Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2008, Qupperneq 39
DV Sport Föstudagur 22. ágúst 2008 39
hjá fjölskyldu en seinna árið var ég
einn í húsinu hans Grétars Rafns.
Það var ekkert mál fyrir mig því ég
er það þroskaður og gat tekist á við
þetta. Það fyrsta sem ég geri þegar
ég flyt inn í nýtt hús er að kaupa mér
George Foremann-grill. En núna er
ég byrjaður að elda sjálfur annað en
kjúklingabringur í grillinu. Mamma
ætlar samt að koma út í september til
mín í Coventry til að sjá um matinn
og þrifnaðinn sem verður gott,“ segir
Aron og hlær.
Á landsliðssætið skilið
Þegar kallið kom frá Ólafi Jóhann-
essyni landsliðsþjálfara um sæti í A-
landsliðinu var Aron einungis að
leika með varaliði AZ Alkmaar. Góð
frammistaða hans með yngri lands-
liðunum átti stóran þátt í valinu en
Aron var ákveðinn í að standa sig frá
fyrstu mínútu.
„Landsliðskallið kom á óvart en
Luka Kostic hafði sagt við mig að það
færi að styttast í það. Luka hefur nátt-
úrulega talað við Óla og sagt honum
að ég væri að standa mig vel með U21
árs landsliðinu. Þegar ég fékk svo
kallið ætlaði ég auðvitað að standa
mig. Það var ekkert annað en að gjöra
svo vel og koma sér í liðið. Mér varð
að vera sama um hvað þessir menn
hétu, Eiður Smári eða hvað, ég varð
bara að standa mig. Ég hef verið í
byrjunarliðinu síðan og ef ég skyldi
missa sætið er það einfaldlega upp á
mig komið að vinna sætið mitt aftur.
Mér finnst ég eiga skilið að eiga sæti í
þessum hópi ennþá,“ segir Aron sem
var á bekknum gegn Aserbaídsjan í
vináttulandsleik síðastliðið miðviku-
dagskvöld.
Klappaði Eiði á bakið
„Það er upplifun að vera í kring-
um Eið Smára enda er hann algjör
toppleikmaður. En eins og í leiknum
gegn Slóvakíu var það ég sem var að
reka hann áfram,“ segir Aron og vitn-
ar í atvik þegar hann klappaði Eiði á
bakið fyrir markið sem hann skoraði
gegn Slóvakíu. „Ég vissi ekkert að ég
hefði gert það. Svona er ég við alla
leikmenn, greinilega. Honum finnst
það kannski vont en ég verð að gera
það sem ég er bestur í. Ég hrópa og
kalla þegar ég er inni á vellinum og
skipa mönnum fyrir. Mér finnst gott
að hjálpa strákunum í liðinu og það
gefur mér líka mikið. Þetta er minn
leikstíll. Ég vil öskra og hlaupa,“ seg-
ir Aron.
Úrvalsdeildarlið höfðu áhuga
„Umboðsmaðurinn minn hafði
samband við Coventry og út frá því
kom yfirútsendarinn frá Coventry
að horfa á mig gegn Slóvakíu,“ seg-
ir Aron Einar aðspurður hvernig fé-
lagaskipti hans til Coventry komu til.
„Útsendarinn var mjög ánægður með
það sem hann sá og fylgdust þeir svo
aftur með mér gegn Wales. Ég held
meira að segja að Chris Coleman
hafi komið á þann leik þó ekki hafi
farið mikið fyrir honum í stúkunni.
Ég er mjög sáttur við þetta skref sem
ég hef tekið,“ segir Aron en lið úr úr-
valsdeildinni höfðu einnig samband.
Hann var þó alltaf ákveðinn hvað
hann ætlaði að gera.
„Middlesbrough og Hull voru að
spyrjast fyrir um mig, hvað ég kostaði
og svona, en ég sá aldrei samning frá
þeim. Sumt fólk setti spurningamerki
við að ég væri að fara í fyrstu deildina
á Englandi þegar ég átti möguleika
á að fara í úrvalsdeildina. Fólk veit
samt ekkert hvað ég er að hugsa. Mín
hugsun var alltaf sú að fá að spila alla
leiki. Ég vildi miklu frekar taka þetta
skref til Coventry og fá að spila reglu-
lega en að spila varaliðsleiki með
Middlesbrough eða Hull og fá að sitja
á bekknum í varaliðinu kannski. Ef
maður ætlar að spila með landslið-
inu sínu verður maður að spila reglu-
lega og ég vil spila með landsliðinu,“
segir Aron ákveðinn en landsliðssæt-
ið skiptir hann miklu máli.
