur. Hann var
dæmdur í fimm ára fangelsi árið
2004 fyrir að níðast kynferðislega
á sex drengjum. Meðan á réttar-
höldum í málinu stóð reyndi Ág-
úst að tæla til sín barn í gegnum
netið. Hann gekk síðar í gildru
fréttaskýringaþáttarins Kompáss sem
lagði gildru á netinu fyrir barnaníðinga. Konur sem búa í nágrenni
við Ágúst eru uggandi og hafa varað við honum í grunnskólum og
leikskólum í nágrenninu.
Óttaslegnar vegna Ágústs
3
Jónas Gunnarsson var dæmdur til að greiða 185
þúsund króna sakarkostnað sem hann má ekki borga. Hann verður
að sitja sektina af sér innan veggja fangelsis. Jónas var dæmdur í
fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa í tvígang stolið sér til matar í
febrúar síðastliðnum. Jónas stal meðal annars bollasúpu sem kost-
aði 250 krónur í 10-11. Hann er sviptur fjárræði og sjálfræði og hef-
ur átt við geðræn vandamál að stríða um langt skeið.
hitt málið
þriðjudagur 19. ágúst 20082
Fréttir
„Þegar ég kom úr meðferð í janúar
á þessu ári komu handrukkararn-
ir strax á eftir mér. Þeir fóru með
mig upp í Heiðmörk þar sem ég
var barinn í klessu og skilinn eftir,“
segir Baldvin, 18 ára heimilislaus
piltur í Reykjavík.
Á götunni
Baldvin vinnur 150 prósent
vinnu á skemmtistað í miðborg
Reykjavíkur og gistir í yfirgefnu
húsi á Seltjarnarnesi. Þegar hann
kom úr meðferð biðu fíkniefna-
skuldir hans og félaganna. „Það
var alltaf ég sem keypti efnið af
dópsölunum og lét vini mína hafa
svo ég bar í raun ábyrgð á skuld-
um okkar. Auk þess eru æskuvinir
mínir enn í neyslu og hafa engan
möguleika á að verjast handrukk-
urum. Þeir hafa líka hótað því að
fara í fjölskylduna mína, þessum
mönnum er algjörlega alvara,“ seg-
ir hann. Samanlögð skuld þeirra
félaga var 1,5 milljónir króna en
fíkniefnasalinn seldi þá skuld
til handrukkara sem tvöfölduðu
hana í kjölfarið.
Ein máltíð á dag
Nú þegar hefur honum tekist
að borga 1,2 milljónir af skuld-
inni en öll launin hans fara í það.
„Ég er í góðri vinnu og fæ vel út-
borgað. Þeir vita af því og sitja fyr-
ir mér um hver mánaðamót. Ég
læt þá hafa allt sem ég á. Það var
ég sem kom mér í þessa skuld og
ég verð að greiða hana. Auk þess
vil ég koma mér út úr þessum að-
stæðum eins fljótt og ég get,“ segir
hann. Þegar allir peningarnir eru
farnir upp í skuldina stendur ekki
mikið eftir og Baldvin viðurkenn-
ir að hann svelti oft heilu og hálfu
hungri. „Ég skrifa á mig mat einu
sinni á dag í vinnunni og læt það
duga. Stundum borða ég ekki svo
dögum skiptir,“ segir hann.
Erfiðleikar í æsku
Baldvin ólst upp í Grafarvogin-
um hjá mömmu sinni en var í engu
sambandi við pabba sinn. Þegar
hann var átta ára flutti fósturpabbi
hans inn á heimilið. Það hafði
mikil áhrif á Baldvin og í kjölfarið
hófst einelti sem fylgdi mikil van-
líðan. Þegar hann var 13 ára byrj-
aði hann að reykja hass með félög-
um sínum úr skólanum. Fljótlega
fór hann út í harðari neyslu en
fékk nóg undir lok síðasta árs. „Ég
var gjörsamlega kominn í andlegt
þrot og sagði félögum mínum að
ég gæti ekki meira. Í framhaldinu
fór ég í meðferð á Vogi og á Stað-
arfell eftir það. Ég er mjög trúaður
eftir þessa reynslu og þakka guði
fyrir að vera á lífi. AA-samtökin og
æðruleysisbænin hafa líka hjálp-
að mér í gegnum þetta allt,“ segir
hann.
Fær enga aðstoð frá
yfirvöldum
Baldvin er í mestu sambandi
við tvær stelpur sem eru einnig
fyrrverandi fíklar. „Ég þekki tvær
stelpur sem gista yfirleitt í Konu-
koti. Það eina sem er í boði fyrir
karlmenn er Gistiskýlið og það er
mjög erfitt að komast þar að. Það
er ætlað fyrir rónana en ekki okkur
sem höfum þó vinnu. Þess vegna
eru þær í töluvert betri aðstöðu en
ég,“ segir hann.
Baldvin hefur einnig leitað til
félagsmálayfirvalda en þau geta
ekki boðið honum upp á neitt þar
sem hann hefur vinnu og telst því
ekki standa illa. Heimilislausum
unglingum stendur til boða að
fara inn á sérstök heimili en þar
sem hann er orðinn 18 ára stend-
ur það ekki til boða. „Ég hef kynnst
fullt af unglingum sem hafa kom-
ið út úr meðferð í alveg sömu að-
stæðum og ég. Flest þeirra endast
Hundalíf á götunni
lilja guðmundsdóttir
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
„Það er mikilvægt að átta sig
á skilgreiningunni hverjir eru
heimilislausir og hverjir ekki.
Samkvæmt tillögu að skilgrein-
ingu frá árinu 2005 eru heimilis-
lausir utangarðsfólk sem er búið
að brenna flestar brýr að baki sér.
Þeir eiga ekki tryggt húsaskjól
og hafa ekki bjargir til að verða
sér úti um húsnæði af ýmsum
ástæðum,“ segir Ellý Þorsteins-
dóttir, skrifstofustjóri á velferð-
arsviði Reykjavíkurborgar. Það
felur í sér að þeir sem hafa góð-
ar tekjur falla ekki undir þá skil-
greiningu.
Félagsþjónusta borgarinnar
býður heimilislausum aðstöðu
í Gistiskýlinu sem er bráða-
birgðahúsnæði fyrir 20 heimil-
islausa karlmenn. Auk skýlisins
hefur borgin tvö sambýli á sín-
um snærum þar sem samtals 16
karlmenn dvelja í lengri tíma. „Á
þessum heimilum eru karlmenn
sem hafa dvalið langdvölum í
Gistiskýlinu og ekki hefur tekist
að aðstoða þannig að þeir geti
búið sjálfstætt,“ segir hún. Önn-
ur líknarfélög reka einnig heimili
af svipuðu tagi en Rauði krossinn
rekur Konukot fyrir heimilislaus-
ar konur í neyslu og þar er pláss
fyrir átta í einu.
Eitt af þessum félögum er SÁÁ
sem rekur áfangaheimili á Miklu-
braut fyrir þá sem eru að koma
úr meðferð og eiga erfitt með að
fóta sig. Það er ekki gert ráð fyrir
að menn dveljist þar lengi í einu,
en þar er pláss fyrir tuttugu og yf-
irleitt fullt. „Mér finnst skrítið að
þetta ungur maður sé húsnæðis-
laus, það hljómar ekki kunnug-
lega í mínum eyrum. Hins vegar
fáum við stundum fólk sem eng-
inn vill eiga og fyrir því er yfir-
leitt einhver ástæða úr fortíðinni.