Coleman er toppeintak
Chris Coleman er knattspyrnu-
stjóri Coventry en hann stjórnaði
Fulham með miklum myndarskap
áður en hann var látinn fara þaðan.
Hann var um tíma yngsti þjálfarinn
í úrvalsdeildinni ensku. Coleman
sagði við fjölmiðla spurður um Aron
að hann væri mjög góður leikmaður
og væri kominn langt miðað við ald-
ur. Hann varaði þó alla við að hann
væri aðeins nítján ára gamall og ekki
mætti bera of miklar væntingar til
hans. Ítrekaði Coleman þó að Aron
ætti eftir að gagnast Coventry vel og
hefur hann valið Aron í byrjunarliðið
í fyrstu þremur leikjum tímabilsins.
„Þegar ég hitti Coleman leist mér
strax á hans hugmyndir um hvern-
ig fótbolta hann ætlar að spila. Þessi
orð hans endurspegla klárlega fyrstu
kynni mín af honum. Ég var búinn
að skrifa undir þegar ég hitti hann.
Hann var mjög ánægður með það því
hann hafði mikinn áhuga á að fá mig.
Hann hafði séð mig spila með lands-
liðinu og talað við Heiðar Helguson
sem var hjá honum í Fulham. Hann
vill samt ekki leggja of mikla pressu á
mig strax ef ég skyldi ekki þola press-
una og því eru þessi orð hans mjög
rökrétt, þannig að stuðningsmenn-
irnir geri sér ekki of miklar vonir.
Coleman er toppeintak af manni
og mjög nettur gaur að tala við. Hann
passar sig að vera ekki í of nánu sam-
bandi við leikmenn sína en það er
mjög gott að tala við hann og vel hægt
að „djóka“ með honum. Hann er
frábær þjálfari líka og undirbún-
ingstímabilið var svakalega erf-
itt. Klárlega það erfiðasta sem ég
hef upplifað. Coleman lagði samt
mikið upp úr að spila líka fótbolta og
hafa gaman af hlutunum,“ segir Aron
sem er mjög ánægður með lífið í Cov-
entry og brosti í hvert sinn sem talið
barst að liðinu eða borginni.
Betur borgað en
unglingavinnan
Tímabilið á Englandi er
rétt nýhafið og Aron hefur
farið vel af stað. En hvað
vill þessi ungi norð-
anmaður fá
út úr
þess-
um næstu níu mánuðum sem enska
fyrsta deildin hefur upp á að bjóða?
„Ég vil bæta mig sem leikmaður og
fá að spila reglulega. Það er það sem
ég legg upp með en ég ætla ekkert að
gefa upp um hvort takmark okkar sé
að vinna deildina eða neitt þannig.
Ég vil hafa gaman af fótbolta þó að
ég sé atvinnumaður. Það skiptir ekki
máli í hverju þú ert, þú þarft alltaf að
hafa gaman af því. Í Hollandi hafði ég
ekkert gaman af fóbolta en nú geri ég
það og líður vel,“ segir Aron en hvað
fær pjakkur eins og hann borgað í at-
vinnumennsku á Englandi? ,„Ég er
nú bara nítján ára en ég fæ meira en
fólkið í unglingavinnunni og Bónus
allavega,“ segir Aron og hlær. „Þetta er
auð- vitað vel borgað en maður
þarf að vera skynsamur
að leggja fyrir það sem
maður getur. Ég lifi
þetta allavega alveg
af,“ segir Aron Einar
léttur að lokum.
tomas@dv.is
Aron Einar Gunnarsson er nítján ára landsliðsmaður í fótbolta frá Akur-
eyri. Hann bjó í Þórs-hluta bæjarins og lék bæði handbolta og fótbolta með
félaginu á yngri árum. Hann var að eigin sögn miklu betri handknattleiks-
maður en knattspyrnumaður en valdi síðari greinina á endanum. Hann á
að baki 29 landsleiki með yngri landsliðum Íslands en var óvænt kallaður í
A-landsliðið í byrjun árs. Hann sló strax í gegn með því og er nú lykilmað-
ur í landsliði Íslands. Árangur hans með landsliðinu vakti áhuga liða á
Englandi og leikur hann nú með Coventry undir stjórn Chris Coleman og
hefur verið í byrjunarliði í fyrstu þremur leikjum sínum þar og fengið
góða dóma. Tómas Þór Þórðarson hitti Aron Einar þegar hann var á land-
inu í vikunni og ræddi við þennan mikla hæfileikadreng.
Kom sér
sjálfur á
korti
VAKTi sTrAx AThyGli aron Einar bar af
á vellinum þegar hann lék fyrst í landsleik
hér heima gegn Færeyjum fyrr á árinu.
mynd siGurður GunnArsson