Vissulega vantar samt peninga
og fólk sem er tilbúið að styrkja
unglingasambýli fyrir fólk sem
er í þessari stöðu,“ segir Þórarinn
Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi.
liljag@dv.is
Fólk sem enginn vill eiga
Þórarinn tyrfingsson „það vantar peninga og fólk sem er tilbúið að
styrkja unglingasambýli.“
í tvær vikur á götunni en svo sækja þau aftur í neysluna. Þetta er algjört hundalíf,“ segir hann.
sefur í yfirgefnum húsum
„Það er mjög misjafnt hvar ég
gisti og það kemur fyrir að ég geti
reddað mér gistingu því ég á mjög góða vini sem hafa stundum bjarg-
að mér. Yfirleitt skríð ég samt inn í eitthvert yfirgefið hús nálægt mið-
bænum. Þar er auðvitað skítkalt og erfitt að sofna þó ég klæði mig
í öll fötin mín. Ég get ekki sagt að
ég hlakki til vetrarins,“ segir Bald-
vin sem segist þekkja til rúmlega
hundrað manns á götunni. Að und-
anförnu hefur hann oftast gist í bíl vinkonu sinnar eða í yfirgefnu húsi á Seltjarnarnesi.
Kerfið getur ekki hjálpað
Baldvin er staðráðinn í að fara
ekki aftur í neyslu þó lífið sé hart.
Einn af gististöðunum
Baldvin vinnur myrkranna á milli til að borga handrukkurum gamlar fíkniefnaskuldir.
mYnd dV / HEiða HElgudóttir
Yfirgefið hús á seltjarnar-
nesi Heimilislausir koma sér
fyrir í yfirgefnum húsum í leit
að einhverri hlýju.
mYnd dV / HEiða HElgadóttir
„Stundum borða ég ekki
svo dögum skiptir.“
„Ég bjóst ekki við að
það tæki svona lang-
an tíma að fá einhvers
staðar inni. “
þriðjudagur 19. ágúst 2008 3
Fréttir
„Ég bjóst ekki við að það tæki
svona langan tíma að fá einhvers
staðar inni. Maður heldur að þjóð-
félagið sé ekki svona en þetta er
staðreynd. Það eru ekki til nein
langtímaúrræði sem styrkja ungl-
inga í sömu stöðu og ég er í. Ég hef
rætt við félagsráðgjafa og vegna
þeirra tekna sem ég hef er kerfið
ekki tilbúið að hjálpa mér neitt,“
segir hann.
Heimilislausir fá stundum að
sofa á lögreglustöðinni í miðbæn-
um en Baldvin hefur ekki þann
möguleika vegna þess að lögreglan
vill geta fullvissað sig um að hann
geti ekki snúið aftur heim til sín.
„Pabbi hefur ekki haft neitt sam-
band við mig síðan ég var pínulítill
og ástandið heima hjá mömmu er
þannig að ég get ekki snúið þangað
aftur. Þetta er svakalegt ástand en
svona er þetta bara, ég gerði slæma
hluti þegar ég var í neyslu og þetta
tekur allt tíma. Auðvitað vona ég
að sambandið lagist eftir því sem
ég er lengur edrú,“ segir hann.
Ríkir handrukkarar
Upp á síðkastið hafa handrukk-
ararnir slakað örlítið á og eru farn-
ir spjalla þegar þeir taka við mán-
aðarlegu greiðslunum. „Þeir hafa
aðeins slakað á við mig upp á síð-
kastið og spjalla því þeir vita að ég
stend við mitt. Þeir græða mikið
á því sem þeir gera og eiga nóg af
peningum,“ segir Baldvin. Það er
þekkt að þeir sem skulda mikið í
fíknefnaheiminum samþykki að
vera notaðir sem burðardýr til að
freista þess að borga upp skuldina
á einu bretti. „Ég átti aldrei mögu-
leika á því en ég hefði ekki hikað
við að taka þá áhættu í stað þess
að lifa því lífi sem ég lifi í dag. Það
er alls staðar talað við mig eins og
dópistaræfil,“ segir hann.
„Við göngum á milli ættingja í von um aðstoð en við getum ekki borgað til baka,“ segir ein þriggja kvenna sem eru í ítarlegu viðtali við DV um fátækt. Í viðtalinu sem birtist í DV á morgun segja kon-urnar þrjár frá raunum sínum.
„Við leitum alls staðar í von um hjálp,“ segir ein konan. Kon-urnar þrjár, sem allar búa á höf-uðborgarsvæðinu, kalla eftir að-stoð, hvaða aðstoð sem er. Segja að fleiri séu í þeirra sporum, eiga ekki í sig og á. Geta ekki fram-fleytt sér og sínum, segjast nánast á áskriftarlista hjá Intrum og líf-ið sem blasir við þeim á hverjum einasta morgni sé ömurlegt. Svo ömurlegt að ein þeirra vill frekar fara yfir móðuna miklu en lifa.
Konurnar segja frá hryllileg-um raunum sínum en allar eru þær öryrkjar. Örorkubæturnar
dugi hins vegar skammt. Tvær þeirra eiga börn sem eru að byrja í skóla á ný en mæðurnar eiga ekki fyrir skólaútgjöldum. Þær eiga í stökustu vandræðum með að fá nægan mat. Þær vilja ekki dreifa huganum í verslunarmið-stöðvum vegna matarlyktarinnar þar inni og segja að aðstoðin sem þær fá dugi ekki til að ná endum saman.
Ein konan er lungnasjúklingur og heyrnardauf. Maðurinn henn-ar er sjúklingur. „Við ráðum eng-an veginn við allan þennan kostn-að. Leigan, lyfin, heimsóknirnar á spítalann. Við bara náum ekki endum saman,“ segir hún með tárin í augunum.
Ítarlegt viðtal í DV á morgun.
Dauðinn skárri en örbirgðin
Eiga ekki fyrir nauðsynjum
Konurnar þrjár kannast allar við að geta ekki keypt í matinn eða leyst út lyf sín.
Nýr borgarstjórnarmeirihluti tek-
ur við í Ráðhúsi Reykjavíkur klukk-
an tíu í dag. Þá verður nýr mál-
efnasamningur Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks kynntur og
Hanna Birna Kristjánsdóttir tekur
við embætti borgarstjóra af Ólafi F.
Magnússyni.
Seinast þegar Sjálfstæðismenn
mynduðu meirihluta í borginni voru
sumir borgarfulltrúar flokksins á
báðum áttum. Af nýlegum ummæl-
um Gísla Marteins Baldurssonar og
annarra borgarfulltrúa má ráða að
samstaðan hafi ekki verið mikil þeg-
ar ákvörðunin var tekin. DV kann-
aði hvaða borgarfulltrúar það voru
sem studdu fyllilega myndun meiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og Ólafs F. á
sínum tíma og hverjum leist ekki á
blikuna.
Hugnaðist það illa
„Flest önnur stjórnarform hefðu
hugnast mér betur, en ég taldi þó að
þessi meirihluti okkar ætti mögu-
leika á því að verða betri en Tjarn-
arkvartettinn,“ segir Gísli Marteinn
Baldursson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, á bloggsíðu sinni
um samstarf Sjálfstæðisflokks og
Ólafs F. Magnússonar í Reykjavík
sem nú hefur farið út um þúfur.
Gísli segir ástæðuna fyrir því að
hann studdi samstarfið á sínum
tíma þrátt fyrir að hugnast það ekki
þá að Tjarnarkvartettinn gæti engu
komið í verk. „Okkur sem stóðum að
meirihlutanum með Ólafi F. var full
alvara með það að halda að við gæt-
um náð meiri árangri,“ segir Gísli á
bloggsíðunni.
Nýtt hljóð
„Það á ekki að mynda meirihluta
nema menn séu sáttir við það,“
sagði Hanna Birna um meirihluta-
samtarfið með Ólafi F. í Kastljósi
Sjónvarpsins síðasta föstudag. Litlar
efasemdaraddir heyrðust þó úr röð-
um borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks
þegar stofnað var til samstarfsins í
janúar og sagði Geir H. Haarde for-
sætisráðherra meðal annars að nýi
meirihlutinn væri afar trúverðugur.
„Það kom bara í ljós að okkar
áherslur og áherslur Ólafs eru ein-
faldlega mjög svipaðar,“ lét Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson hafa eftir sér eft-
ir myndun nýrrar borgarstjórnar
en ekki er víst hvort Gísli Marteinn
hafi hreyft einhverjum mótmælum
þá. „Við stöndum algjörlega hundr-
að prósent þétt saman. Allar sögur
um ágreining í okkar flokki eru bara
hugarburður einhverra manna úti í
bæ,“ sagði Vilhálmur einnig við fjöl-
miðla.
Ekki jákvæð
Jórunn Frímannsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vill lít-
ið segja um hvernig henni hafi lit-
ist á samstarfið á sínum tíma. „Ég
samþykkti þetta þá þannig að mér
leist ekki verr á en það,“ segir hún
við DV.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir segir
að hún hafi ekki verið neitt sérstak-
lega jákvæð eða neikvæð á samstarf-
ið með Ólafi F. „Það er auðvitað átak
hverju sinni að taka svona ákvarð-
anir. En ég vil nú ekki taka eins djúpt
í árinni og hann Gísli,“ segir Þor-
björg. Hún segist ekki geta sagt frá
því hvort Gísli hafi hreyft einhverj-
um mótmælum þegar ákveðið var
að ganga í þetta samstarf því þá væri
hún að brjóta trúnað. Þorbjörg segir
þó auðvelt að koma með svona yfir-
lýsingar eftir á og vill því ekki segja
meira um málið.
Júlíus Vífill Ingvarsson sagð-
ist ekki geta tjáð sig um hvað hon-
um hafi fundist um samstarfið þeg-
ar stofnað var til þess þar sem hann
hafði ekki lesið bloggfærslu Gísla
Marteins þegar DV talaði við hann.
Ummæli Geirs
„Ég get ekkert sagt um það sem
ég ekkert veit um og ég veit ekki
annað en að samstarfið gangi vel,“
sagði Geir H. Haarde, formaður
Sjálfstæðisflokksins, í samtali við
fjölmiðla 13. ágúst. Einum degi síð-
ar var borgarstjórnarflokkur Sjálf-
stæðisflokksins búinn að mynda
meirihluta með Framsókn. Síðar
kom fram í fjölmiðlum að Geir og
Guðni Ágústsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, höfðu rætt hugsan-
legt meirihlutasamstarf flokkanna
í borginni áður en borgarfulltrúar
gengu frá samningi um slíkt sam-
starf. Ólafur F. hefur einnig hald-
ið því fram að æðstu menn úr röð-
um Sjálfstæðisflokksins hafi vitað af
stofnun nýs meirihluta nokkru áður
en upp úr slitnaði hjá honum og
Sjálfstæðisflokknum.
Í ljósi ummæla Hönnu Birnu í
Kastljósinu var samstarf Sjálfstæð-
isflokks og Ólafs F. komið í hnút
nokkru áður en samstarfinu var slit-
ið. Í þessu ljósi verða ummæli for-
sætisráðherra að teljast skrítin þar
sem bæði hann og Guðni Ágústsson
vissu að nýr meirihluti var í burðar-
liðnum.
Eðlilegt
„Það er mjög algengt að þegar
flokkar fara í samstarf líki einstök-
um fulltrúum það misvel og til að
mynda í ríkisstjórnarsamstarfi er
það algengt. Í Nýsköpunarstjórn-
inni 1944 voru það fimm sjálfstæð-
ismenn sem ekki studdu stjórnina.
Þó menn aftur á móti styddu hana,“
segir Ólafur Þ. Harðarson stjórn-
málafræðingur. Hann segir ekk-
ert athugavert við að einstakir
fulltrúar séu ekki hlynntir
ákveðnu samstarfi þó að
þeir styðji það.
„Það var augljós-
lega mjög áhættu-
samt fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn
að fara í þetta
samstarf og
þá kemur
ekki á óvart
þó að Gísli
Marteinn
og sjálfsagt
einhverjir
fleiri hafi
verið hugsi
yfir þessu,“
segir Ólaf-
ur.
fimmtudagur 21. ágúst 20082 Fréttir
Gísli Marteinn Baldursson
Ólafs F. Magnússonar
Kjartan Magnússon Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Ólafur Þ. Harðarson
DÆMD Í SAMSTARF
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Ólafur F. Magnússon
Kjartan þrýsti á
Ólaf í veiKindaleyfi
,,Ég get greint nákvæmlega frá
því hvers vegna mér finnst ég illa
svikinn,“ segir Ólafur F. Magnús-
son, fráfarandi borgarstjóri, í ít-
arlegu viðtali við DV sem birtist
í helgarblaðinu sem kemur út
á morgun. Þar fjallar hann um
veikindi sín og atburðina í borg-
arstjórn.
„Sjálfstæðismenn fóru að
sýna persónu minni óvæntan
áhuga á ný frá og með þeim degi
sem nýr meirihluti Dags B. Egg-
ertssonar var myndaður. Eng-
inn borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks hafði haft samband við
mig frá því ég vék úr borgar-
stjórn í febrúar 2007 og þar til
hinn frægi 100 daga meirihluti
var myndaður. Þá skyndilega
hófu fleiri en einn einstakling-
ur úr borgarstjórnarflokki Sjálf-
stæðisflokks að hringja í mig og
Kjartan Magnússon kom fyrir-
varalaust á heimili mitt beint úr
Höfða, þar sem meint svik Björns
Inga Hrafnssonar við Sjálfstæð-
isflokkinn urðu ljós og það í við-
urvist Óskars Bergssonar. Ósk-
ar hefur nú skyndilega öðlast
trúnað sjálfstæðismanna þegar
þeir svíkja heiðursmannasam-
komulag við mig og kasta mér
fyrir borð. Ég hef ekki sagt þetta
áður en það er ekkert launung-
armál að allan þann tíma sem
100 daga meirihlutinn starfaði
var Kjartan í stöðugu sambandi
við mig og þrýsti á mig um
meirihlutasamstarf með Sjálf-
stæðisflokknum, jafnvel þó ég
kæmi ekki aftur til starfa í borg-
arstjórn fyrr en 6 vikum eftir að
meirihluti Dags B. Eggertssonar
var myndaður.“
Var hann í viðræðum við þig í
veikindaleyfi frá borgarstjórn?
„Já.“
Viðtal Sirrýar við Ólaf F.
Magnússon birtist í heild sinni í
helgarblaði DV sem kemur út á
morgun, föstudag.
Finnst hann illa svikinn Ólafur segir
sjálfstæðismenn engan áhuga hafa
sýnt sér frá því hann fór í veikindaleyfi
þar til þeir reyndu að fá hann til að
sprengja tjarnarkvartettinn.
KJARtAN MAGNÚSSON:
Vildi samstarf. Hefur lýst því
yfir að missir sé að Ólafi f.
fimmtudagur 21. ágúst 2008 3Fréttir
VIÐ ÓLAF F
Barátta um pallana
Stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks
annars vegar og Samfylking-
ar og vinstri-grænna hins veg-
ar hafa safnað liði til að sýna
sínu fólki í borgarstjórn sam-
stöðu á borgarstjórnarfundin-
um í dag. Ungliðahreyfingar
vinstri-grænna og Samfylk-
ingar hafa hvatt fólk til að
mæta á fundinn í þeim til-
gangi að lýsa andúð sinni
á þeim meirihluta sem
tekur við völdum í dag.
Stuðningsmenn Fram-
sóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks hafa á hinn
bóginn hvatt fólk til
að mæta á fundinn
og það tímanlega til
að tryggja sér sæti
svo það geti sýnt stuðning sinn við
meirihlutaskiptin.
Mikil og hávær mótmæli urðu í
Ráðhúsi Reykjavíkur 24. janúar síð-
astliðinn þegar meirihluti sjálfstæð-
ismanna og Ólafs F. Magnússonar tók
við völdum í borginni. Að þeim mót-
mælum stóðu stuðningsmenn Sam-
fylkingar, vinstri-grænna og Fram-
sóknarflokks. Háreistin var slík að
gera þurfti hlé á borgarstjórnarfundi
og honum var ekki haldið áfram fyrr
en mótmælunum linnti. Þá voru
hrópuð slagorð gegn nýja meirihlut-
anum og Ólafur F. sagður enginn ...
borgarstjóri. Mótmælunum linnti
ekki fyrr en Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, sem þá var nýtekin við sem
forseti borgarstjórnar, sagðist myndu
láta rýma áhorfendapalla ef fundar-
gestir þögnuðu ekki.
Mótmælt í janúar stuðningsmenn
minnihlutaflokkanna í borgarstjórn
mótmæltu í janúar og aftur í dag.
Hugnaðist ekki samstarfið
gísli marteinn segir á bloggsíðu
sinni að flest önnur stjórnarform
hefðu hugnast honum betur.
„Við stöndum algjörlega hundrað prósent þétt sam-
an. Allar sögur um ágreining í okkar flokki eru bara
hugarburður einhverra manna úti í bæ.“
Gísli Marteinn Baldurs-
son: Vildi ekki samstarfið. Hann
taldi flest önnur stjórnarform betri
en samstarf með Ólafi f.
Hanna Birna Kristjánsdóttir:
Vildi ekki samstarfið. segist hafa greitt
þessu atkvæði en alltaf vitað að samstarf
við framsóknarflokkinn væri betra.
ÞorBjörG HelGa ViGfús-
dóttir: gat ekki staðfest. segist
hvorki hafa verið neikvæð né jákvæð
á samstarfið.
VilHjálMur Þ.
VilHjálMsson: Vildi
samstarf. Beitti sér einna
helst fyrir því að farið væri í
samstarfið.
júlíus Vífill inGVarsson: gat ekki
staðfest. Hann gat ekki staðfest að hann hefði verið
fylgjandi stofnun meirihlutans með Ólafi f. þar sem
hann hafði ekki lesið bloggfærslu gísla marteins.
jórunn fríMannsdóttir: studdi
samstarfið. Hún segist hafa stutt að farið
væri í samstarfið á sínum tíma.
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins
SýSlumaður hafnaði beiðni
benjamínS þórS þorgrímS-
Sonar um lögbann á Sýn-
ingu kompáSSþáttar. nú
leitar hann til dómStóla
til að hindra Sýninguna.
stefnir
kompás
fimmtudagur 21. ágúst 2008 dagblaðið vísir 152. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
mæður
vara við
niðingi
ágúSt magnúSSon vekur ugg meðal íbúa í rimahverfi:
Bíður með
playboy
áSdíS rán gunnarSdóttir ætlar að afþakka boð um að Sitja fyrir í playboy en gæti gert það Síðar.
Þegja um eigin kjaraskerðinguekkert liggur fyrir um breytingar á eftirlauna-lögum þingmanna og ráðherra Sem tryggja þeim margfalt betri eftirlaun en almenningur fær.
Býður skjól
fyrir Baldvin
ung kona vill bjóða ungum manni húSaSkjól eftir að hafa leSið um hremmingar hanS í dv.henni finnSt við öll þurfa að hjálpa fólki.
var dæmdur fyrir gróf Brot gegn Börnum Hefur Brotið af sér aftur eftir sakfellinguvarað við ágústi í skólum og leikskólum
lögreglan getur ekkert aðHafst í málinu
„Það er alvarlegt mál
að geðveik manneskja
sé látin skrifa undir
slíka pappíra.“
Geðfatlaður
á leiðinni í fanGelsi
beneDikt bóas hinriksson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Litla-hraun Jónas var dæmdur
í fimm mánaða fangelsi.
Jónas Gunnarsson Hefur verið
sviptur sjálfræði og fjárræði í
aldarfjórðung og er nú vistaður á
Kleppi. Hans bíður fangavist.